Volkswagen gæti þurft að greiða 90 milljarða dollara sekt

Sak­sókn­ari fer fram á fimm sinnum hærri sekt en reiknað var með. Með hverjum bíl er Volkswagen gefið að sök að vera brot­legt við fjórar reglur. Bílarnir eru nærri 600 þús­und.

Volkswagen var stofnað árið 1946 á grunni bílaframleiðslu þriðja ríkisins í Þýskalandi. Nú er hins vegar orðið lint í dekkjunum og útlitið ekki gott.
Volkswagen var stofnað árið 1946 á grunni bíla­fram­leiðslu þriðja rík­is­ins í Þýska­landi. Nú er hins vegar orðið lint í dekkj­unum og útlitið ekki gott. Mynd: EPA

Banda­rísk yfir­völd fara fram á að Volkswagen greiði allt að 90 millj­arða doll­ara í kæru á hendur fyr­ir­tæk­inu fyrir að svindla á meng­un­ar­reglum. Það er um það bil fimm sinnum meira en upp­haf­lega var áætlað að þýski bíla­fram­leið­and­inn þyrfti að greiða. Strax í sept­em­ber, eftir að upp komst um svind­lið, lagði Volkswagen til hliðar um sjö millj­arða doll­ara til að standa straum af sektum og skaða­bótum.

Það er þó ekki víst að Volkswagen muni þurfa að greiða 90 millj­arða doll­ara sekt sem sak­sókn­ari fer fram á, því venju­lega er samið um mála­miðlun áður en málið fer fyrir dóm. Frétta­stofa Reuters hefur eftir sér­fræð­ingum sínum að reikn­ing­ur­inn verði að öllum lík­indum mun hærri en gert hafði verið ráð fyrir.

Samkvæmt ákærunni sem var gefin út í gær voru nærri 600.000 bílar í Banda­ríkj­unum sem búnir voru svindl­bún­að­inum. Frétta­skýrendur hafa gert að því skóna að Volkswagen gæti þurft að borga 150.000 doll­ara fyrir hvern hvern bíl. Að minnsta kosti fjögur laga­á­kvæði eiga við um brot fyr­ir­tæks­ins sem hægt er að sekta fyrir.

Banda­rísk stjórn­völd fyr­ir­skip­uðu inn­köllun 482.000 bif­reiða frá bæði Volkswagen og dótt­ur­fyr­ir­tæk­inu Audi í haust. Allir bíl­arnir sem ekki stóð­ust meng­un­ar­próf voru fram­leiddir á árunum 2009 til 2015. Tölvu­kerfi bíl­anna breytti still­ingum bíl­anna þegar þeir voru tengdir við tölvur yfir­valda og minnk­uðu útblást­ur­inn til að stand­ast reglur. Um leið og þeir voru teknir úr sam­bandi los­uðu þeir hins vegar 40 sinnum meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en leyfi­legt er.

Hluta­bréfa­verð í Volkswagen hefur hrunið síðan upp komst um svind­lið og virði þeirra heldur áfram að lækka þrátt fyrir að búið sé að skipta um lyk­il­menn í yfir­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Í morgun náði hlut­bréfa­verð í fyr­ir­tæk­inu sex vikna lág­marki eftir að hafa fallið um rúm­lega sex pró­sent síðan í gær. Hluta­bréfa­verðið er nú 22 pró­sent lægra en það var áður en hneyklsið kom upp. Sekt­irnar og virð­is­fallið gæti bolað Volkswagen af banda­rískum bíla­mark­aði, þar sem þýska fyr­ir­tækið hefur alltaf átt erftit upp­dráttar.

Upp komst um sama búnað í bílum fyr­ir­tæk­is­ins sem svindl­aði á sam­bæri­legum próf­unum í Evrópu. Þar gæti Volkswagen þurft að greiða háar sektir einnig.

Á vor­dögum árs­ins 2015 tók Volkswagen framúr Toyota sem stærsti bíla­fram­leið­andi í heimi. Hluta­bréfa­verð í þýska fyr­ir­tæk­inu náðu hámarki í mars en virðið féll um 26 millj­arða evra á einum sól­ar­hring eftir að upp komst um skandal­inn. Það er and­virði tvö­faldrar lands­fram­leiðslu Íslands árið 2014. Þetta hefur ekki aðeins gríð­ar­leg áhrif á fyr­ir­tækið Volkswagen, sem hugði á frek­ari vinn­inga meðal bíla­fram­leið­anda áður en hneykslið komst upp; það hugð­ist taka þátt í Formúlu 1, Le Mans og helstu kappök­strum heims. Alls skipar bíla­út­flutn­ingur 20 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi Þjóð­verja og hjá Volkswagen, Audi og Porche störf­uðu 775.000 manns í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár