Höftin afnumin – gerðu samkomulag við aflandskrónueigendur

Gert var sam­komu­lag við aflandskrónu­eig­endur sam­hliða því að höftin verða afnumin á ein­stak­linga, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði.

Öll höft á almenn­ing, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði verða afnumin á þriðju­dag­inn. Fjár­magns­flæði að og frá land­inu verður gefið frjálst og hægt verður að fjár­festa erlendis án tak­mark­ana. Þetta kom fram í máli Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi hans, Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra og Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra í dag.

Samhliða þessu var gert sam­komu­lag við aflandskrónu­eig­endur. Seðla­bank­inn mun kaupa stóran hluta aflandskrónu­eigna. Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra sagði frá því að til­boð til stærstu aflandskrónu­eig­end­anna hefði verið sent seint á föstu­dag og nú hafi um það bil helm­ingur þeirra sagst ætla að taka til­boð­inu.

Seðla­bank­inn bauð þeim að kaupa krónur þeirra á 137,5 krónur á hverja evru, en í útboð­inu sem Seðla­bank­inn hélt í júní í fyrra, og þessir eig­endur tóku ekki þátt í, var það 190 krónur á hverja evru. 137,4 krónur er um 20% yfir skráðu gengi evr­unnar síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Þá er búið að skipa þriggja manna verk­efn­is­stjórn til að end­ur­skoða pen­inga- og gjald­mið­ils­stefnu Íslands. Ásgeir Jónsson, Ásdís Krist­jáns­dóttir og Illugi Gunn­ars­son hafa verið valin í þá nefnd.

Á næstu mán­uðum verða lög um gjald­eyr­is­mál end­ur­skoðuð, en nú verður reglum Seðla­bank­ans breytt.

Aflandskrónu­eignir nema um 195 millj­örðum króna, en munu við kaup Seðla­bank­ans nú á eign­unum verða um 105 millj­arðar króna. Öllum aflandskrónu­eig­endum verður boðið að eiga við­skipti við Seðla­bank­ann á sama gengi og sam­komu­lagið hljóðar upp á næstu tvær vik­urnar. Vænt­ingar standa því til þess að eft­ir­stæð fjár­hæð aflandskrónu­eigna geti lækkað enn frekar á næstu vikum. Þetta kom fram í máli Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra og í frétta­til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Kjarninn mun fjalla nánar um afnám hafta í dag og næstu daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár