Endurkjör Rouhani og opnun Íran

Hassan Rouhani vann stór­sigur í for­seta­kosn­ing­unum í Íran um síð­ustu helgi. Rouhani, sem er umbótasinni, hefur heitið því að halda áfram opnun Íran eftir tíma­móta­samn­inga við Banda­ríkin um afnám versl­un­ar­þving­ana gegn stöðvun á kjarn­orku­á­ætlun lands­ins.

Hassan Rouhani, nýkjörinn forseti Íran.
Hassan Rouhani, nýkjör­inn for­seti Íran. Mynd: EPA

Strangar reglur gilda fyrir kosn­ingar í land­inu og þurfa allir fram­bjóð­endur að fá sam­þykki vernd­ara­ráðs­ins (e. Guardian Council) svo­kall­aðs, sem sam­anstendur af tólf guð­fræð­ingum, til að geta boðið sig fram. Af sextán hund­ruð manns sem skráðu sig í fram­boð að þessu sinni voru ein­ungis sex sam­þykktir af ráð­inu. Rouhani bar sigur af hólmi í for­seta­kosn­ing­unum eftir að hafa hlotið 57% atkvæða, afger­andi fleiri en þau 38% sem meg­in­and­stæð­ingur hans, Ebrahim Raisi, hlaut. Kjörsókn var heil 73% og því ljóst að Rouhani mun halda áfram að gegna næst­valda­mesta emb­ætti Írans næstu fjögur árin en það er mikil tog­streita sem bíður hans bæði inn­an­lands sem utan.

Æðsti klerkur klerka­stjórn­ar­innar í Íran, Aya­tollah Ali Khamenei, er tal­inn hafa stutt harð­línu­fram­bjóð­and­ann Raisi í kosn­ing­unum en fyr­ir­hug­aðar umbætur Rouhani munu þurfa stuðn­ing Khamenei til að ganga í gegn. Hins vegar er ekki ólík­legt að afdrifa­ríkar breyt­ingar muni eiga sér stað í æðstu valda­stétt lands­ins á næsta kjör­tíma­bili. Khamenei er sjö­tíu og sjö ára gam­all og gekk undir upp­skurð fyrir krabba­mein í blöðru­háls­kirtli árið 2014. Ef Khamenei hverfur frá mun tíma­bundið ráð gegna emb­ætti hans en Rouhani er einn þriggja emb­ætt­is­manna sem situr í ráð­inu. Þá mun eft­ir­maður Khamenei verða kos­inn af svoköll­uðu Sér­fræð­inga­ráði (e. Assembly of Experts) en bæði Rouhani og Raisi eru með­limir þar og taldir eiga góða mögu­leika á emb­ætt­inu. Nýyf­ir­stöðnu for­seta­kosn­ing­arnar gáfu því Rouhani ekki ein­ungis fjögur ný ár heldur voru þær einnig mik­il­væg ummerki um fram­tíð írönsku bylt­ing­ar­innar.

Á síð­ustu for­seta­tíð Rouhani veitti kjarn­orku­samn­ingur hans við þáver­andi for­seta Banda­ríkj­anna, Barack Obama, Írönum marga millj­arða Banda­ríkja­dali sem áður höfðu verið „frystir“ sem hluti af við­skipta­þving­unum gegn land­inu, og hefur Rouhani náð að lækka 40% verð­bólgu niður í 8%. Samkvæmt opin­berum tölum jókst atvinnu­leysi hins vegar úr 10% í 12,7% á for­seta­tíð hans og mun atvinnu­sköpun vera for­gangs­at­riði næstu fjögur árin.

Lyk­ill­inn að auknum hag­vexti og atvinnu­sköpun fyrir Íran til skamms tíma veltur mikið á því hvernig landið nær að end­ur­reisa olíu­iðnað lands­ins. Olíu­fram­leiðsla í Íran hefur auk­ist í kjöl­far afnáms við­skipta­þving­ana og er nú um 3,8 millj­ónir tunna á dag, jafn mikil og hún var áður en við­skipta­þving­un­unum var komið á. Áfram­hald­andi fram­leiðslu­aukn­ing mun hins vegar krefj­ast nýrrar fjár­fest­ingar erlendis frá en það verður lyk­il­at­riði í efna­hags­stefnu Rouhani á þess­ari for­seta­tíð. Erlendir fjár­festar anda léttar í kjöl­far end­ur­kjörs Rouhani gegn harð­línu­fram­bjóð­endum en skil­virkni stefnu Rouhani sem miðar að því að styrkja tengsl við umheim­inn og laða að fjár­fest­ingar mun velta mikið á því hvort Banda­ríkin munu afnema eft­ir­stand­andi við­skipta­þving­anir sem koma í veg fyrir fjár­fest­ingar frá banda­ríska banka­kerf­inu.

Bylur hæst í tómri tunnu?

Daginn eftir að stuðn­ings­menn Rouhani fögn­uðu sigri hans í kosn­ing­unum á götum úti flutti Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, ræðu í opin­berri heim­sókn sinni til Sádi-Arabíu þar sem hann kall­aði eftir auk­inni ein­angrun Íran í alþjóða­sam­skiptum. Banda­rískir og sádi-arab­ískir ráða­menn keppt­ust um að for­dæma stuðn­ing rík­is­stjórnar Íran við hryðju­verka­sam­tök og þróun eld­flauga­vopna og köll­uðu eftir því að Íran dragi úr ítökum sínum á átaka­svæðum í Sýrlandi, Írak og Jemen. Andúð Donald Trump á Íran sýndi sig að miklu leyti í vali hans á Sádí-Arabíu sem áfanga­stað fyrstu opin­beru heim­sóknar sínar erlendis en Íran er lík­lega skýrasta dæmið um utan­rík­is­mál þar sem Trump er ósam­mála for­vera sínum, Barack Obama. Trump fyr­ir­lítur kjarn­orku­samn­ing­inn og sagði í ræðu í Ísrael, öðrum áfanga­stað utan­rík­is­ferðar sinnar, að Íran hafi sýnt óþakk­læti eftir að hafa náð frá­bærum kjörum í samn­ingnum við Obama með því að halda stuðn­ingi sínum við hryðju­verka­sam­tök áfram.

Van­þóknun Trump á Íran hefur þó hingað til fyrst og fremst sýnt sig í orðum frekar en gjörðum og verður að hluta til að skoða í sam­hengi þess að þókn­ast gest­gjöfum sínum. Trump við­hélt stefnu Obama með því að und­ir­rita vopna­sölu­samn­ing að and­virði 110 millj­arða Banda­ríkja­dala við Sádí-Arabíu og virð­ist vera að Trump reyni að nota sterk tengsl sín við stjórn­völd Ísraels og Sádí-Arabíu með andúð gagn­vart írönskum stjórn­völdum sem sam­nefn­ara sem ákveðnar stoðir í Mið­aust­ur­landa­stefnu sinni og verk­færi til að hraða hugs­an­legum frið­ar­samn­inga­við­ræðum Ísraela og Palest­ínu­manna.

Ljóst er hins vegar að Íran er ekki eins jað­ar­sett alþjóð­lega í dag og það var í stjórn­ar­tíð Mahmoud Ahma­di­nejad 2005-2013. Önnur vest­ræn ríki á borð við Þýska­land undir stjórn Angela Merkel, Frakk­land undir stjórn Emmanuel Macron, og Japan undir stjórn Shinzo Abe líta ekki ógn­ina frá Íran jafn alvar­legum augum og Trump og munu að öllum lík­indum vilja halda áfram styrk­ingu við­skipta­tengsla við Íran á næstu árum. Skort­ur­inn á sam­stöðu vest­rænna ríkja í við­skipta­stefnu gagn­vart Íran mun tak­marka svig­rúm Trump til að brjóta eða breyta kjarn­orku­samn­ingnum.

Margt bendir því til að næstu fjögur ár verði fjörug fyrir Rouhani í emb­ætti for­seta en hann hefur fleiri spil á hendi en var til­fellið fyrir fjórum árum til að hraða opnun lands­ins til fram­búðar og mæta auknum vænt­ingum íranskra kjós­enda. Erfið tengsl við Trump gætu gert honum erfitt fyrir, sér­stak­lega þegar kemur að því að skapa fyr­ir­sjá­an­legt við­skiptaum­hverfi til að laða að fjár­fest­ingar, en þróun síð­ustu ára sýna skýrt að Íran er ekki lengur hluti af „öxli hins illa“ í augum Vest­ur­landa; við­horf Trump er að mörgu leyti und­an­tekn­ingin frekar en reglan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár