Þetta fer allt í kassana

Það er sorg­legt að horfa upp á dug­lega menn vinna hörðum höndum fyrir góðum launum og vita svo til þess að þau fari meira eða minna í spila­kassa. Þetta segir bygg­inga­verk­taki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem vill koma á fót úrræði fyrir útlend­inga með spila­vanda.

Í spilasal
Í spila­sal Verktaki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir starfs­menn sína fara létt með að eyða mán­að­ar­laun­unum sínum í spila­kassa á nokkrum dögum. Mynd: Unsplash

Bygg­inga­verk­taki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir marga af erlendum starfs­mönnum sínum, sem aðal­lega eru frá Lett­landi og Litháen, eiga í alvar­legum spila­vanda sem hafi mikil áhrif á líf þeirra og frammi­stöðu í starfi. Hann hefur rætt við full­trúa SÁÁ um að koma á fót með­ferð­ar­úr­ræði fyrir þennan hóp og vill leggja sitt af mörkum til að það megi verða að veru­leika. Dæmi eru um að menn í þessum hópi, sem stunda fulla vinnu, eyði öllum launum sínum í spila­kassa, þeir búi í gisti­skýlum og fái ókeypis mat hjá hjálp­ar­sam­tökum.

„Þeir fara létt með að eyða mán­að­ar­laun­unum sínum í spila­kassa á nokkrum dögum,“ segir verk­tak­inn, sem ekki vill láta nafns síns getið af til­lits­semi við starfs­menn sína. „Við erum ekki að tala um lágar upp­hæðir, margir þess­ara manna fá bónusa fyrir dugnað og afköst og eru með útborguð mán­að­ar­laun frá 600 þús­und og upp í milljón. Þetta fer allt í kass­ana og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár