Slush Play: Hvernig ætlarðu að láta þinn leik skara fram úr?

Fjár­festar í leikja­iðn­aði leita helst að nýjum hug­myndum og góðum plönum um það hvernig skal ná til mark­að­ar­ins. „Að gera ráð fyrir því að Apple dreifi leiknum þínum er ekki góð mark­aðs­stefna,“ sagði Samuli Syvá­huoko frá Helsinki Gameworks á leikja­ráð­stefn­unni Slush Play Reykja­vík í dag.

Ráð­stefnan Slush Play Reykja­vík fór fram í Gamla bíói. Slush Play er leikja­ráð­stefna og hug­myndin á rætur að rekja til Finn­lands, þar sem árlega koma saman fjórtán þús­und ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki, fjár­festar og fjöl­miðlar til að ræða tæki­færi í leikja­iðn­aði.

Eitt af umræðu­efnum ráð­stefn­unnar var fjár­mögnun og tóku þrír íslenskir sér­fræð­ingar þátt í umræðum, þau Þor­steinn Frið­riks­son, for­stjóri Plain Vanilla, Ólafur Andri Ragn­ars­son, stjórn­ar­maður í Betware og Helga Valfells hjá NSA ventures og Nýsköp­un­ar­sjóðnum. Þá tóku fyrr­nefndur Samuli Syvá­huoko og Susan Meza Graham frá Paradox þátt í umræð­unum.

Ólafur Andri sagð­ist vera algjör­lega sam­mála því að ekki væri snið­ugt að gera ráð fyrir því að Apple dreifi leikjum manns. Hann sagð­ist mikið rann­saka það sem verður vin­sælt á þessum mark­aði. „Margir í leikja­iðn­að­inum eru að keppa um það sama, að vera með hug­mynd sem er ekki í mik­illi sam­keppni skiptir máli.“

Fjárfestasambönd mikils virði


Þor­steinn sagði tvo hluti skipta miklu máli fyrir hann þegar kemur að fjár­mögnun. „Í fyrsta lagi er það hóp­ur­inn og svo er það söluræðan.“ Smá­at­riðin sagði hann skipta miklu, fram­sögn, hug­mynd, sölupitchið og sú leið sem hóp­ur­inn fer inn á mark­að­inn. „Það er eitt af allra mik­il­væg­asta í leikja­iðn­aði. Því þú getur verið með góðan leik eða app, en fjöld­inn allur af góðum leikjum eru í gangi í dag. Hvernig ætlar þú að láta þinn leik skara fram úr í þessu fram­boði leikja?“

Ólafur Andri tók undir þetta og sagði mik­il­vægt að byrja að hugsa um „market stra­tegy“ um leið og og þróun hug­myndar fer af stað. Þessu var Helga Valfells einnig sam­mála. Hún benti einnig á sam­fé­lags­lega ábyrgð sem mik­il­vægt atriði. Ef leikir eru upp­byggi­legir og fræð­andi geti það skipt miklu máli. „Það skiptir mig einnig máli að fylgj­ast með fyr­ir­tækjum frá upp­hafi, sjá hvernig þau nota fjár­magn sitt. Ef fyr­ir­tæki hefur nýtt styrk sem það hefur hlotið þannig að það kemst á næsta stig gefur það vís­bend­ingu um hæfni teym­is­ins og þan­þol. Ef það er með­vitað um kostnað og veit hvað það þarf gefur það vís­bend­ingu um rekstr­ar­hæfni, sem skiptir miklu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár