Bein tengsl á milli svefnleysis og kvíða

Það er löngu vitað að það að fá góðan næt­ur­svefn er eitt af því mik­il­væg­asta sem við gerum fyrir heils­una. Nú sýnir enn ein rann­sóknin fram á mik­il­vægi svefns, í þetta sinn voru áhrif gæða næt­ur­svefns á kvíða dag­inn eftir könnuð.

Þrátt fyrir að við vitum öll að svefn er okkur mik­il­vægur er stað­reyndin sú að millj­ónir fólks um allan heim fær ekki nægan næt­ur­svefn. Ófull­nægj­andi svefn getur haft ýmis áhrif á heilsu okkar. Þar má meðal ann­ars nefna að rann­sóknir hafa sýnt fram á tengsl á milli svefn­vanda­mála og syk­ur­sýki tvö, tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dóma, auk hjarta- og æða­sjúk­dóma.

Nýverið birti rann­sókn­ar­hópur við Uni­versity of California, Berkeley nið­ur­stöður rann­sóknar þar sem tengsl á milli gæða svefns og kvíða voru könnuð. Nið­ur­stöð­urnar birt­ust í tíma­rit­inu Nature Human Behaviour.

Minni svefn, aukinn kvíði

Þátt­tak­endur í rann­sókn­inni voru 18 heil­brigðir, full­orðnir ein­stak­lingar. Rann­sókn­inni var skipt niður í tvo meg­in­liði. Í báðum til­raunum voru þátt­tak­endur fengnir til þess að horfa á mynd­bönd að morgni til sem sýndu óþægi­lega atburða­rás. Þetta var gert í þeim til­gangi að vekja til­finn­inga­leg við­brögð hjá þátt­tak­endum. 

Munurinn á milli til­raun­anna tveggja lá í því að nótt­ina fyrir aðra til­raun­ina fengu þátt­tak­endur fullan næt­ur­svefn en fyrir hina var þeim haldið vak­andi. 

Eftir báðar til­raun­irnar voru ein­kenni kvíða hjá þátt­tak­endum metin með prófi sem kall­ast Stundar- og lyndisk­víða­kvarð­inn (e. State-Trait Anxiety Inventory). Í ljós kom að eftir svefn­lausu nótt­ina mæld­ist kvíði þátt­tak­enda 30% meiri en eftir nótt­ina þar sem þeir fengu ótrufl­aðan svefn.

Alls 78% þátt­tak­enda stað­festu auk þess að þeir upp­lifðu auk­inn kvíða eftir svefn­lausu nótt­ina. Í ofaná­lag sýndu nið­ur­stöður kvíða­mats­ins að helm­ingur þátt­tak­enda fór yfir mörk fyrir klínískar kvíð­arask­anir, þrátt fyrir að glíma ekki við kvíða í sínu dag­lega lífi.

Augljós áhrif á heilann

Auk til­raun­anna tveggja voru teknar sneið­myndir af heila þátt­tak­enda með seg­u­l­ómtæki. Þær nið­ur­stöður voru ekki síður áhuga­verðar. Sneið­mynd­irnar sýndu að til­finn­inga­leg við­brögð juk­ust eftir svefn­leysi í þeim hluta heil­ans sem stýrir flótta- eða árás­ar­við­bragð­inu (e. fight or flight). Sömu sögu var að segja um þann hluta heil­ans sem sýna við­brögð þegar við upp­lifum nei­kvæðar til­finn­ingar.

Öfugt við þessi tvö svæði heil­ans sást nær engin virkni í þeim hluta heil­ans sem hefur það hlut­verk að stýra til­finn­ingum, þar með töldum kvíða­til­finn­ingum.

Á meðan þátt­tak­endur sváfu var svefn þeirra skráður með svefn­riti. Út frá því mátti greina að þeir sem upp­lifðu hvað lengstan djúpsvefn yfir nótt­ina virt­ust einnig upp­lifa minnstan kvíða dag­inn eftir.

Jafnvel ein svefnlaus nótt getur haft afleiðingar

Út frá nið­ur­stöðum sínum dregur rann­sókn­ar­hóp­ur­inn þá ályktun að svefn­leysi geti í raun valdið beinum kvíða­ein­kennum. Þetta á þá einnig við um um þá sem ekki glíma við klínískar kvíð­arask­anir í sínu dag­lega lífi. Að auki benda höf­undar grein­ar­innar á að jafn­vel ein nótt af skertum svefni getur haft áhrif á kvíða hjá heil­brigðum ein­stak­lingum.

Þessar nið­ur­stöður koma lík­lega fáum mikið á óvart. Þær eru þó mik­il­vægur liður í því að auka skiln­ing okkar á þeim áhrifum sem svefn­leysi getur haft á líðan okkar og heilsu. Þetta á sér­stak­lega við nú þegar fjöldi þeirra sem glímir við klínískar kvíð­arask­anir fer vax­andi á sama tíma og svefn fer minnk­andi.

Þótt góður næt­ur­svefn sé ekki töfra­lausn fyrir þá sem glíma við klínískan kvíða eru þessar nið­ur­stöður ágætis áminn­ing um það að setja góðan næt­ur­svefn í for­gang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár