194 í sóttkví og 17 í einangrun

Ekkert inn­an­lands­smit af kór­ónu­veirunni greind­ist í gær. Tæplega 200 manns eru nú í sótt­kví vegna nokk­urra smita sem stað­fest hafa verið síð­ustu daga.

Mikill fjöldi sýna hefur verið tekinn innlands síðustu sólarhringa.
Mikill fjöldi sýna hefur verið tek­inn inn­lands síð­ustu sól­ar­hringa. Mynd: EPA

Enginn greind­ist með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær eftir að fimm höfðu greinst dag­ana á undan. Tvö virk smit greindust í landamæra­skimunum gær­dags­ins, annað í fyrri skimun en hitt úr þeirri síð­ari.

194 eru í sótt­kví vegna þeirra smita sem greinst hafa síð­ustu daga. Sautján eru með COVID-19 í ein­angrun. Mikill fjöldi sýna hefur verið tek­inn inn­an­lands síð­ustu daga. Í gær voru tekin 785 svokölluð ein­kenna sýni og tæp­lega 1.600 slík voru tekin dag­inn áður.

Á þriðja tug manna, sem not­uðu tækja­sal World Class í Laugum, eftir að í ljós kom að sýktur ein­stak­lingur hafði verið innan þess sótt­varna­h­ólfs. Mest mega 50 manns vera í sama sótt­varn­ar­hólfi í einu og not­endur þurfa að skrá sig.

Þá fóru einnig um þrjá­tíu starfs­menn Hagkaups í Garðabæ í sótt­kví eftir að í ljós kom að starfs­maður sem vann við áfyll­ingu að næt­ur­lagi um helg­ina reynd­ist smit­aður af veirunni.

Að minnsta kosti hluti þeirra smita sem greinst hafa síð­ustu daga má rekja til far­þega sem kom til lands­ins 26. febr­úar. Hann fram­vís­aði nei­kvæðu COVID-prófi við kom­una til lands­ins og reynd­ist einnig nei­kvæður í fyrri landamæra­skimun. En í þeirri síð­ari, um fimm dögum síðar, fór hann í seinni skimun og greind­ist þá jákvæður og sýktur af hinu breska afbrigði veirunnar sem er meira smit­andi en önnur afbrigði.

Um helg­ina greindust þrír með veiruna inn­an­lands, einn á föstu­dag og tveir á laug­ar­dag. Að minnsta kosti tveir þess­ara þriggja ein­stak­linga voru sýktir af breska afbrigð­inu og bjuggu í sama fjöl­býl­is­húsi og sá sem kom til lands­ins 26. febr­úar. Ekki er talið að fólkið hafi átt í nánum sam­skiptum þannig að grunur bein­ist að því að nágrann­arnir hafi smit­ast í stiga­gang­inum og þá af hand­riði eða öðrum sam­eig­in­legum snertifleti.

Gestir á tón­leikum í Hörpu á föstu­dags­kvöld, sem sýktur ein­stak­lingur sótti, voru meðal þeirra sem boð­aðir voru í skimun. Þeim hefur verið boðið að mæta í aðra skimun síðar í vik­unni en þekkt er að veiran grein­ist ekki á PCR-prófi fyrr en nokkrum dögum eftir smit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár