Aflandskrónueigendur sem neita að fara

Hluti þeirra sjóða sem eiga aflandskrónur hér­lendis hafa staðið af sér afar­kosti íslenskra stjórn­valda. Og þeir hafa mok­grætt á því. Nú bíða þeir eftir því að höftum á aflandskrónum verði lyft, og allt lítur út fyrir að það verði gert á þessu ári.

Föstu­dag­inn 23. júní til­kynnti Seðla­banki Íslands um loka­upp­gjör um kaup á aflandskrónum. Nið­ur­staðan var sú að eig­endur alls 88 millj­arða króna í slíkum krónum sögðu nei takk við til­boði Seðla­bank­ans. Þeir vilja frekar geyma krón­urnar hér­lendis.

Þann 12. mars til­kynnti Seðla­bank­inn að hann hefði náð sam­komu­lagi við hluta aflandskrónu­eig­enda um að kaupa krón­urnar af þeim á geng­inu 137,5 krónur fyrir hverja evru. Eigendur um 90 millj­arða króna tóku því til­boði en eig­endur um 110 millj­arða kóna höfn­uðu því. Seðla­bank­inn bauð þá eft­ir­legukind­unum sömu kjör og ítrek­aði það boð tví­vegis, þann 4. apríl og 5. maí. Frest­ur­inn til að ganga að til­boð­inu rann út 15. júní og þá kom í ljós að Seðla­bank­anum hafði ein­ungis tek­ist að kaupa 22,4 millj­arða króna í við­bót. Eigendur þorra þeirra aflandskróna sem enn eru í íslensku hag­kerfi, alls 88 millj­arða króna, höfn­uðu til­boð­inu.

Afarkostir sem ekki var staðið við

Spólum enn lengra til baka. Þegar íslensk stjórn­völd til­kynntu um stór skref í átt að losun hafta sum­arið 2016 var dig­ur­barka­lega sagt að meðal ann­ars ætti að leysa aflandskrónu­vand­ann. Hann var þá um 319 millj­arðar króna. Þeir afar­kostir voru þannig að annað hvort myndu þeir sætta sig við það gengi sem Seðla­banki Íslands bauð þeim fyrir krón­urnar þeirra eða að eignir þeirra yrðu settar inn á nær vaxta­lausa reikn­inga í refs­ing­ar­skyni og þeim færu aft­ast í röð­ina þegar kæmi að því að fá að yfir­gefa íslenskt efna­hags­kerfi eftir losun hafta.

Í kjöl­farið var hlaðið í aflandskrón­u­út­boð þar sem eig­endum krón­anna, sem voru að mestu banda­rískir fjár­fest­ing­ar­sjóðir, bauðst að selja þær á 190 krónur fyrir hverja evru. Skráð gengi evru var á þeim tíma 138,6 krónur og því var ljóst að ríkið ætl­að­ist til þess að við­kom­andi sjóðir myndu taka á sig tölu­vert högg gegn því að fá að fara út með krón­urnar.

Skemmst er frá því að segja að flestir aflandskrónu­eig­end­urnir neit­uðu að taka þátt. Líkt og sagt er á póker­máli þá „köll­uðu“ þeir hótun íslenskra stjórn­valda og ákváðu frekar að spila áfram til að sjá hverju það myndi skila þeim. Fjár­hæð sam­þykktra til­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­arðar króna sem þýddi að þorri eig­enda krón­anna fannst til­boðið ekki ásætt­an­legt.

Ákvörðun sem margborgaði sig

Þann 12. mars 2017 var svo blásið til blaða­manna­fundar. For­ingjar nýrrar rík­is­stjórnar, sem hafði tekið við völdum tveimur mán­uðum áður, til­kynntu hróð­ugir að þeir ætl­uðu að afnema höft. Það var var reyndar aðeins ofsögum sagt, þótt höft hafi verið losuð að mestu þá eru slík enn við lýði, t.d. tak­mark­anir á ráð­stöfun aflandskróna.

Samtímis var til­kynnt um að samið hefði verið við hluta aflandskrónu­eig­enda um að kaupa krónur þeirra á 137,5 krónur á hverja evru. Um var að ræða eig­endur um 90 millj­arða króna. Ljóst var að ákvörðun þeirra um að hafna þátt­töku í útboð­unum sem fram fóru sum­arið 2016 hafði marg­borgað sig. Ávinn­ingur þeirra í evrum talið var 38 pró­sent. Þ.e. þeir fengu um 38 pró­sent fleiri evrur fyrir krón­urnar sínar en þeir hefðu fengið ef sjóð­irnir hefðu tekið til­boði Seðla­banka Íslands í fyrra­sumar. Þeir höfðu þegar mok­grætt á því að hafna til­boð­inu.

Raunar hefur krónan styrkst svo mikið síðan þá að skráð gengi Seðla­banka Íslands á þeim tíma sem útboðið fór fram, sem var 16. júní 2016, var 138,6 krónur gagn­vart evru. Það þýddi að vog­un­ar­sjóð­irnir sem eiga þessar krónu­eignir fengu fleiri evrur fyrir krón­urnar sínar en ef þeir hefðu fengið að skipta þeim í banka síð­ast­liðið sumar.

Líklega eitthvað tilkynnt á þessu ári

Ekki voru þó allir til­búnir til að taka þessu til­boði. Eigendur um 105 millj­arða króna sögðu áfram beint út nei, við munum ekki semja um að gefa afslátt af eignum okkar. Krónan hafði enda styrkst mikið og vænt­ingar eru til þess að sú styrk­ing haldi áfram. Erfitt er að sjá hvar í heim­inum þessir fjár­festar gætu fengið betri ávöxtun á pen­ing­anna sína og þess vegna voru þeir bara til­búnir til að bíða áfram. Sjá hvað myndi gerst. Í versta falli tækju þeir út meiri geng­is­styrk­ingu.

Á blaða­manna­fund­inum hróð­uga þann 12. mars var greint frá því að þeim aflandskrónu­eig­endum sem ekki höfðu tekið til­boði stjórn­valda stæði til boða að taka því í tvær vikur til við­bótar. Þeir gætu sem sagt selt krón­urnar sínar á geng­inu 137,5 krónur á hverja evru.

Þegar þær tvær vikur voru liðnar var tíma­frest­ur­inn lengdur. Og á end­anum varði hann til 15. júní, eða í rúma þrjá mán­uði. Þessi skortur á stað­festu var ekki til að auka trú­verð­ug­leika Seðla­banka Íslands í mál­inu. Á end­anum skil­aði þessi bið litlu. Flestir aflandskrónu­eig­end­urnir sem ósamið var við sögðu áfram nei takk. Enn standa eftir 88 millj­arðar króna af aflandskrónum og eru ekk­ert að flýta sér út úr íslenskri efna­hags­lög­sögu.

Og þeir fengu ágætis stað­fest­ingu á því að þeir þyrftu ekk­ert að vera að hugsa um til­boð stjórn­valda, og það að gefa eftir hluta eigna sinna, þann 9. maí þegar Guðrún Þor­leifs­dóttir, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sagði í sam­tali við Reuters að það væri nauð­syn­legt að breyta lögum til að losa um þær aflandskrónur sem enn sitja eftir. „Líklega mun rík­is­stjórnin til­kynna um eitt­hvað síðar á þessu ári,“ sagði Guðrún. Í ljósi þess að skráð gengi evru hjá Seðla­banka Íslands er um 118 krónur er ólík­legt að aflandskrónu­eig­endur sam­þykki til­boð um að gefa 16,5 pró­sent af eignum sínum eftir þegar fyrir liggur að stjórn­völd ætli að losa um hömlur á þær síðar á þessu ári.

Pólitískt mál

Aflandskrónu­með­ferðin er líka hápóli­tískt mál. Daginn eftir hafta­los­un­ar­blaða­manna­fund­inn, þann 13. mars 2017, hélt Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ræðu á Alþingi. Þar sagði hann að mög­u­­legt hefði verið að þurrka upp aflandskrón­u­vand­ann í kringum útboðið sem Seðla­­bank­inn hélt um mitt síð­­asta ár, með því að lækka gengið aðeins. Það hafi ekki verið gert og nú sé hægt að sjá það glöggt að skyn­­sam­­legt hefði verið að gera það. „Í ráðu­­neyt­inu heyri ég að lík­­­legt sé að á þeim tíma hefði verið hægt að þurrka snjó­­hengj­una svo­­nefndu upp að mestu leyti ef gengið hefði verið á milli 165 og 170 krónur á evru. Nú sjáum við glöggt að skyn­­sam­­legt hefði verið að ljúka við­­skipt­unum á því gengi. Þá­ver­andi stjórn­­völd ákváðu að gera það ekki. Kannski vegna þess sjón­­­ar­miðs að með því hefði verið gert allt of vel við aflandskrón­u­eig­end­­ur. Eftir á sjá allir að Íslend­ingar hefðu grætt mjög mikið á því að ljúka dæm­inu þá, en menn misstu af því tæki­­færi.“

Þetta er póli­tískt við­kvæmt í ljósi þess að fyr­ir­renn­ari Bene­dikts í starfi er Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra og sá sem leiðir rík­is­stjórn­ina ásamt Benedikt.

Björn Valur Gíslason, vara­for­maður Vinstri grænna, lagði skrif­lega fyr­ir­spurn fyrir Benedikt um málið sem hann svar­aði í byrjun maí. Þar sagði hann enga rann­sókn vera hafna á því af hverju Bjarni hafi ekki „nýtt tæki­færið“ í fyrra til að leysa vand­ann á þeim for­sendum sem Bene­dikt tal­aði um í ræðu sinni 13. mars. Hann sagði enga slíka rann­sókn heldur vera í far­vatn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár