Mynd: Samsett

Ríkisstjórnin kynnti nýtt skattþrep fyrir lægstu tekjurnar

Í til­lögum um breyt­ingar á skatt­kerf­inu sem rík­is­stjórnin kynnti aðilum vinnu­mark­að­ar­ins í morgun voru lagðar til jafnar skatta­lækk­anir upp á nokkur þús­und krónur á mán­uði á alla ein­stak­linga með tekjur upp að 900 þús­und krónum.

Rík­is­stjórnin kynnti hug­myndir um nýtt lægsta skatt­þrep á fundum sínum með for­svars­mönnum vinnu­mark­að­ar­ins í dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Það skatt­þrep yrði þá fyrir lægstu tekj­urnar.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að útfærslan yrði hins vegar þannig að um sömu skatta­lækkun yrði að ræða í krónum talið, nokkur þús­und krónur á hvern ein­stak­ling, upp að 900 þús­und króna tekjum á mán­uði.

Verka­lýðs­hreyf­ingin bjóst við því að kynntar yrðu skatta­lækk­anir fyrir lægst laun­uð­ustu hópanna sem myndu telja í tugum þús­unda króna á mán­uði. Því er ljóst að til­lögur stjórn­valda í skatta­málum eru ekki að fara hleypa glæðum í við­ræð­urnar að nýju að óbreyttu.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem VR, Efling, Verka­lýðs­fé­lag Akraness og Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur sendu frá sér síð­degis í dag kom fram að stétt­ar­fé­lögin lýsi „reiði og sárum von­brigðum“ með þær til­lögur sem rík­is­stjórnin kynnti á fundi með for­seta og vara­for­setum Alþýðu­sam­bands Íslands í dag, þeim Drífu Snædal, Krist­jáni Þórði Snæ­björns­syni og Vil­hjálmi Birg­is­syni. Vil­hjálmur gekk út af fund­inum.

Fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar sátu Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dótt­ir for­­sæt­is­ráð­herra, Sig­­urður Ingi Jó­hanns­­son, sam­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráð­herra og Ásmund­ur Ein­ar Daða­son, fé­lags- og barna­­mála­ráð­herra fund­inn og kynntu til­lögur hennar. Auk skatta­til­lagna voru ræddur hug­myndir tengdar aðgerðum á hús­næð­is­mark­aði, meðal ann­ars um aukin stofn­fram­lög til óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga, og úrbætur á félags­legum kerfum.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, sagði í sam­tali við RÚV að honum lit­ist ágæt­lega á til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar.

Umfangsmiklar breytingartillögur lagðar fram

Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur á und­an­förnum vikum lagt fram sínar eigin skatta­til­lögur. Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands sam­þykkti fyrir nokkrum vikum til­lögur sem í fólst að hér á landi yrðu jögur skatt­þrep, lagður verði á hátekju­skatt­ur, tek­inn verði upp að nýju auð­legð­ar­skattur og skatta­yf­ir­lit aukið veru­lega til að fjár­magna þessar til­lög­ur.

Þann 7. febr­úar var svo kynnt skýrsla Stefán Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands, og Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri og um tíma ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í tíð vinstri stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, unnu fyrir Eflingu stétt­ar­fé­lag um skatt­kerf­is­breyt­ingar. Stefán ræddi þær í þætt­inum 21 á Hring­braut í síð­ustu viku og sagð­ist þar von­góður um að til­lögur þeirra myndu koma til fram­kvæmda.

Mikill sam­hljómur var með henni og þeim til­lögum sem sam­þykktar voru í mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands en skýrslan sýndi ítar­legri útfærslur og kostn­að­ar­mat til­lög­urnar sem lagðar voru til. Þær helstu voru að hér þyrfti að koma á stíg­andi skatt­kerfi með fjórum til fimm skatt­þrepum, hækka þyrfti fjár­magnstekju­skatt til sam­ræmis við það sem almennt tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum og breyta skatt­lagn­ingu rekstr­ar­hagn­aðar til sam­ræmis við skatt á launa­tekjur. Þá þyrfti að bæta fram­kvæmd reikn­aðs end­ur­gjalds sjálf­stætt starf­andi aðila þannig að end­ur­gjaldið verði einnig látið taka til fjár­mála­starf­semi, leggja þarf á stór­eigna­skatt með frí­tekju­marki fyrir eðli­legt verð­mæti íbúð­ar­hús­næðis, sum­ar­húsa og einka­bif­reiða og sann­gjörn auð­linda­gjöld „fyrir allar atvinnu­greinar sem nýta sam­eig­in­legar auð­lindir þjóð­ar­innar.”

Til við­bótar væri nauð­syn­legt að efla skatta­eft­ir­lit og herða eft­ir­fylgni skatt­rann­sókna og dóma.

Áttu að lækka skatta um tugi þúsunda

Tillögur Stefáns og Indriða eiga að færa lág­launa­fólki og líf­eyr­is­þegum á milli 20 og 29 þús­und króna lækkun á stað­greiðslu á mán­uði og sam­kvæmt þeim myndu um 90 pró­sent fram­telj­enda fá skatta­lækkun. Þannig myndu allir með tekjur að um 900 þús­und krónum á mán­uði fá skatta­lækkun ef til­lög­unum yrði hrint í fram­kvæmd, sam­kvæmt skýrsl­unni. Nettó kostn­aður við það að hrinda þeim í fram­kvæmd væri um 30 millj­arðar króna.

Ljóst er að þær til­lögur sem kynntar voru á fund­inum í morgun eru fjarri því að skila þeim upp­hæðum sem stefnt var að í skýrsl­unni.

Þess má geta að Sam­fylk­ingin lýsti í morgun yfir stuðn­ingi við skatta­hug­myndir Alþýðu­sam­bands­ins og flokk­ur­inn hvatti til þess að unnið yrði eftir þeim hug­myndum við útfærslu breyt­inga á skatt­kerf­inu.

Staðan mjög viðkvæm

Eins og stendur eru kjara­við­ræður því í algjörum hnút og staðan mjög við­kvæm. Í síð­ustu viku lögðu Samtök atvinnu­lífs­ins fram til­boð sem hljóð­aði upp á að laun upp að 600 þús­und krónum á mán­uði myndu hækka um 20 þús­und krónur á mán­uði hvert ár samn­ings­ins, sem gert var ráð fyrir að gilti til þriggja ára. Hærri laun áttu að hækka um 2,5 pró­sent.

Efl­ing, VR og verka­lýðs­fé­lög Akra­ness og Grinda­vík­ur sögðu til­boðið leiða til kaup­mátt­arrýrn­unar fyrir stóra hópa launa­fólks. Þau lögði fram gagntil­boð á föstu­dag þar sem komið var „til móts við kaup­hækk­­­un­­­ar­­­boð Sam­­­taka atvinn­u­lífs­ins, með því skil­yrði að yfir­­­völd setji fram og standi við skatt­­­kerf­is­breyt­ing­­­ar.“ Sam­tök atvinnu­lífs­ins höfn­uðu gagntil­boð­inu.

Það mun mikið mæða á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra á næstu misserum vegna stöðunnar á vinnumarkaði. Mynd: Bára Huld Beck.
Það mun mikið mæða á Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á næstu miss­erum vegna stöð­unnar á vinnu­mark­aði. Mynd: Bára Huld Beck.

Á laug­ar­dag var haft eftir Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, í Morg­un­blað­inu að það virt­ist fyr­ir­liggj­andi að deilur á vinnu­mark­aði myndu ekki leys­ast án umtals­verðrar aðkomu stjórn­valda. Val­kostir stjórn­valda væru skýr­ir: ann­að­hvort verði þau „með vinnu­mark­að­inn í fang­inu út kjör­tíma­bilið eða fá vinnu­frið og byggja upp betra, rétt­lát­ara og stöðugra sam­fé­lag.“

Ríkisstjórnin mögulega ekki að spila öllu út

Við­mæl­endur Kjarnans vilja ekki úti­loka að þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin kynnti í morgun, og stór hluti verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hefur þegar bein­línis hafnað sem nægj­an­legum, geti tekið breyt­ingum.

For­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafi ítrekað sagt að aðkoma hennar að deilum á vinnu­mark­aði eigi að hefj­ast þegar ein­hvers konar sátt hafi náðst milli full­trúa deilenda, en að ríkið eigi ekki að leysa deil­una eitt og sér.

Því sé það mat sumra við­mæl­enda innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að rík­is­stjórnin sé ekki að spila út öllum spil­unum sínum núna.

Hafi þeir rangt fyrir sér, og að þessar til­lögur sem kynntar voru í morgun, feli í sér allt sem rík­is­stjórnin ætlar að leggja fram til lausn á vinnu­mark­aðs­deil­unni liggur fyrir að líkur á harð­ari átökum, með mögu­legum verk­föllum, hafa auk­ist veru­lega í dag.

Rík­is­stjórnin mun kynna skatta­til­lögur sínar á blaða­manna­fundi klukkan 17 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár