Mun færri innflytjendur útskrifast úr framhaldsskóla

Tölur Hag­stof­unnar benda til þess að bak­grunnur hafi áhrif á laun og menntun hér á landi. Inn­flytj­endur eru með lægri laun en inn­lendir fyrir sömu störf og mun færri inn­flytj­endur útskrif­ast úr fram­halds­skóla.

Skóla­sókn inn­flytj­enda á Íslandi er að jafn­aði lægri en skóla­sókn inn­lendri. Mestur er mun­ur­inn í fram­halds­skóla en ef litið er á alla braut­skráða nem­endur á fram­halds­skóla­stigi, skóla­árið 2016 til 2017 sem hlut­fall af mann­fjölda á aldr­inum 18 til 22 ára, hafa tæp 24 pró­sent þeirra sem hafa íslenskan bak­grunn útskrif­ast þetta ár. Þá hafa 16,5 pró­sent þeirra sem eru fæddir erlendis, með annað for­eldrið erlent, útskrif­ast þetta ár en aðeins rúm 8 pró­sent inn­flytj­enda. Þetta kemur fram í tölum Hag­stof­unnar.

Bakgrunnur hefur áhrif á menntun og störf hér á landi

[links]Hlut­fall inn­flytj­enda á Íslandi hefur aldrei verið hærra en árið 2018 en þá voru inn­flytj­endur 12,6 pró­sent mann­fjöld­ans. Hag­stofa Íslands birti í jan­úar síð­ast­liðnum sam­an­tekt um félags­lega vel­ferð inn­flytj­enda. Í nið­ur­stöðum Hag­stof­unnar kom fram að hér á landi hafi inn­flytj­endur almennt gott aðgengi að vinnu­mark­að­inum og séu upp til hópa aðilar að stétt­ar­fé­lagi. Aftur á móti vinni inn­flytj­endur hlut­falls­lega meira en inn­lendir en fái að jafn­aði lægri tekj­ur.

Í síð­ustu viku greindi Hag­stofan frá því að inn­lendir séu með hærri laun en inn­flytj­endur í þeim störfum sem inn­flytj­endur vinna oft­ast við hér á landi. Þá eru inn­flytj­endur að jafn­aði með tæp­lega 8 pró­sent lægri laun en inn­lendir hér á landi. Samkvæmt grein­ingu Hag­stof­unnar var skil­yrtur launa­munur 10 pró­sent í störfum ræst­inga­fólks og aðstoð­ar­fólks í mötu­neytum milli inn­lendra og inn­flytj­enda, 11 pró­sent í störfum verka­fólks við hand­sam­setn­ingu og 8 pró­sent í störfum við barna­gæslu.

Jafn­framt áætlar Hag­stofan að inn­flytj­endur séu í meira mæli ofmennt­aðir fyrir störfin sem þeir gegna en inn­lend­ir. Auk þess benda nið­ur­stöður til þess að inn­flytj­endur beri að jafn­aði minna úr býtum fyrir menntun sína en inn­lend­ir. Það á bæði við um grunn­mennt­aða og háskóla­mennt­aða ein­stak­linga.

Skóla­sókn inn­flytj­enda að jafn­aði lægri

Skóla­sókn inn­flytj­enda í leik­skóla, fram­halds­skóla og háskóla er að jafn­aði lægri en skóla­sókn inn­lendri hér á landi. Mestur er mun­ur­inn í fram­halds­skóla en hlut­falls­lega færri inn­flytj­endur en inn­lendir byrja í fram­halds­skóla við 16 ára aldur og skóla­sókn þeirra lækkar meira fyrir hvert ald­ursár.

Ef horft er til 2017 má sjá að nærri allir inn­lendir á 16. ald­ursári sækja fram­halds­skóla, en átta af hverjum 10 inn­flytj­end­um. Á 19. ald­ursári sóttu um sjö af hverjum 10 inn­lendum íbúum fram­halds­skóla, en aðeins um tveir af hverjum 10 inn­flytj­end­um. End­ur­tekn­ing þessa mynsturs á árunum 2008 til 2017 gefur vís­bend­ingu um að brott­hvarf úr fram­halds­skóla sé algeng­ara meðal inn­flytj­enda en inn­lendra. Jafn­framt hafa flestir þeirra inn­flytj­endur sem sækja fram­halds­skóla hér landi dvalist á Íslandi í meira en níu ár.

Í grein­ingu Hag­stof­unnar telj­ast ein­stak­lingar sem eru fæddir erlendis og eiga báða for­eldra af erlendum upp­runa sem inn­flytj­endur. Skiptinemar, sem koma til styttri dvalar á Íslandi, telj­ast með inn­flytj­endum í þessum tölum. Annarrar kyn­slóðar inn­flytj­endur eru þeir sem eru fæddir á Íslandi en báðir for­eldrar eru inn­flytj­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár