Hálfur milljaður útistandandi vegna umferðarlagabrota

Tæplega hálfur millj­aður er útistand­andi í sektir vegna umferð­ar­laga­brota sam­tals frá árunum 2015 til 2018 eða 465.678.317 krónur.

Tæplega hálfur millj­aður er útistand­andi í sektir vegna umferð­ar­laga­brota sam­tals frá árunum 2015 til 2018 eða 465.678.317 krónur. Eldri ógreiddar sektir eru tæp­lega 188 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Birgis Þór­ar­ins­sonar um inn­heimtu sekta vegna umferð­ar­laga­brota erlendra ferða­manna.

Í svari segir að sektir vegna umferð­ar­laga­brota séu hvorki flokk­aðar eftir rík­is­fangi né teg­undum brota. Því er ekki hægt að svara spurn­ing­unni um hver álögð fjár­hæð sekta vegna umferð­ar­laga­brota erlendra ferða­manna var á þessum árum, nið­ur­brotið á helstu flokka slíkra sekta.

Inn­heimtu­hlut­fallið á þessu ári er 62,69 pró­sent en hefur á síð­ustu þremur árum verið um 80 til 90 pró­sent. Sektir fyrri ára hafa inn­heimtu­hlut­fallið 97,66 pró­sent.

Drátt­ar­vextir falla ekki á sektir og ekki heldur annar útlagður kostn­aður. Gert er ráð fyrir að eitt árs­verk fari í inn­heimtu hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Vest­ur­landi, en samn­ingar eru í gildi um inn­heimtu sekta og sak­ar­kostn­aðar milli Norð­ur­land­anna og fer einn starfs­maður Inn­heimtu­mið­stöðvar sekta og sak­ar­kostn­aðar með þau verk­efni auk ann­arra verk­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár