Lagt til að hækka skyldusparnað í lífeyrissjóði um 29 prósent

Nýtt frum­varp leggur til að skyldu­sparn­aður lands­manna í líf­eyr­is­sjóði verði aukin um tæpan þriðj­ung. Það gæti leitt til þess að líf­eyr­is­sjóðir stýri megn­inu af sparn­aði ein­stak­linga og tækju þar af leið­andi flestar fjár­fest­ing­ar­á­kvarð­anir.

Frumvarpsdrögin eru lögð fram af Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra.
Frum­varps­drögin eru lögð fram af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýju frum­varpi um laga­breyt­ingar vegna jöfn­unar líf­eyr­is­rétt­inda, sem nú er til kynn­ingar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, er lagt til að hækkun á lág­marks­ið­gjaldi sem skylda er að greiða til líf­eyr­is­sjóðs verði hækkað úr tólf pró­sent í 15,5 pró­sent af heild­ar­launum. Þetta er gert í þeim til­gangi að jafna líf­eyr­is­rétt­indi.

Um er að ræða aðgerð sem er hluti af þeim pakka sem stjórn­völd sam­þykktu að ráð­ast í vegna lífs­kjara­samn­ing­anna svoköll­uðu, sem und­ir­rit­aðir voru í apríl. Þar sögð­ust stjórn­völd ætla að setja það í for­gang að skylda greiðslur í líf­eyr­is­sjóð til að vera 15,5 pró­sent af heild­ar­launum en að heim­ilt yrði að skipta hinu lög­bundna iðgjaldi þannig að tólf pró­sent færi til öfl­unar rétt­inda í sam­trygg­ing­ar­deild líf­eyr­is­sjóðs og allt að 3,5 pró­sent gæti farið í öflun rétt­inda í svo­kall­aðri til­greindri sér­eign.

[adspot]Sú til­greinda sér­eign, sem ráð­stafa má til hús­næð­is­kaupa, yrði skatt­frjáls.

Eftirlaun gætu orðið hærri en lokalaun

Um mikla breyt­ingu er að ræða. Ef skyldu­sparn­aður er hækk­aður svona mikið mun það þýða að greiðslur vegna hans munu aukast um 29 pró­sent. Gunnar Bald­vins­son, fram­kvæmda­stjóri Almenna líf­eyr­is­sjóðs­ins og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, hefur skilað umsögn um frum­varpið þar sem segir það stóra ákvörðun að hækka skyldu­sparnað svona mikið. Hann bendir á að í kynn­ingu á mál­inu komi ekk­ert fram um ætluð áhrif á eft­ir­laun fólks né áhrif á hag­kerfið í heild. Með útreikn­ingum sýnir hann fram á að eft­ir­laun geti orðið á mörkum þess að vera of mikil verði breyt­ingin á lögum. Með sér­eign­ar­sparn­aði geti líf­eyrir orðið umtals­vert hærri en loka­laun, en almennt sé talið vel ásætt­an­legt að slíkur sé á bil­inu 60 til 80 pró­sent af þeim.

Gæti eytt öllu svigrúmi til sparnaðar

Gunnar segir að þegar „eft­ir­laun­sparn­aður er orð­inn um fimmt­ungur launa er ólík­legt að ein­stak­lingur hafi svig­rúm til að vera með mik­inn eða ein­hvern annan sparnað. Þvert á móti má benda á að lík­legra er að hækkun skyldu­sparn­aðar leiði til auk­innar skuld­setn­ingar ein­stak­linga framan af starfsæv­inni, til dæmis ef þeir vilja kaupa fast­eign til að búa í. Loks má færa sterk rök fyrir því að það sé óheppi­legt að líf­eyr­is­sjóðir og vörslu­að­ilar líf­eyr­is­sparn­aðar stýri megn­inu af sparn­aði ein­stak­linga en það getur leitt til eins­leitra fjár­fest­inga og að flestar fjár­fest­ing­ar­á­kvarð­anir séu teknar af fáum stórum stofn­ana­fjár­festum.“

Í ljósi þess að hversu stór breyt­ingin yrði, ef frum­varpið yrði að lögum og hækkun á skyldu­sparn­aði yrði hækkuð um tæp 30 pró­sent, leggur Gunnar til að málið verði und­ir­búið vel og að stjórn­völd vinni grein­ingu á sparn­að­ar­þörf ein­stak­linga og áhrifum hækk­un­ar­innar á fjár­mál ein­stak­linga. Auk þess verði lagt hag­rænt mat á stækkun líf­eyr­is­kerf­is­ins og þróun fjár­fest­inga­þarfar ásamt lík­legum áhrifum á hag­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár