Hver er þessi hlæjandi Spánverji eiginlega?

Hann er hálf tann­laus, talar spænsku og skelli­hlær í sjón­varps­sal í óskil­greindum sjón­varps­þætti fyrir, að því er virð­ist, fáeinum árum. Við höfum öll hlegið með honum, hvort sem honum hafi verið brugðið í líki hönn­uðar hjá Apple, stuðn­ings­manns rík­is­stjórn­ar­innar eða and­stæð­ings hennar.

En hver er þessi maður í raun og veru? Breska rík­is­sjón­varpið BBC hefur gefið vís­bend­ingu og Kjarninn hefur fylgt henni og kom­ist að raun um að hér er spænski grínist­inn Juan Joya Borja á ferð­inni og hann er alls ekki að tala um stjórn­mál. Hann er þekktur á Spáni fyrir hlátur sinn og er kall­aður „El Risitas“, sem kannski útleggst á íslensku sem „Fjör­kálf­ur­inn“.

Borja hefur síðan árið 2000 leikið í sjón­varps­þáttum og bíó­myndum á spænsku. Um svipað leiti kom hann fyrst fram í spjall­þætt­inum Ratones Coloraos, í umsjá spænska fjöl­miðla­manns­ins Jesús Quintero, og hefur síðan verið fasta­gestur. Í umræddum þætti fær hann einmitt hlát­ur­skastið fræga. Hér að neðan má sjá Fjör­kálfinn í öðru við­tali við Quintero og þar virð­ist ein­fald­lega allt mis­takast hjá okkar manni. Það mynd­band er hins vegar ekki textað, en lát­bragðið og óhljóðin í Fjör­kálf­inum er engu að síður skemmti­leg.

Mynd­band­inu af honum í hlát­ur­skast­inu í spænsku sjón­varpi árið 2007, að segja sögu af mat sem hann setti í sjó­inn, hefur farið eins og eldur í sinu und­an­farna daga. Net­verjar hafa keppst við að texta fram­sögu Fjör­kálfs­ins og setja hlátur hans í sam­hengi við mál­efni líð­andi stundar.

Hann hefur til dæmis gagn­rýnt Vladimír Pútín fyrir fram­göngu sína í Úkraínu, gert grín að upp­þoti stjórn­ar­and­stöð­unnar við bréfi Gunnars Braga Sveins­sonar til Evr­ópu­sam­bands­ins og sem starfs­maður Apple kemur hann fólki í skiln­ing um hversu fárán­legt eina tengið á nýju MacBook-tölv­unni sé. Síð­ast­nefnda mynd­bandið hefur þegar fengið 4,5 milljón áhorf, aðeins viku eftir að því var hlaðið á YouTube.

En þó Fjör­kálf­ur­inn hafi fengið byr undir báða vængi síð­ustu daga þá var mynd­bandið fyrst notað af Bræðra­lagi múslima í Egypta­landi í fyrra til að hæð­ast að for­seta lands­ins, Abdel Fattah el-Sisi, í kosn­ingum. Og nú er hlátur Spán­verj­ans orðið nærri jafn vin­sælt „meme“ og mynd­brotið úr Der Unter­gang þar sem Hitler áttar sig á því að stríð­inu sé tapað. Síðast sást Hitler til dæmis bölva veðr­inu í vetur en áður hefur Hitler verið æfa­r­eiður Rebeccu Black og svo reif han Icesave í sig á eft­ir­minni­legan hátt í hrun­inu.

Hér að neðan má sjá upp­runa­lega mynd­bandið og við­talið við Fjör­kálfinn, textað á ensku, og svo nokkrar afbak­anir sem eru spreng­hlægi­legar.

Upprunalega myndbandið (með enskum texta)

Nýja tölvan frá Apple

ESB-umsóknin og uppþot stjórnarandstöðunnar

Hlegið að ensku félögunum í Evrópukeppnunum

Bréf Gunnars Braga til Evrópusambandsins

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár