Kristrún Tinna ráðin forstöðumaður hjá Íslandsbanka

Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir hefur verið ráðin for­stöðu­maður á skrif­stofu banka­stjóra Íslands­banka. Kristrún Tinna sat nýverið í verk­efna­hóp fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem vann Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið.

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir

Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir hag­fræð­ingur hefur verið ráðin for­stöðu­maður á skrif­stofu banka­stjóra í Íslands­banka. Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að hún muni sinna verk­efnum tengdum inn­leið­ingu á stefnu Íslands­banka sem unnin hefur verið að af starfs­mönnum og ytri ráð­gjöfum und­an­farna mán­uði.

Kristrún sat í starfshópnum sem vann að Hvítbókinni um framtíðarsýn fjármálakerfið

Kristrún Tinna hefur á und­an­förnum árum starfað hjá alþjóða­ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Oliver Wyman sem yfir­verk­efna­stjóri og áður sem sér­fræð­ingur í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf hjá Beringer Finance í Stokk­hólmi. Auk þess sat hún í starfs­hóp fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem vann Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið.

[links]Í við­tal­i við sjón­varps­þátt­inn 21 í jan­úar síð­ast­liðnum ræddi Kristrún Tinna ýmsa anga Hvít­­bók­­ar­inn­ar og þar á meðal þær kann­­anir sem starfs­hóp­­ur­inn lét gera um við­horf almenn­ings til fjár­­­mála­­kerf­is­ins. Í nið­­ur­­stöðum rann­sókn­ar­innar kom fram að þau þrjú orð sem flestum Íslend­ingum dettur í hug til að lýsa banka­­­kerf­inu á Íslandi eru háir vext­ir/­­­dýrt/ok­­­ur, glæp­a­­­starf­­­sem­i/­­­spill­ing og græðgi. Hún sagði í við­tal­inu að það hafi komið sér á óvart hversu sterk nei­kvæð orð Íslend­ingar not­uðu til að lýsa skoðun sinni á banka­kerf­inu. „Það er mjög erfitt að reka banka þar sem það er svona ofboðs­lega mikið van­traust þannig að ég held að það und­ir­striki hvað það er mik­il­vægt að eiga sam­tal um þetta.“

Hún sagði það jafn­framt vera bæði vera höndum rík­is­ins og bank­anna sjálfra að gera breyt­ingar sem stuðli að breyt­ingum sem bæti kjör og lækki vexti. „Bank­arnir hafa verið í miklum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum og það er klár­lega svig­rúm að mínu mati til þess að gera enn bet­ur. En við erum ekki að tala um eitt­hvað ein­skipt­is­verk­efni sem byrjar og endar og er svo lokið og við erum bara komin með skil­virkt kerfi. Þetta er þróun sem er að eiga sér stað alls staðar í heim­inum og flestir stærstu bankar Evr­ópu hafa það efst á for­gangs­lista sínum að draga úr kostn­aði. Ég held að við þurfum klár­lega að vinna að því hér á Íslandi lík­a,“ sagði Kristrún Tinna.

Bankaumhverfið að breytast mikið

Í til­kynn­ingu frá Íslands­banka seg­ist Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, fagna því að fá Kristrúnu til liðs við bank­ann til að halda áfram með stefnu­mótun bank­ans. „Ljóst er að bankaum­hverfið eins og við þekkjum það í dag er að breyt­ast mikið og við ætlum svo sann­ar­lega að taka þátt í þeim breyt­ingum. Sam­keppnin er sífellt að aukast með til­komu fjöl­margra inn­lendra og erlenda fjár­tækni­fyr­ir­tækja og við erum vel í stakk búin fyrir spenn­andi tíma. Reynsla Kristrúnar í stefnu­mótun og þekk­ing frá vinnu í Hvítbók á eftir að nýt­ast okkur vel í áfram­hald­andi vinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár