Dómari víkur sæti í meiðyrðamáli gegn Jóni Steinari

Dómarinn í meið­yrða­máli Bene­dikts Boga­sonar gegn Jóni Steinar Gunn­laugs­syni hefur ákveðið að víkja sæti vegna van­hæfis. Vanhæfið er til­komið vegna setu dóm­ar­ans í stjórn Dóm­ara­fé­lags­ins með Skúla Magn­ús­syni sem hefur tjáð sig afger­andi um málið.

Sandra Bald­vins­dóttir, sem var settur dóm­ari í máli þar sem Bene­dikt Boga­son, núver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, hefur stefnt Jóni Steinari Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, fyrir meið­yrði, hefur ákveðið að víkja sæti í mál­inu.

[links]Gestur Jóns­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og lög­maður Jóns Stein­ars, gerði þá kröfu í gær að Sandra myndi víkja sæti vegna van­hæfis á þeim grund­velli að hún sé í stjórn Dóm­ara­fé­lags Íslands og á síð­asta aðal­fundi félags­ins, sem og í fjöl­miðlum eftir fund­inn, hafi þáver­andi for­maður þess, Skúli Magn­ús­son, sett fram sjón­ar­mið sem séu þess vald­andi að Jón Steinar geti dregið óhlut­drægni hennar í efa.

Það gerði Sandra síð­degis í dag og í nið­ur­stöðu hennar segir að í ljósi þess að ummælin hafi Skúli sett fram sem for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, sem dóm­ari máls­ins var hluti af, séu fyrir hendi rétt­mætar ástæður fyrir Jón Steinar að draga hæfi dóm­ar­ans í efa.

„Dóms­morð“

Aðdrag­andi máls­ins er sá að í bók sinni „Með lognið í fangið - um afglöp Hæsta­réttar eftir hrun“ sem Jón Steinar gaf út í nóv­em­ber í fyrra gagn­rýnir hann Hæsta­rétt harð­lega og full­yrðir að dóm­ur­inn hafi brugð­ist þjóð­inni við með­ferð dóms­mála í kjöl­far efna­hags­hruns­ins.

Í kjöl­farið stefndi Bene­dikt Jóni fyrir meið­yrði og gerir kröfu upp á tvær millj­ónir auk vaxta í miska­bætur sem hann hyggst láta renna til góð­gerð­ar­mála vinn­ist mál­ið, sem og um máls­kostn­að.

[adspot]Ummælin sem Bene­dikt vill að verði dæmd dauð og ómerk snú­ast meðal ann­ars um það sem Jón Steinar kallar ítrekað í bók­inni „dóms­morð“, til dæmis að við með­ferð Hæsta­réttar á máli Bald­urs Gunn­laugs­son­ar, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem dæmdur var í tveggja ára fang­elsi fyrir inn­herja­svik árið 2012, hafi verið framið „það sem kallað hefur verið dóms­morð“ og að dóm­ar­arnir hafi vitað eða hlotið að vita að sá dómur hafi ekki stað­ist hlut­lausa laga­fram­kvæmd, ásamt öðru.

Van­hæf vegna skoð­ana for­manns Dóm­ara­fé­lags­ins?

Í ræðu sinni á umræddum aðal­fund­i, sem hald­inn var þann 24. nóv­em­ber 2017, sagði Skúli meðal ann­ars að Jón Steinar hafi verið einn þeirra sem harð­ast hafi gengið fram í umræðu í fjöl­miðlum um fjár­mál dóm­ara. „Hvort Jón Steinar tók þátt í því að skipu­leggja þessar aðgerðir frá grunni eða hvort hann sam­sam­aði sig þeim, þegar hann varð þess áskynja, verður hann að svara sjálfur fyr­ir. Hver og einn getur einnig svarað því hvort og með hvaða hætti fram­ganga Jóns Stein­ars var sam­ræm­an­leg sið­ferð­is­legum skyldum hans sem starf­andi lög­manns sem og skyldum hans sem fyrr­ver­andi dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands. Ekki síst ætti Jón Steinar að reyna að gera það sjálf­ur,“ sagði Skúli. Um dóms­málið sem Bene­dikt hafði þá þegar efnt til gegn Jóni Stein­ari sagði Skúli að ekki væri furðu­legt þótt til­tek­inn dóm­ari, þ.e. Bene­dikt, hafi misst þol­in­mæð­ina og ákveðið að nota það úrræði sem lögin bjóða honum, að höfða meið­yrða­mál vegna alvar­lega ávirð­inga um störf hans og ann­arra dóm­ara í til­teknu dóms­máli, í ljósi þess að dóm­arar séu í afar þröngri stöðu til að tjá sig opin­ber­lega og verj­ast ómál­efna­legum mál­flutn­ingi og röngum ásök­un­um. „Og auð­vitað má gagn­rýna dóm­stóla og úrlausnir þeirra og jafn­vel dóm­ar­ana sjálfa. Það er hins vegar munur á gagn­rýnni umræðu og svo hreinni nið­ur­rifs­starf­sem­i.“

Lögmaður Jóns Steinars vís­aði einnig í orð Skúla Magn­ús­sonar í kvöld­fréttum RÚV sama dag, þar sem hann sagði að ef fjöl­miðlar eða aðrir sæju ekki um að hreinsa svona óhróður upp þannig að hann dæmi sig í raun og veru sjálfur þá hljóti dóm­arar á ein­hverjum tíma­punkti að grípa til við­bragða sem þeir hafi þá sam­kvæmt lögum og „ég lýsi ákveðnum skiln­ingi á því,“ sagði Skúli.

[adspot]Skúli gagn­rýndi einnig að Jón Steinar sjálfur hafi reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöðu máls Bald­urs í Hæsta­rétti þó að hann hafi sjálfur lýst sig van­hæf­an. „Sú atburða­rás sem hann hefur sjálfur lýst og sú aðkoma hans sjálfs sem hann hefur lýst í fjöl­miðlum hún felur auð­vitað í sér eitt­hvað það skýrasta brot á siða­reglum dóm­ara sem hægt er að hugsa sér.“

Lögmaður Jóns Steinars sagði Söndru hafa setið í stjórn félags­ins undir for­ystu Skúla sem for­manns og geri enn eftir for­manns­skipti sem urðu á aðal­fund­in­um. Hann viti ekki til þess að Sandra hafi gert neinar athuga­semdir við fram­an­greind orð Skúla Magn­ús­son­ar, hvorki á aðal­fund­inum sjálfum né opin­ber­lega síðar á öðrum vett­vangi og því hafi Jón rétt­mætar ástæður til að ætla að orð Skúla end­ur­spegli við­horf þeirra sem með honum sátu í stjórn félags­ins, þar með talin Sandra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár