Mynd: Pexels.com

Vogunarsjóðir mokgræða á nýju tilboði Seðlabankans

Það marg­borg­aði sig fyrir vog­un­ar­sjóð­ina og hina fjár­fest­ana sem áttu aflandskrónur að hafna því að taka þátt í útboði Seðla­banka Íslands í fyrra. Þeir fá nú 38 pró­sent fleiri evrur fyrir krón­urnar sínar.

Þeir vog­un­ar­sjóðir sem neit­uðu að taka þátt í aflandskrón­u­út­boði Seðla­banka Íslands í fyrra hafa hagn­ast mjög á ákvörðun sinni. Í því útboði bauðst þeim að borga 190 krónur fyrir hverja evru en sam­kvæmt nýju sam­komu­lagi sem Seðla­banki Íslands hefur gert við eig­endur krónu­eign­anna þurfa þeir ein­ungis að greiða 137,5 krónur á hverja evru. Ávinn­ingur þeirra, í evrum talið, er um 38 pró­sent. Þ.e. þeir fá um 38 pró­sent fleiri evrur fyrir krón­urnar sínar en þeir hefðu fengið ef sjóð­irnir hefðu tekið til­boði Seðla­banka Íslands í fyrra­sumar.

Raunar hefur krónan styrkst svo mikið síðan þá að skráð gengi Seðla­banka Íslands á þeim tíma sem útboðið fór fram, sem var 16. júní 2016, var 138,6 krónur gagn­vart evru. Það þýðir að vog­un­ar­sjóð­irnir sem eiga þessar krónu­eignir fá nú fleiri evrur fyrir krón­urnar sínar en ef þeir hefðu fengið að skipta þeim í banka síð­ast­liðið sumar.

Þrátt fyrir þetta hafa ekki allir erlendir eig­endur krónu­eigna sam­þykkt að fara út úr íslensku hag­kerfi á þeim kjörum sem Seðla­banki Íslands býður. Alls hafa eig­endur 90 millj­arða króna sam­þykkt til­boð Seðla­banka Íslands en eig­endur 105 millj­arða króna hafa ekki tekið því til­boði. Að minnsta kosti ekki ennþá. Þar gæti spilað inn í vænt­ingar um að íslenska krónan muni styrkj­ast enn meira eftir að höftum verður lyft að fullu. Þeir gætu því tekið út enn meiri geng­is­hagnað en þeim býðst nú ef svo fer og leið opn­ast fyrir þá út úr íslensku efna­hags­kerfi.

Hótunin reyndist innihaldslítil

Íslensk stjórn­völd voru dig­ur­barka­leg þegar þau til­kynntu um stór skref í átt að losun hafta snemma síð­asta sumar. Þá var boðað að í aðdrag­anda skrefa sem átti að stíga til að losa um höft á ein­stak­linga og fyr­ir­tæki myndu aflandskrónu­eig­endum, að mestu banda­rískir vog­un­ar­sjóðir, bjóð­ast afar­kostir. Þeir yrðu þannig að annað hvort myndu þeir sætta sig við það gengi sem Seðla­banki Íslands bauð þeim fyrir krón­urnar þeirra eða að eignir þeirra yrðu settar inn á nær vaxta­lausa reikn­inga í refs­ing­ar­skyni og þeim færu aft­ast í röð­ina þegar kæmi að því að fá að yfir­gefa íslenskt efna­hags­kerfi eftir losun hafta. Stærstir á meðal þess­ara sjóða eru banda­rísku sjóð­irnir Eaton Vance Corp. og Autonomy Capital LP.

Flestir aflandskrónu­eig­end­urnir sáu í gegnum þessar hót­anir og neit­uðu að taka þátt. Heild­ar­um­fang vand­ans á þeim tíma þegar útboðin, þau voru tvö, fóru fram var 319 millj­arðar króna. Fjár­hæð sam­þykktra til­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­arðar króna sem þýddi að þorri eig­enda krón­anna fannst til­boðið ekki ásætt­an­legt.

Þess í stað fólu sjóð­irnir lög­manni sínum að kanna grund­völl fyrir mögu­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu auk þess sem þeir kvört­uðu til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­setn­ingar sem sam­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí 2016 og þeir töldu að fæli í sér eign­ar­upp­töku og brot á jafn­ræð­is­reglu.

Keyptu auglýsingar gegn íslenskum stjórnvöldum

Þeir gerðu raunar ýmis­legt annað líka. Eða rétt­ara sagt keyptar hug­veitur á þeirra vegum. Á síð­asta ári, og sér­stak­lega í aðdrag­anda kosn­inga, fóru aug­lýs­ing­arnar að birt­ast um afstöðu íslenskra stjórn­valda gagn­vart erlendum fjár­festum. Aug­lýs­ing­arnar voru frá fyr­ir­bæri sem kallar sig Iceland Watch, og er rekið af hug­veit­unni Institute for Liberty.

IcelandWatch.org verk­efnið vakti fyrst athygli hér­­­lendis þegar það keypti birt­ingar á Twitter til að koma boð­­skap sínum á fram­­færi. Aug­­ljóst var að til­­­gang­­ur­inn var að gæta hags­muna erlendra kröf­u­hafa sem neit­uðu að taka þátt í aflandskrón­u­­upp­­­boði Seðla­­banka Íslands.

Þann 14. októ­ber 2016 birt­ust síðan heil­síðu­aug­lýs­ingar í bæði Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu frá Iceland Watch. Aug­lýs­ing­arnar birt­ust einnig á á dönsku í dönskum fjöl­miðlum, m.a. við­­skipta­­blað­inu Börsen, og á ensku í banda­rískum fjöl­mið­l­­um.

Í aug­lýs­ing­unni voru Íslend­ingar varaðir við því að mis­muna alþjóða­fjár­fest­um. Þar sagð­i:„Við höfum séð þetta áður­. Þegar kæru­­laus stjórn­­völd fyr­ir­­gera rétt­­ar­­rík­­inu hverfur erlend fjár­­­fest­ing og lands­­menn gjalda fyrir það. Á Íslandi mis­­muna ný lög alþjóð­­legum fjár­­­festum og neyða þá til að selja skulda­bréf sem ­tryggð eru í krónum með miklum afslætti, eða til að láta eignir sínar á reikn­inga sem ber­a enga vext­i. ­Tölum skýrt: Sví­virð­i­­leg ný lög lands­ins mis­­muna fjár­­­festum eftir þjóð­erni þeirra. Frekar en að halda áfram við­ræðum við alþjóð­­lega fjár­­­festa sem reynt hafa að ná ­samn­ingum í góðri trú hefur Ísland stillt þeim upp við vegg.“

Daganna fyrir kosn­ing­arnar í lok októ­ber 2016 birti Iceland Watch svo nýja aug­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu. Nú var hún með mynd af Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og spurt hver „greiði fyrir spill­ingu og mis­mun­un­ar­reglur á Íslandi“ og sagt að les­endur gerðu það. Þar var einnig spurt hvort Sturla Páls­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­bank­an­um, hafi „notað þekk­ingu sína á nýlega til­kynntri lög­gjöf um gjald­eyr­is­höft sem mis­munar erlendum fjár­festum um að stunda inn­herj­a­við­skipti“.

Í aug­lýs­ing­unni var því haldið fram að mis­mun­un­ar­stefna íslenskra íslensku gjald­eyr­is­haft­anna hafi kostað hvern Íslend­ing á bil­inu 1,7 til 3,1 milljón króna. Þetta hafi komið fram í „nýrri rann­sókn“ sem er þó ekki til­tekið hver hafi fram­kvæmt eða hvern­ig.

Iceland Watch reyndi einnig að fá aug­lýs­ing­una birta í Frétta­blað­inu en blaðið neit­aði að gera það.

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál fund­aði sér­stak­lega um málið nokkrum dögum áður en að kosn­ing­arnar fóru fram. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sat líka þá fundi. Í yfir­lýs­ingu sem ráð­herra­nefnd­in sendi frá sér 28. októ­ber 2016, dag­inn fyrir þing­kosn­ingar, var þeim rang­færslum sem birt­ust í aug­lýs­ing­unum mót­mælt. „Ljóst er að erlendir aðil­ar, sem telja sig hafa hags­muni af því að ráð­stöf­unum um með­ferð aflandskróna verði breytt, standa að baki þessum aug­lýs­ing­um, þar sem einnig er vegið með ósmekk­legum hætti að starfs­heiðri til­tek­inna starfs­manna Seðla­banka Íslands. Ein­stakir stærri aflandskrónu­eig­endur hafa að und­ir­förnu freistað þess að hafa áhrif á alþjóð­legar stofn­an­ir, láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki og almenna fjöl­miðlaum­fjöllun en orðið lítið ágengt.“

Það þarf neyð til að beita neyðarrétti

En aflandskrónu­eig­end­unum varð þrátt fyrir allt ágengt. Fyrir skemmstu var greint frá því að full­trúar íslenskra stjórn­valda hefðu fundað með full­trúum sjóð­anna í New York til að reyna að höggva á hnút­inn. Bara það að íslensk stjórn­völd, sem höfðu ítrekað sagt að ekki yrði kvikað frá þeirri hörðu línu sem lögð hafði verið gagn­art vog­un­ar­sjóð­unum, vildu hitta þá til að ræða lausnir var sigur í sjálfu sér.

Ríkisstjórnin sem tók við 2013 skilgreindi sig að mörgu leyti út frá þeirri hörku sem hún taldi sig hafa sýnt vögunarsjóðum. Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leiddu þá ríkisstjórn.
Rík­is­stjórnin sem tók við 2013 skil­greindi sig að mörgu leyti út frá þeirri hörku sem hún taldi sig hafa sýnt vög­un­ar­sjóðum. Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son leiddu þá rík­is­stjórn.

Batnandi efna­hags­að­stæður hér­lendis, og mikil styrk­ing krón­unnar, hefur gert það að verkum að erf­ið­ara og erf­ið­ara hefur verið að rétt­læta sér­tækar laga­setn­ingar gagn­vart einum hópi. Heim­ildir Kjarnans herma að fleiri og fleiri innan stjórn­sýsl­unnar séu komnir á þá skoðun að slíkar hömlur gætu mögu­lega ekki stað­ist lög, en laga­setn­ing sem Alþingi setti í aðdrag­anda aflandskrón­u­út­boð­anna í fyrra var rök­studd með því að aðgerð­­irnar þættu nauð­­syn­­legar til að stuðla að greiðslu­­jafn­­vægi í íslenska efna­hags­­kerf­inu og verja stöð­ug­­leika lands­ins.

Það þarf að vera neyð ef setja á neyð­ar­lög. Og land sem var með 7,2 pró­sent hag­vöxt í fyrra, sem hefur upp­lifað stans­lausan háan vöxt árum saman, sem er búið að semja við kröfu­hafa bank­anna um að gefa eftir hluta inn­lendra eigna þeirra gegn því að fá aðganga að öðrum eignum, sem er komið með gott láns­hæf­is­mat og mjög við­ráð­an­lega rík­is­skulda­stöðu, og upp­lifir tug­pró­senta styrk­ingu á gjald­miðli sínum á mjög skömmu tíma­bili, getur illa borið fyrir sig neyð til að rök­styðja sér­tækar aðgerðir. Þessa stöðu lásu vog­un­ar­sjóð­irnir og munu nú njóta árangur þol­in­mæði sinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið undanfarið ár