Sigmundur Davíð einn flokksformanna sem talar ekki í eldhúsdagsumræðum

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins mun ekki tala fyrir hönd hans í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi í kvöld. Allir aðrir for­menn flokka munu taka þátt.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mun ekki tala fyrir hönd flokks­ins í almennum stjórn­mála­um­ræðum, eld­hús­dags­um­ræðum, á Alþingi í kvöld. Hann er eini flokks­for­mað­ur­inn sem ekki tekur þátt í umræð­unum. Tíu konur og átta karlar munu tala fyrir hönd flokka sinna í kvöld.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Elsa Lára Arn­ar­dóttir, þing­maður flokks­ins, munu þess í stað tala fyrir hönd flokks­ins.

Eld­hús­dags­um­ræður fara fram í þremur umferðum og hver þing­flokkur hefur tíu mín­útur í fyrstu umferð, sex mín­útur í annarri og sex mín­útur í þriðju umferð. Röð flokk­anna verður Sam­fylk­ingin, Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð, Fram­sókn­ar­flokkur, Björt fram­tíð og að lokum Píratar.

Fyrir Sam­fylk­ing­una munu frá­far­andi for­maður og vara­for­maður flokks­ins, Árni Páll Árnason og Katrín Júl­í­us­dóttir, tala fyrir hans hönd auk Ólínu Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur.

Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum munu Bjarni Bene­dikts­son for­maður, Elín Hirst og Vil­hjálmur Árnason tala. Fyrir VG mun for­mað­ur­inn Katrín Jak­obs­dóttir halda fyrstu ræðu og svo Ögmundur Jónasson og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir.

Hjá Bjartri fram­tíð mun Óttarr Proppé for­maður tala fyrst, svo Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og að lokum Róbert Marshall. Píratar hafa ekki for­mann en allir þing­menn flokks­ins munu halda ræður, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Ásta Guðrún Helga­dóttir og Birgitta Jóns­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár