Már: Höldum stöðunni þar til frekari tillögur um losun hafta koma

„Það stendur til að bjóða þessum aflandskrónu­eig­endum fjár­fest­inga­kosti sem draga þá veru­lega úr líkum á óstöð­ug­leika við losun fjár­magns­hafta, annað hvort að minnka hengj­una þegar frekar eða binda hana með ein­hverjum hætti,“ segir Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri um breyt­ingar á und­an­þágu­listum og reglum Seðla­banka Íslands vegna gjald­eyr­is­mála.

Eins og greint var frá í dag hefur und­an­þágum og reglum bank­ans verið breytt til að búa í hag­inn fyrir frek­ari skref að losun fjár­magns­hafta. Und­an­þágur bank­ans tak­markast nú við rík­is­víxla og eitt rík­is­skulda­bréf (RIKB 15 0408). Þessi bréf eru enn und­an­þegin tak­mörk­unum laga um gjald­eyr­is­mál. Eigendur þeirra skulda­bréfa sem eru ekki lengur með und­an­þágu mega selja þau, en mega aðeins fjár­festa í þeim bréfum sem eru enn á und­an­þágu­lista Seðla­bank­ans.

Aðgerð­irnar snúa því aðeins að aflandskrónu­eignum, sem nema nú tæp­lega fimmtán pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu.

Már segir breyt­ing­arnar miða að því að halda stöð­unni fastri þar til til­lögur um frek­ari losun hafta koma fram, svo lands­lagið breyt­ist ekki of mikið. „Hins vegar það að við segjum að það er verið að varð­veita skil­virkni skulda­bréfa­mark­aðar. Við erum að tryggja að þeir virki eðli­lega og það sé eng­inn órói þar, ein­hver mikil við­skipti sem byggð­ust þá kannski á sögu­sögnum sem eru sannar eða ekki sannar. Þetta er eig­in­lega örygg­is­ráð­stöfun, und­ir­bún­ings­skref. Auðvitað væri ekki tekið und­ir­bún­ings­skref nema það væri búið að hugsa eitt­hvað hvað ger­ist næst, en ég get ekki upp­lýst meira um það að sinni,“ segir Már.

Aðspurður seg­ist Már ekki geta upp­lýst neitt um mögu­legt gengi sem þessum aflandskrónu­eig­endum mun bjóð­ast. Þá segir hann ekki verið að vinna með neinn tímara­mma á þessar aðgerðir. „Eins fljótt og mögu­legt er, en ekki fyrr en mögu­legt er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár