Ísland í tossabekknum þegar kemur að samkeppnishæfni

Ísland þarf að laða að meiri beina erlenda fjár­fest­ingu. Það eru sýni­legir veik­leikar í þeim aðstæðum sem við bjóðum fjár­festum upp á en sókn­ar­færi til staðar við að laga þá. Þetta segir Gylfi Magn­ús­son, dós­ent og fyrr­ver­andi ráð­herra.

Gylfi Magnússon dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.
Gylfi Magn­ús­son dós­ent við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson

Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir Ísland að fá inn meira af beinni erlendri fjár­fest­ingu inn til lands­ins. Það er lyk­ill­inn að því að við­skipta­hug­myndir, tækni og verk­kunn­átta fær­ist á milli landa og fram­leiðni auk­ist. Þegar kemur að sam­keppn­is­hæfni til að laða að slíka fjár­fest­ingu situr Íslands hins vegar í tossa­bekk hinna vest­rænu þjóða með dapra ein­kunn í flestu því sem skiptir máli.

Þetta segir Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra. Hann flutti erindi á opnum fundi sem fram fór í gær og bar yfir­skrift­ina „Er eft­ir­sókn­ar­vert að fjár­festa á Íslandi?“. Að fund­inum stóðu Nýsköp­un­ar­sjóður atvinnu­lífs­ins, PriceWaterhouse Coopers, Lands­virkjun og Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands. Erindi Gylfa fjall­aði um hag­fræði­legan ávinn­ing erlendra fjár­fest­inga.

Sýnilegir veikleikar en sóknarfæri

Gylfi segir að bein erlend fjár­fest­ing sé ein helsta skýr­ingin sem til er á hag­vexti. „Nánast sama á hvaða tíma eða staðar litið er til, þar skiptir hún máli. Hún er lyk­ill­inn að því að við­skipta­hug­myndir, tækni og verk­kunn­átta fær­ist á milli landa. Hún gerir löndum kleift að fást við það sem þau gera vel.“

Að hans mati eru sýni­legir veik­leikar í þeim aðstæðum sem við bjóðum upp á til að laða að erlenda fjár­fest­ingu á Íslandi. En veik­leik­anna má líka líta á sem sókn­ar­færi. „Við höfum auð­vitað tals­verða erlenda fjár­fest­ingu hér en hún er að lang­mestu leyti í orku­frekum iðn­aði. Það hafa svo verið jákvæð teikn á lofti varð­andi fjár­fest­ingu í líf­tækni, lyfjum og tengdum greinum. Þar hefur verið mikið um nýfjár­fest­ingu og það hefur nær örugg­lega skilað veru­legum ávinn­ingi fyrir íslenskt efna­hags­líf, þótt að mér vit­an­lega hafi ekki verið lagt mat á þær tölu. En .að vantar beina erlenda fjár­fest­ingu á ýmsum öðrum sviðum. Það er búið að gera ýmis­legt hérna á síð­ustu árum. Og það er klár­lega verið að hugsa um þessi mál og bæta úr. Staðan lítur ekki skelfi­lega út. Samt finnst manni þetta ekki einn af styrk­leikum íslenska hag­kerf­is­ins, að laða erlenda fjár­fest­ingu að. Það sést ein­fald­lega með því að líta á hag­tölur.“

Styrking krónunnar

Veik­leikar Íslands til að laða að erlenda fjár­fest­ingu eru nokkuð auð­sýni­legir og hafa lengi verið þekktir. Fjár­magns­höft hafa eðli­lega gert það að verkum að fjár­festar hafa verið mjög tregir til að setja inn fé í íslenska lög­sögu, sem þeir gátu ekki með vissu vitað hvenær þeir gætu nálg­ast á ný. For­dæma­lausar aðgerðir íslenskra stjórn­valda með setn­ingu neyð­ar­lag­anna, og síðar með því að festa eignir erlendra kröfu­hafa innan fjár­magns­hafta, hafa víða notið mik­ils skiln­ings en hafa líka sýnt fram á skýran vilja til að breyta leik­reglum eftir á. Það fer aldrei vel í fjár­festa. Þá er eftir gjald­mið­ill­inn, íslenska krónan, með sínar miklu sveiflur.

Gylfi segir að krónan fæli örugg­lega erlenda fjár­festa frá að ein­hverju marki, en það megi ekki ofmeta áhrifin. „Fyrir flest fyr­ir­tæki sem eru með veru­lega starf­semi á Íslandi en gera upp í erlendri mynt þá býr krónan til áhættu. Sér­stak­lega þegar hún styrk­ist mjög mikið, líkt og hún hefur gert að und­an­förnu. Á sama tíma hafa miklar launa­hækk­anir átt sér stað. Saman veikir það stöðu þess­ara fyr­ir­tækja mjög og það er slæmt. En sum verja sig gegn þess­ari þróun að veru­legu leyti. Álverin eru til dæmis með sína dýr­ustu samn­inga hér inn­an­lands í doll­urum og tekjur á móti í sömu mynt. Það er því annar inn­lendur kostn­aður þeirra sem hækkað þegar krónan styrk­ist svona mikið.“

Vandamál fangans

Í alþjóð­aum­hverf­inu er í gangi mikil keppni milli landa um að laða að eft­ir­sókn­ar­verða fjár­fest­ingu. Sú sam­keppni er að ein­hverju leyti reglu­vædd, til dæmis með evr­ópsku reglu­verki um banni við veit­ingu óhof­legra rík­is­styrkja til að fá fyr­ir­tæki til landa. Ísland er undir því reglu­verki vegna aðildar lands­ins að Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES) og Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur slegið á fingur okkar oftar en einu sinni fyrir að gera íviln­un­ar­samn­inga við erlend fyr­ir­tæki sem falið hafa í sér rík­is­að­stoð umfram það sem EES-samn­ing­ur­inn heim­ilar.

Gylfi segir að Ísland neyð­ist ein­fald­lega til að taka þátt í þessum leik þar sem keppt er um erlendu fjár­fest­ing­una. „Þetta er í sjálfu sér slæmt fyr­ir­komu­lag fyrir alla. Í leikja­fræð­inni er þetta kallað „vanda­mál fang­ans“ (e. Pri­soners dilemma). Ef allir hinir eru að gera þetta þá verðum við að gera það líka. Best væri að allir væru með almennar reglur sem giltu jafnt fyrir alla. Svo væri hægt að vera með gagn­sæjar sér­reglur fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki því það er rétt­læt­an­legt að hið opin­bera styðji við nýsköpun með skattfé og almennt hag­stæðu við­skiptaum­hverfi.“

Árið 2012 birti ráð­gjafa­fyr­ir­tækið McKinsey & Company skýrslu um Ísland og vaxt­ar­mögu­leika þess í fram­tíð­inni. Á grund­velli hennar var búinn til Sam­ráðs­vett­vangur um aukna hag­sæld og til­gang­ur­inn, í ein­földu máli, var sá að fjölga eggj­unum í íslensku efna­hag­skörf­unni, auka fram­leiðni og bæta sam­keppn­is­hæfni Íslands til að takast á við fram­tíð­ar­á­skor­anir í hratt breyttum heimi. Skýrslan, og vinna Sam­ráðs­vett­vangs­ins, hefur ekki verið í for­grunni í efna­hags­á­herslum Íslands á und­an­förnum árum. Ástæðan er öllum sýni­leg. Hin óvænti ofur­vöxtur í ferða­þjón­ustu hefur gjör­breytt efna­hags­legum aðstæðum hér­lendis á örfáum árum og leitt af sér mik­inn hag­vöxt. Það hefur því ekki verið for­gangs­mál að örva hag­vöxt. Vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ustu hefur hins vegar líka keyrt upp gengi krón­unnar sem drepur aðstæður fyrir aðra atvinnu­vegi, til dæmis í tækni- og hug­verka­iðn­aði sem starfar alþjóð­lega, til að vaxa.

Gylfi bendir þó á að það sé mun betra, og heil­brigð­ara, að vera með þrjár til fjórar stoðir undir hag­kerf­inu en eina eins og lengi var hér. „Einu sinni vorum við bara með tekjur af fiski. Það er þó betra að vera með nokkrar sveiflu­kenndar atvinnu­greinar sem sveifl­ast vegna gjald­mið­ils­ins en eina. Nú erum við með ferða­þjón­ustu, orku­bú­skap, sjáv­ar­út­veg og jafn­vel fjórðu stoð­ina, ef við teljum allt hitt sem eina stoð.“

Engar töfralausnir

Það eru engar töfra­lausnir sem geta gert okkur meira aðlað­andi fyrir beina erlenda fjár­fest­ingu, að mati Gylfa. „Við þurfum að vera með gott utan­um­hald og gagn­sætt kerfi utan um þá styrki og þær íviln­anir sem við veitum. Þar er ekki hægt að teygja sig neitt ofboðs­lega langt, því þá reka menn sig á EES-reglur. Það sem þarf í raun helst að gera er að bæta íslenskt við­skiptaum­hverfi, sem bætir það þá líka fyrir öll hin fyr­ir­tækin sem starfa hér. Hlutir eins og þjóð­hags­legur stöð­ug­leiki og sér­stak­lega stöð­ug­leiki gjald­mið­ils, almennur stuðn­ingur við rann­sóknir og þróun og menntun, eru upp­skriftir sem eru vel þekktar. Við erum hins vegar að fá frekar dapra ein­kunn fyrir flesta þess­ara þátta. Í mati World Economic Forum á sam­keppn­is­hæfni þjóða erum við eig­in­lega í tossa­bekknum á meðal vest­rænna þjóða, sem er að vísu erf­ið­asta deildin að keppa í. En þar erum við frekar döpur í sam­an­burði á margan máta. Það er ekki til nein töfra­lausn. Við þurfum bara að laga það sem þar er bent á að séu veik­leikar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár