Creditinfo er að endurskoða hvað það merkir að vera „framúrskarandi fyrirtæki“

Nýr fram­kvæmda­stjóri Creditinfo segir að unnið sé að því að fjölga mæli­kvörðum að baki vott­un­inni Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki. Einnig skoðar Creditinfo að áskilja sér rétt til að fjar­lægja fyr­ir­tæki tíma­bundið af list­anum, vegna t.d. spill­ingar­rann­sókna.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi.
Hrefna Ösp Sig­finns­dóttir fram­kvæmda­stjóri Creditinfo á Íslandi. Mynd: Aðsend

Fyr­ir­tækið Creditinfo, sem hefur boðið upp á vott­un­ina Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki um ára­bil, vinnur nú að því að fjölga mæli­kvörð­unum sem eru að baki vott­un­inni. „Eins er til skoð­unar hvort Creditinfo áskilji sér rétt til að fjar­lægja fyr­ir­tæki tíma­bundið af list­anum ef uppi eru sér­stök álita­mál um fram­göngu þeirra eða ef þau sæta rann­sókn vegna spill­ing­ar­mála,“ segir Hrefna Ösp Sig­finns­dóttir, nýlega ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Creditinfo, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Hún segir að Creditinfo hafi „kosið að stíga var­lega til jarðar“ í þessum efnum en að gert sér ráð fyrir því að ákvörðun um þetta liggi fyrir áður en kemur að útgáfu næsta lista Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja. Hrefna segir mik­il­vægt að „vanda sig vel“ og að ekki sé hægt að „byggja valið á umfjöllun í fjöl­miðlum heldur þurfum við að hafa hald­bærar upp­lýs­ingar um rann­sókn opin­berra aðila.“

Hún segir að fram­tíðin krefj­ist nýrra mæli­kvarða og því vinni Creditinfo að því að bæta við­miðum tengdum sjálf­bærni og sam­fé­lags­á­byrgð við lista Creditinfo yfir Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki. „Nýr listi var nýlega birtur og náð­ist ekki að gera breyt­ingar sem við munum gera í fram­tíð­inni – ég hef verið hér í frekar stuttan tíma en er klár­lega með áform um breyt­ingar,“ segir Hrefna, sem var ráðin sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í sept­em­ber­mán­uði.[links]

Fyrr í þessum mán­uði gaf Creditinfo út nýjan lista yfir Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki og á hann röð­uð­ust á níunda hund­rað fyr­ir­tækja sem upp­fylltu skil­yrði fyr­ir­tæk­is­ins. Fyr­ir­tæki sem kom­ast á list­ann geta síðan keypt vottun og sam­an­burð­ar­skýrslu af Creditinfo, sem kostar 99.000 krónur.

Ofarlega á lista var sjáv­ar­út­vegs­ris­inn Samherji og kom það ef til vill ein­hverjum spánskt fyrir sjónir, enda er félagið til rann­sóknar hjá yfir­völdum hér­lendis vegna bæði meintra mútu­greiðslna í rekstri dótt­ur­fé­laga í Namibíu og skatta­mála. Þá varð fyr­ir­tækið fyrr á árinu upp­víst að því að reka áróð­urs­stríð gegn blaða­mönnum og fjöl­miðlum sem fjallað hafa um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins, með vit­und og vilja æðstu yfir­manna. Fyr­ir­tækið baðst afsök­unar á fram­ferði sínu í kjöl­farið.

„Aðeins afreks­fólk atvinnu­lífs­ins stenst þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja og þær gefa vís­bend­ingar um að þau séu lík­legri til að ná árangri og stand­ast álag en önn­ur,“ segir um vott­un­ina í kynn­ing­ar­efni á vef Creditinfo, en þar segir einnig að með vott­un­inni sjái „bæði við­skipta­vin­ir, starfs­fólk og sam­starfs­að­ilar að þú ert með heil­brigða starf­semi í hraustum rekstri.“

Skil­yrðin sem Creditinfo biður félög um að upp­fylla eru flest­öll bein­tengd rekstr­ar­nið­ur­stöðum. Fyr­ir­tækið á að vera í láns­hæf­is­flokki 1-3, skila árs­reikn­ingi á réttum tíma lögum sam­kvæmt, hafa skilað árs­reikn­ingi til Skatts­ins síð­ustu þrjú ár, vera virkt, hafa a.m.k. 50 millj­ónir í rekstr­ar­tekjur síð­ustu þrjú ár, vera með skráðan fram­kvæmda­stjóra í fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins, auk þess að vera með jákvæðan rekstr­ar­hagnað, jákvæða ársnið­ur­stöðu, a.m.k. 20 pró­sent eig­in­fjár­hlut­fall og yfir 100 millj­óna króna eignir síð­ustu þrjú ár.

Sjálfbærnimælikvarðar verði hluti af rekstrarbókhaldi

Hrefna segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem laut fyrst og fremst að því hvort hún teldi veru fyr­ir­tækja sem grunuð væru um vafa­sama við­skipta­hætti á list­anum rýra gildi vott­un­ar­innar, að ljóst sé að mæli­kvarðar á árangur fyr­ir­tækja séu að taka miklum breyt­ingum og gerðar séu enn rík­ari kröfur til fyr­ir­tækja varð­andi sjálf­bærni­mál.

[adspot]

„Hingað til hafa upp­lýs­ingar um sjálf­bærni fyr­ir­tækja verið nokkuð óstaðl­aðar og af skornum skammti. Þróunin í þeim mála­flokki er sem betur fer nokkuð hröð og lík­legt að mæli­kvarðar fyrir sjálf­bærni verði komnir inn í rekstr­ar­bók­hald flestra fyr­ir­tækja áður en langt um líður,“ segir Hrefna í svari sínu.

[box]

Hún segir að Creditinfo hafi þó þegar beint sjálf­bærnisp­urn­ingum til fyr­ir­tækja, spurn­ingum um umhverf­is­mál, félags­lega þætti og stjórn­ar­hætti, sem ætlað sé að „ná góðri mynd af því hvernig fyr­ir­tæki huga að sjálf­bærni í sínum rekstri“, en hægt er að hengja við spurn­inga­list­ann vott­anir, sjálf­bærni­skýrslur, jafn­rétt­is­stefnu, umhverf­is­stefnu eða önnur skjöl sem sýna fram á að fyr­ir­tækið hugi vel að sam­fé­lags­legri ábyrgð.

Hrefna segir að „því miður“ hafi svör­unin ekki verið nægi­lega virk og í þeim efnum þurfi „stór­á­tak“ en nefnir einnig að hún hafi tekið virkan þátt á þeirri hlið í sínu fyrra starfi, sem var hjá sam­tök­unum IcelandSIF, en þaðer er óháður vett­vangur fyrir umræðu og fræðslu um ábyrgar og sjálf­bærar fjár­fest­ingar.

Hafa stigið varlega til jarðar

Fram­kvæmda­stjór­inn segir að þegar fram í sækir verði „þessar upp­lýs­ingar teknar mark­visst inn í við­miðin sem skera úr um hvaða fyr­ir­tæki telj­ast til fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja.“

„Á meðan unnið er að því að fjölga mæli­kvörð­unum að baki lista Creditinfo yfir Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki þá höfum við farið þá leið að veita verð­laun sem hvetja fyr­ir­tæki til góðra verka, jafnt á sviði sam­fé­lags­á­byrgðar og nýsköp­unar, en í ár voru þau veitt bygg­inga­vöru­versl­un­inni BYKO og tækni­fyr­ir­tæk­inu Trackwell.

Eins er til skoð­unar hvort Creditinfo áskilji sér rétt til að fjar­lægja fyr­ir­tæki tíma­bundið af list­anum ef uppi eru sér­stök álita­mál um fram­göngu þeirra eða ef þau sæta rann­sókn vegna spill­ing­ar­mála. Við höfum kosið að stíga var­lega til jarðar í þeim efnum en gerum ráð fyrir að fyrir liggi ákvörðun í þeim efnum áður en kemur að útgáfu næsta lista Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja en mik­il­vægt er að vanda sig vel og er ekki hægt að byggja valið á umfjöllun í fjöl­miðlum heldur þurfum við að hafa hald­bærar upp­lýs­ingar um rann­sókn opin­berra aðila,“ segir Hrefna Sig­finns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Creditinfo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár