„Ég þarf ekki alltaf að vera fyndinn“ - Woody Allen á Cannes-hátíðinni

Woody Allen er heið­ur­gestur kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Cannes og frum­sýnir þar nýja mynd. En bréf sonar hans Ronan, þar sem hann ásakar föður sinn á ný um kyn­ferð­is­brot gagn­vart systur sinni þegar hún var barn­ung, hefur skapað afar sér­kenni­legt and­rúms­loft.

Nýjasta kvik­mynd Woody Allen, Café Society, var opn­un­ar­mynd á Cannes-hátíð­ar­innar sem hófst á mið­viku­dag­inn síð­ast­lið­inn. Hún hefur fengið fína gagn­rýni; hinn átt­ræði kvik­mynda­leik­stjóri virð­ist aftur vera kom­inn á sporið með sprell­fjöruga og marg­slungna mynd sem ger­ist í Banda­ríkj­unum á fjórða ára­tug síð­ustu aldar og fjallar um glam­úr­lífið í Hollywood. Það sem hefur hins vegar skyggt á þessa for­sýn­ingu og heim­sókn Woody Allens til Cannes eru ásak­anir um kyn­ferð­is­lega mis­notkun hans á hendur dóttur sinni, Dylan Farrow.

Sonur ritar bréf

Rétt áður en Allen mætti til Cannes birti sonur hans Ronan Farrow (sem vill, eins og Dylan, ekki kenna sig við föður sinn) opin­skátt bréf í The Hollywood Reporter þar sem hann lýsir því hvernig faðir hans hafi mis­notað systur sína; hann gagn­rýnir fjöl­miðla harð­lega fyrir að halda uppi mál­stað Woody Allen, enn fremur beinir hann spjótum sínum að leik­urum, fram­leið­endum og öðru fólki sem starfar með Allen. Ekkert nýtt kemur fram í bréf­inu um málið, allt sem þar stendur hefur svo sem komið fram áður. En það virð­ist vera erfitt fyrir Woody Allen að reyna að sópa þessu máli undir teppið.

Það var því afar sér­kenni­legt and­rúms­loft á opn­un­ar­há­tíð­inni þar sem Woody Allen var sjálfur heið­urs­gest­ur­inn. Veislu­stjór­inn og grínist­inn, Laurent Lafitte, skaut föstum skotum á gamla spéfugl­inn þegar hann sagði: „Þú ert stöðugt að gera myndir hér í Evrópu, en samt ekki eft­ir­lýstur í Banda­ríkj­unum …fyrir nauðgun.“ Þar vís­aði hann í mál Roman Polanski, sem flúði til Evrópu eftir að hafa verið dæmdur fyrir að nauðga þrettán ára gömlu stúlku­barni, árið 1977.

Veislu­stjór­inn hélt svo áfram og sagði: „En takk fyrir að koma hingað til okkar í kvöld, það var nú það minnsta sem þú gast gert.“ Sumir hlógu – aðrir ekki. Heið­urs­gest­ur­inn sat stjarfur undir lestr­inum. Daginn eftir var hann spurður um þessar ásak­anir og bréf Ronan Farrow í við­tölum. Hvort fólk gæti virki­lega horft á myndir hans með þetta mál enn hang­andi yfir honum. „Ég hugsa ekki um það. Ég kom með mína yfir­lýs­ingu í New York Times fyrir löngu síðan. Mér finnst þetta bjána­legt. Allt þetta mál. Það snertir mig ekki. Ég hugsa ekki um það, held bara áfram að vinna. Næsta myndin mín verður tekin upp í New York.“

Café Society

Kristen Stewart, sem leikur í Café Society, segir þetta bréf Ronan Farrow vera algjört áfall og átti erfitt með að tjá sig um málið í blaða­við­tölum. Leik­konan Blake Lively tók hins vegar upp hansk­ann fyrir Woody Allen og var­aði fólk við að fjasa um mál sem það vissi ekk­ert um. Þetta hefði á engan hátt truflað sam­starf hennar við leik­stjór­ann. Reynsla hennar væri sú að hann hefði gert margt mik­il­vægt fyrir konur sem mætti alveg fjalla meira um. Skrifað meiri­háttar og flott kven­hlut­verk. Sem er meira en margur annar hefur gert.

[adspot]

Þetta er ekk­ert nýtt sem kemur fram í bréfi Ronan Farrow. Þessar áskak­anir hafa verið í gangi í mörg ár og bréfið virð­ist ekki hafa komið Allen úr jafn­vægi. Á frétta­fundum og blaða­við­tölum sat hann jafnan spakur, svar­aði spurn­ingum og reytti af sér brand­ar­ana.

„Þegar þú er orð­inn átt­ræður ferðu að velta ýmsu fyrir þér; þú ert að breyt­ast í gam­al­menni, sem ég hlakka vissu­lega til að verða. Og svo er það auð­vitað dauð­inn. Ég ætla mér að deyja í svefni. Ég er búinn að plana þetta allt saman. Ég er hins vegar afar rólegur; pabbi varð 100 ára, ég á mörg ár framundan“

Eftirsjá og brostnar vonir

Margir eiga erfitt með að taka afstöðu í þessum fjöl­skyldu­harm­leik. Hver er að segja satt? Allen hef­ur ít­rekað neitað því að hafa beitt dótt­ur sína kyn­ferðis­legu of­beldi þegar hún var sjö ára gömul. Hann hefur sagt þess­ar ásak­an­ir tengj­ast for­ræðis­deilu hans og Miu Farrow. Eftir að þau skildi tók Allen upp sam­band við Soon-Yi Previn, ætt­leidda stjúp­dótt­ur sína, þegar hún var 19 ára göm­ul. Þau giftu sig í kjöl­farið. Hún sat hjá honum í kvik­mynda­höll­inni í Cannes þegar Café Society var for­sýnd á mið­viku­dag­inn.

Í mynd­inni er lít­ill brand­ari um hversu flókin ásta­sam­bönd (þ.e. innan fjöl­skyldu) geta verið. Margir velta nú vöngum yfir þessu í ljósi nýj­ustu upp­lýs­inga og svo auð­vitað í tengslum við sam­band hans við Soon-Yo Previn. Allen segir um þetta: „Mér fannst þetta bara fyndið. Ef áhorf­endur hlæja, þá er það gott. Ég er alsæll ef þeir eru ánægðir.“

Þetta er í senn bæði fyndin og alvar­leg kvik­mynd sem fjallar um ást­ina og lífið, minn­ingar, brostnar vonir. Eins og svo mörg önnur verk Woody Allen er hún um fólk sem hefur það í raun gott, en vill samt eitt­hvað annað. Fólk sem heldur að grasið sé grænna hinum megin, kemst svo að öðru, en getur ekki snúið til baka.

„Allir taka ein­hvern tím­ann rangar ákvarð­anir í líf­inu, sem þeir sjá eftir,“ – segir Woody Allen. Ein per­sónan í mynd­inni segir sömu­leiðis: „Fólk verður að fíflum þegar hjartað ræður för.“

„Þetta er ekki bara grín­mynd,“ segir Allen. „Ég hefði örugg­lega sprellað meira - hefði ég gert hana fyrr á ferl­inum. Nú þegar ég er eldri og bráðum að fara deyja er mér sama um allt. Þess vegna þori ég að taka meiri áhættu en áður. Ég þarf ekki alltaf að vera fynd­inn. Sorgin og harm­ur­inn eru mik­il­vægir þættir í mann­líf­inu. Mig langar að fjalla meira um það.“

Café Society er því óvenju­leg kvik­mynd. Hún er und­ar­lega upp­byggð; byrjar varla né endar. Woody Allen leikur ekki í mynd­inni en er sögu­maður. Hann hefur sjálfur sagt að myndin eigi meira skylt við skáld­sögur í frá­sagn­ar­stíl. Þetta er samt klisja, saga um ást­ar­þrí­hyrn­ing, en sam­tölin, per­són­urnar, leik­ar­arnir – allt saman frum­legt og fram­úr­skar­andi.

„Eins og í Midnight In Paris þá lang­aði mig að leika aðal­hlut­verkið, en ég er bara orð­inn of gam­all, sem betur fer. Þessir gaurar sem eru að leika mig eru bara miklu betri en ég! Jesse Eisen­berg gerir þetta marg­falt betur. Ég er bara grínisti. Hann er alvöru leik­ari með margar víddir, býr til mun dýpri og flókn­ari per­sónur en ég er nokkurn tím­ann fær um að gera“

Segir Allen og bætir við að myndin sé líka öðrum þræði um Hollywood og brans­ann. „Þeir skilja ekki kvik­myndir og ég skil ekki við­skipti. Ég er búinn að fara í milljón við­töl í dag, milljón á morgun. Ég get ekki séð að það skipti neinu máli en fram­leið­end­urnir heimta þetta. Svo ég geri það. Ég les ekki gagn­rýni, mér er sama um hana, ég yrði bara geð­veikur að velta mér upp úr henni. Held bara áfram að vinna. Vinnan gerir manni gott.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár