Mynd: Samsett

Líkur á fjögurra flokka stjórn án Sjálfstæðisflokks minnka

Sú rík­is­stjórn sem er lík­leg­ust til að verða mynduð eftir kom­andi kosn­ingar er sú sem nú situr að völdum. Líkurnar á því að hægt verði að mynda fjög­urra flokka félags­hyggju­stjórn hafa dreg­ist saman und­an­farnar vikur.

Líkurnar á því að það verði hægt að mynda fjög­urra flokka rík­is­stjórn án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir kosn­ing­arnar 25. sept­em­ber hafa minnkað á síð­ustu rúmu tveimur vikum, sam­kvæmt kosn­ingspá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Þann 10. ágúst sýndi spáin að lík­urnar á því að hægt væri að mynda sam­steypu­stjórn Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ingar og Fram­sóknar væru 54 pró­sent. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni hafa þær líkur skroppið saman og eru nú 40 pró­sent. 
Líkurnar á því að hægt sé að mynda rík­is­stjórn sem sam­anstendur af sömu flokkum og sitja í meiri­hluta í Reykja­vík­ur­borg, sem eru Vinstri græn, Píratar, Sam­fylk­ing og Viðreisn, minnka líka. Þær voru 35 pró­sent fyrr í mán­uð­inum en mæl­ast nú 28 pró­sent.

Þegar tekið er til­lit til þess að bæði Sam­fylk­ing og Píratar hafa úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn að loknum kosn­ingum þá er eina þriggja flokka rík­is­stjórnin sem meiri en helm­ings­líkur eru á að verði hægt að mynda sú sem nú situr við völd: rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Líkurnar á að hægt verði að setja saman meiri­hluta­stjórn þess­ara þriggja flokka eru 60 pró­sent sem stendur sem eru nán­ast sömu líkur og voru 10. ágúst.

Líkur á sam­steypu­stjórnum mis­mun­andi flokka
Fjöldi þing­sætaDVBDBMDVVPSBVPSCDBMF
>=420.010.000.000.000.000.00
>=410.020.000.000.000.000.00
>=400.030.000.000.010.000.00
>=390.050.000.000.020.010.00
>=380.080.000.000.030.020.01
>=370.130.010.000.060.030.02
>=360.200.010.000.090.050.03
>=350.280.030.000.140.080.05
>=340.380.040.010.210.130.08
>=330.490.080.020.300.200.13
>=320.600.120.030.400.280.20
>=310.700.190.050.510.380.28
>=300.790.270.090.610.490.37
>=290.860.370.150.710.590.48
>=280.920.480.230.790.690.68
>=270.950.590.330.860.780.77
>=260.970.690.440.910.850.85
>=250.990.780.560.950.900.90
>=240.990.850.670.970.940.94
>=231.000.910.770.980.970.97
>=221.000.950.860.990.980.98

Til að ná minnsta mögu­lega meiri­hluta á Alþingi þarf 32 þing­menn.

Því virð­ist sú stjórn sem lík­leg­ust er til að stýra land­inu eftir kom­andi kosn­ingar, út frá þing­styrk og mögu­legum sam­starfsvilja flokka, vera nákvæm­lega sama rík­is­stjórn og ræður í dag, rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur.

100 þúsund sýndarkosningar

Líkurnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Til að fá þá nið­ur­stöðu sem er hér til umfjöll­unar er nýjasta kosn­inga­spáin notuð til að meta fylgi flokka eftir kjör­dæmum út frá fylgi þeirra í síð­ustu kosn­ingum.

Kjarninn birti nið­ur­stöðu nýj­ustu kosn­ing­ar­spár sinnar fyrir kom­andi kosn­ingar í lok lið­innar viku. Hægt er að sjá nið­ur­stöðu hennar hér að neðan.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 18 - 24. ágúst (vægi 35,4 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 13 – 23. ágúst (20,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 29. júlí-15. ágúst (vægi 44,4 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arnar sýna að litlar sem engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Sú sem er lík­leg­ust er stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna, en líkur á henni eru þrjú pró­sent.

Líkur Sósíalistaflokksins batna

Sós­í­alista­flokkur Íslands hefur verið á skriði í skoð­ana­könn­unum und­an­farið og það end­ur­spegl­ast í kosn­inga­spánni. Nú er mun ólík­legra en áður að flokk­ur­inn nái ekki inn manni á þing, en lík­urnar á því eru nú ein­ungis 12 pró­sent eftir að hafa verið 29 pró­sent 10. ágúst.

Að sama skapi hefur Mið­flokk­ur­inn verið að dala skarpt í könn­unum og það leiðir til þess að lík­legra er en áður að flokk­ur­inn nái ekki inn manni á þing. Líkurnar á því voru 14 pró­sent fyrr í mán­uð­inum en eru nú 18 pró­sent.

Sá flokkur á meðal þeirra sem mæl­ast með mögu­leika á því að eiga full­trúa á Alþingi á næsta kjör­tíma­bili sem er lík­leg­astur til að ná ekki inn manni er Flokkur fólks­ins, en 42 pró­sent líkur eru sem stendur á þeirri nið­ur­stöðu.

Líkur á stjórnarkreppu þar sem enginn valkostur fær afgerandi stuðning

Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mæl­ast stjórn­ar­flokk­arnir þrír sam­tals með 48,7 pró­sent fylgi, sem gæti dugað, líkt og áður sagði, til að þeir næðu næf­ur­þunnum meiri­hluta á þingi. Þeir fengu sam­tals 52,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og því hafa þeir saman tapað 4,2 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu.

Líkur á fjölda þing­sæta hjá hverjum flokki fyrir sig
Fjöldi þing­sætaDVPSBCMJF
>=220.020.000.000.000.000.000.000.000.00
>=210.040.000.000.000.000.000.000.000.00
>=200.060.000.000.000.000.000.000.000.00
>=190.090.000.000.000.000.000.000.000.00
>=180.120.000.000.000.000.000.000.000.00
>=170.140.000.000.000.000.000.000.000.00
>=160.140.000.000.000.000.000.000.000.00
>=150.130.000.000.000.000.000.000.000.00
>=140.100.010.000.000.000.000.000.000.00
>=130.070.030.010.010.010.000.000.000.00
>=120.040.050.020.020.020.000.000.000.00
>=110.020.090.040.050.050.010.000.000.00
>=100.010.130.080.090.090.030.000.000.00
>=90.000.170.130.130.130.080.010.020.00
>=80.000.170.160.170.170.130.020.040.00
>=70.000.150.180.170.170.190.050.100.01
>=60.000.100.150.150.150.200.100.160.04
>=50.000.050.110.100.100.170.160.200.09
>=40.000.030.060.060.060.110.200.200.15
>=30.000.010.020.020.020.040.130.100.13
>=20.000.000.000.000.010.000.030.010.02
>=10.000.000.010.010.010.020.110.060.13
>=00.000.000.010.010.000.010.180.120.42

Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn mæl­ast bæði undir kjör­fylgi og síð­ar­nefndi flokk­ur­inn hefur tapað þorra þess fylgis sem kvarn­ast hefur af stjórn­ar­flokk­unum á kjör­tíma­bil­inu, eða 3,9 pró­sentu­stig. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað 1,2 pró­sentu­stigi en Framsókn hefur einn stjórn­ar­flokk­anna bætt við sig fylgi, farið úr 10,7 í 11,6 pró­sent.

Frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir á Alþingi: Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn, fengu sam­tals 28 pró­sent atkvæða árið 2017. Þeir mæl­ast nú saman með 32,6 pró­sent, eða 4,6 pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu kosn­ingum. Ljóst er að þessir flokkar þurfa að bæta við sig fylgi á næstu vikum ef þeir ætla sér í rík­is­stjórn. Hið svo­kall­aða Reykja­vík­ur­mynstur er nú með 45,6 pró­sent fylgi og ef það myndi skipta út Viðreisn fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn færi fylgið upp í 47,3 pró­sent.

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 7,5 pró­sent fylgi og Mið­flokk­ur­inn mælist með 6,2 pró­sent stuðn­ing. Flokkur fólks­ins rekur lest­ina hjá þeim níu flokkum sem mæl­ast með eitt­hvað hand­bært fylgi, en 4,5 pró­sent lands­manna segj­ast ætla að kjósa þann flokk. Miðað við þessa nið­ur­stöðu er ljóst að flokk­arnir á þingi yrðu að minnsta kosti átta og mögu­lega níu ef kosið yrði nú.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár