Framsókn horfir til þess að fá fylgisbyr í seglin

Í annað sinn á kjör­tíma­bil­inu er nýaf­stað­inn blaða­manna­fundur í Hörpunni, þar sem stjórn­völd, með Bjarna Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, og Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, í broddi fylk­ingar, kynna stór og mikil áform þar spjót­unum er beint að kröfu­höfum föllnu bank­anna.

Hinn 10. nóv­em­ber í fyrra var það leið­rétt­ingin svo­nefnda á verð­tryggðum skuldum heim­ila, fyrir um 80 millj­arða, og nú tæpum sjö mán­uðum síðar eru það áform um að losa um fjár­magns­höft með því að setja skil­yrði fyrir kröfu­hafa föllnu bank­anna, eða 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatt, og að „bræða“ niður snjón­hengju aflandskróna.

Hver verða áhrifin pólitískt?


Óhætt er að segja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þurfi á byr í seglin að halda, enda mælist fylgi við hann í lægstu lægðum í augna­blik­inu. Frá því leið­rétt­ingin var kynnt hefur fylgið hríð­fallið, þvert á það sem margir héldu, og mælir Gallup nú fylgið í 8,9 pró­sentum. Til sam­an­burðar fékk flokk­ur­inn 24,4 pró­sent í kosn­ing­unum vorið 2013, þegar hann komst til valda.

Ljóst er að margir innan Fram­sókn­ar­flokks­ins eru með miklar vænt­ingar um að nýlega kynnt áform um afnám hafta, með mörg hund­ruð millj­arða ávinn­ingi fyrir rík­is­sjóð og almenn­ing, geti haft mikil áhrif á fylgi flokks­ins og póli­tískt bak­land hans.

[caption id="attachment_30987" align="alignnone" width="640"] Sigurður Hann­es­son og Benedikt Gíslason, vara­for­menn fram­kvæmda­hóps um losun hafta, hafa verið í lyk­il­hlut­verki í und­ir­bún­ingi fyrir aðgerð­irnar sem nú hafa verið kynntar. Mynd: Birgir.[/caption]

Sigurður Hannesson og Benedikt Gíslason, varaformenn framkvæmdahóps um losun hafta, hafa verið í lykilhlutverki í undirbúningi fyrir aðgerðirnar sem nú hafa verið kynntar. Mynd: Birgir.
Sigurður Hann­es­son og Benedikt Gíslason, vara­for­menn fram­kvæmda­hóps um losun hafta, hafa verið í lyk­il­hlut­verki í und­ir­bún­ingi fyrir aðgerð­irnar sem nú hafa verið kynntar. Mynd: Birgir.

„Það var ekki lítið hlegið að fram­bjóð­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar þeir minnt­ust á kylfu og gul­rót í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Póli­tískir and­stæð­ingar höfðu aldrei heyrt aðra eins firru, aldrei heyrt annað eins bull og það að hægt væri að nálg­ast kröfu­hafa á þessum nótum. Annað hefur komið á dag­inn,“ sagði Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á Alþingi í dag. Hann fór fram á að and­stæð­ingar flokks­ins bæðu Framsókn afsök­unar á orðum sínum um mál­flutn­ing flokks­ins, í ljósi þess hvernig úr mál­unum væri að spil­ast.

Við­mæl­endur Kjarnans innan Fram­sókn­ar­flokks­ins, höfðu svip­aða sögu að segja. Nú væri komið í ljós að það flokk­ur­inn hefði haft á réttu að standa, hvað varðar mögu­leika á því að fá mikla pen­inga frá kröfu­höfum í slitabú bank­anna til hags­bóta fyrir almenn­ing, og ætti að upp­skera eftir því.

Leiðréttingin ekki vinsæl – En hvað með losun hafta?


Óhætt er að segja að hið póli­tíska lands­lag á Íslandi, eftir hrunið, hafi – eins og nær allur gang­ur­inn í efna­hags­málum – verið for­dæma­laus. Í lands­mál­unum vann VG stór­sigur í kosn­ing­unum 2009, Framsókn eins og áður segir árið 2013 en spurn­ingin er hvað ger­ist eftir 23 mán­uði, í kosn­ing­unum 2017. Þessi tæpu tvö ár eru langur tími í póli­tík, en eins og sakir standa mælist fylgið við Pírata lang­sam­lega mest, eða 34,1 pró­sent.

Leið­rétt­ingin svo­nefnda var ekki til vin­sælda fallin, í það minnsta á þeim tíma sem liðin er frá kynn­ingu á henni, en ljóst má telja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn muni vafa­lítið horfa til þess að áætl­unin og skil­yrðin fyrir losun hafta, sem hafa nú verið kynnt með svip­uðum hætti og sú fyrri, muni auka vin­sældir flokks­ins. Ekki veitir flokknum af því í augna­blik­inu, enda fylgið í lægstu lægðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár