Merkel vill skýra Brexit-áætlun frá Theresu May snarlega

Theresa May verður for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands á morgun. Leið­togar Evr­ópu­ríkja bíða enn eftir að Bretland óski form­lega eftir úrsögn úr ESB. Engar áætl­anir um úrsögn hafa enn komið frá breskum stjórn­völdum.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, vill að Bretar úrskýri fljótt hvernig þeir hyggjast ætla að hætta í Evrópusambandinu.
Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, vill að Bretar úrskýri fljótt hvernig þeir hyggj­ast ætla að hætta í Evr­ópu­sam­band­inu. Mynd: EPA

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hvatti bresk stjórn­völd til að útskýra snar­lega hvernig þau hyggj­ast móta fram­tíð sína með Evr­ópu­sam­band­inu. Rúmlega helm­ingur bresku þjóð­ar­innar kaus úrsögn úr sam­band­inu í Brexit-þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í síð­asta mán­uði. Theresa May hefur verið valin af Íhalds­flokk­inum til að taka við af David Cameron sem for­sæt­is­ráð­herra lands­ins á morgun.

„Brexit þýðir Brexit,“ sagði May við fjöl­miðla fyrir framan þing­húsið í London þegar hún flutti sig­ur­ræðu sína þegar ljóst var að hún yrði næsti leið­togi Íhalds­flokks­ins. „Við ætlum ekki að reyna nein brögð til að halda áfram í Evr­ópu­sam­band­inu, tryggjum engar vara­leiðir um bak­dyr og það verður engin önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla.“

Merkel sagði stuðn­ings­mönnum sínum í Þýska­landi í gær að Bretar myndu ekki fá að týna til það sem þeim þætti gott við ESB og halda aðgengi sínu að því. „Þetta verða erf­iðar við­ræður við Bretland,“ sagði hún.

„Evr­ópu­ríkin 27 sem eftir standa þurfa að vernda sína hags­muni,“ sagði Merkel í morgun. Hún bætti við að vilji Bretland halda aðgengi sínu að frjálsa mark­að­inum þurfi Bretar að gang­ast við grunn­skil­yrðum sam­bands­ins, hinu svo­kall­aða fjór­frelsi, og að það verði Bretum ómögu­legt að hafa frjálsa fólks­flutn­inga fyrir utan sviga.

Aðgengi að frjálsa mark­að­inum er bresku efna­hags­lífi mik­il­vægt. Breskir stjórn­mála­menn sem studdu úrsögn í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni lögðu á það áherslu að Bretar gætu gert samn­ing við ESB þar sem landið hefði enn aðgengi að frjálsa mark­að­inum en gæti tak­markað fjölda þeirra sem vilja flytja til Bret­lands og starfa þar.

Chris Grayling, leið­togi í neðri deild breska þings­ins og stuðn­ings­maður Theresu May, lét hafa eftir sér að Bretum lægi ekk­ert á að skilja við Evr­ópu­sam­bandið. Í Lisabon-sátt­mál­anum fjallar grein 50 um hvernig aðild­ar­ríki geta hætt í ESB og má það ferli ekki taka lengri tíma en tvö ár. Bresk stjórn­völd þurfa hins vegar að óska eftir úrsögn áður en klukkan fer að tifa og það hafa þau ekki enn gert. Þess er vænst að May taki við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra á morgun, mið­viku­dag.

Grayling sagð Sky News-frétta­stof­unni að úrsögn yrði ekki óskað fyrr en Bretland væri til­búið til þess. „Við virkjum ekki 50. grein­ina fyrr en við erum til­búin. Það mik­il­væg­asta sem við gerum núna verður að vera í þjóð­ar­hag,“ sagði hann og dró um leið úr vænt­ingum Evr­ópu­sam­bands­ins um að með May í for­sæti yrði óviss­unni eytt snar­lega.

Evr­ópu­sam­bandið er einnig að safna vopnum sínum fyrir við­ræð­urnar framundan. Allt lítur út fyrir að ESB ætli að nota Skotland sem lóð á sínar voga­skálar, enda kusu Skotar með áfram­hald­andi veru í sam­band­inu. Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, sagði það strax eftir að nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar voru ljósar að mjög lík­lega myndi Skotland krefj­ast ann­arar atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði frá Bret­landi. Hún hefur svo flogið til Brussel og rætt við evr­ópska stjórn­mála­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár