Innflytjendur með 8 prósent lægri laun en innlendir

Á Íslandi eru inn­flytj­endur að jafn­aði með 8 pró­sent lægri laun en inn­lendir. Þá fá inn­lendir hærri laun en inn­flytj­endur í þeim störfum sem inn­flytj­endur vinna oft­ast við hér á landi. Jafn­framt bera inn­flytj­endur minna úr bítum fyrir menntun sína.

Innflytjendur eru að jafnaði með tæplega 8 prósent lægri laun en innlendir hér á landi. Það er að teknu tilliti til kyns, aldurs, menntunar, fjölskylduhaga, búsetu og ýmissa starfstengdra þátta en með því að leiðrétta fyrir þessum þáttum fæst skýrari mynd af þeim áhrifum sem bakgrunnur hefur á laun hér á landi. Þetta kemur fram í greiningu Hagstofu Íslands á launamun innflytjenda og innlendra fyrir tímabilið 2008 til 2017 sem unnin var í samvinnu við innflytjendaráð.

Innlent ræstingafólk með 11 prósent hærri laun en innflytjendur í sama starfi

Á vef Hagstofunnar eru innflytjendur skilgreindir sem einstaklingar sem fæddir eru erlendis og eiga foreldra sem báðir eru fæddir erlendis, auk þess að eiga afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis. Innlendir er notað yfir alla aðra, sem eru þá að einhverju leyti með íslenskan bakgrunn.

Í niðurstöðum Hagstofunnar kemur fram að innlendir eru með hærri laun en innflytjendur í þeim störfum sem innflytjendur vinna oftast við hér á landi. Þá hafi skilyrtur launamunur verið 10 prósent í störfum ræstingafólks og aðstoðarfólks í mötuneytum milli innlendra og innflytjenda, 11 prósent í störfum verkafólks við handsamsetningu og 8 prósent í störfum við barnagæslu.

Jafnframt benda útreikningar Hagstofunnar til þess að innflytjendur beri að jafnaði minna úr býtum fyrir menntun sína en innlendir. Það á bæði við um grunnmenntaða og háskólamenntaða einstaklinga

Innflytjendur fæddir á Norðurlöndunum með hærri laun

Þá eru innflytjendur fæddir á Norðurlöndunum að jafnaði með hærri laun en innflytjendur fæddir í öðrum löndum. Til dæmis eru innflytjendur frá Vestur-Evrópu að jafnaði með 4 prósent lægri laun en innflytjendur frá Norðurlöndunum og innflytjendur frá Austur-Evrópu að jafnaði með 6 prósent lægri laun. Lægstu launin, miðað við innflytjendur frá Norðurlöndunum, hafa innflytjendur frá Asíu, eða 7 prósent að jafnaði.

Niðurstöður Hagstofunnar sýndu einnig að þeir innflytjendur sem komu til Íslands fyrir 6 til 9 árum hafa að jafnaði 2 prósent hærri laun en þeir sem hafa dvalið hér á landi 5 ár eða skemur. Þær sýna einnig að þeir sem hafa verið hér í 10 ár eða lengur eru að jafnaði með 3 prósent hærri laun.

Farið að hægja á fjölgun erlendra ríkisborgara

[links]Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að erlendum rík­is­borg­urum sem búsettir eru á Íslandi fjölg­aði um 820 á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2019. Þeir voru alls 45.130 í byrjun þessa mán­að­ar­. Til sam­an­burðar þá fjölgað erlendum rík­is­borg­urum með búsetu á Íslandi um 1.620 á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2018. Því virð­ist allt stefna í að mun færri erlendir rík­is­borg­arar muni flytja til lands­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs en gerðu það á sama tíma­bili í fyrra.

Á árunum 2017 og 2018 átti sér stað met­fjölgun erlendra rík­is­borg­ara sem koma hingað til lands til að búa hér. Á því tíma­bili fjölg­aði þeim um alls 13.930, eða um tæp 46 pró­sent. Ástæðan er sú að á Íslandi var mik­ill efna­hags­upp­gangur og mik­ill fjöldi starfa var að fá sam­hliða þeim upp­gangi, sér­stak­lega í þjón­ustu­störfum tengdum ferða­þjón­ustu og í bygg­inga­iðn­aði. Nú þegar hag­kerfið er farið að kólna og spenna að losna þá virðist sem erlendum rík­is­borg­urum sem sækja hingað til lands fækki sam­hliða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár