Yfir milljón tonn af úrgangi

Árlegt magn úrgangs­efna hefur stór­auk­ist frá 2015 til 2016, sam­kvæmt nýrri skýrslu Umhverf­is­stofn­unar.

Frá ársfundi Umhverfisstofnunar í morgun
Frá árs­fundi Umhverf­is­stofn­unar í morgun

Úrgangs­efni Íslend­inga nam yfir milljón tonnum árið 2016 og stórjókst frá fyrra ári. Á sama tíma dróst losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda saman lít­il­lega milli ára, en er enn of há miðað við Kýótó­bók­un­ina. Þetta kemur fram í nýrri árs­skýrslu Umhverf­is­stofn­unar, sem var birt í morgun.

Samkvæmt skýrsl­unni dróst heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda saman um 2% milli 2015 og 2016, en hún hefur verið nokkuð stöðug frá 2011. Tveir þriðju hlutar af los­un­inni koma frá orku­geir­anum, þá aðal­lega af vega­sam­göngum og fiski­skipum. Þrátt fyrir stöðuga losun und­an­far­inna ára er hún 5% yfir los­un­inni árið 1990, en Íslend­ingar skuld­bundu sig að kom­ast undir það stig með Kýotó­bók­un­inni.

Hugs­an­leg van­ræksla á þeim skuld­bind­ingum gæti reynst rík­is­sjóði dýr, í skýrsl­unni segir: „Ef ekki dregur veru­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi mun losun Íslands á tíma­bil­inu verða langt umfram úthlut­aðar heim­ildir og mun Ísland þurfa að upp­fylla skuld­bind­ingar sínar með því að kaupa heim­ildir.“

Úrgangur sem féll til árið 2016 vóg rúm­lega 1.070 tonn, sem er 23% aukn­ing frá síð­asta ári. Samkvæmt skýrsl­unni má rekja þessa miklu aukn­ingu milli ára til auk­ins jarð­vegs-, jarð­efna- og óvirks úrgangs, sem gert er ráð fyrir að sé fylgi­fiskur auk­inna bygg­inga­fram­kvæmda.

Í leið­ara skýrsl­unnar segir Kristín Linda Árna­dóttir, for­stjóri Umhvef­is­stofn­unnar, „þetta redd­ast“ hugs­un­ar­hátt Íslend­inga vinna gegn bar­átt­unni í umhverf­is­málum og að vinna þurfi að lang­tíma­mark­miðum: „Það krefst lang­tíma­á­ætl­un­ar­gerðar að berj­ast gegn skað­legum lofts­lags­breyt­ingum, þar duga engar redd­ingar.“ Sem dæmi um lang­tíma­að­gerðir bendir Kristín á fjöru­hreinsun og hrósar svoköll­uðum „plokk­urum“ fyrir frum­kvæð­is­kraft.

Lesa má skýrsl­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár