Innflytjendur vinna meira, eiga minna og búa þrengra

Inn­flytj­endur hafa almennt gott aðgengi að íslenskum vinnu­mark­aði og eru upp til hópa aðilar að stétt­ar­fé­lagi, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Aftur á móti eiga þeir erfitt með að sækja sér menntun, fá síður störf við hæfi og búa við þrengri hús­næð­is­kost.

Hlutfall inn­flytj­enda á Íslandi hefur aldrei verið hærra en árið 2018 en þá voru inn­flytj­endur 12,6 pró­sent mann­fjöld­ans. Hagstofa Íslands hefur nú í fyrsta sinn birt sér­hefti um félags­lega vel­ferð inn­flytj­enda en í heft­inu er reynt að draga upp heild­stæða mynd af stöðu inn­flytj­enda á Íslandi.

Í nið­ur­stöðum Hag­stof­unnar segir að hér á landi hafi inn­flytj­endur almennt gott aðgengi að vinnu­mark­að­inum og séu upp til hópa aðilar að stétt­ar­fé­lagi. Aftur á móti vinni inn­flytj­endur hlut­falls­lega meira en inn­lendir en fái að jafn­aði lægri tekjur. Auk þess áætlar Hag­stofan að inn­flytj­endur séu í meira mæli ofmennt­aðir fyrir störfin sem þeir gegna en inn­lendir. Algeng­ara er að inn­flytj­endur búi á leigu­mark­aði og búi almennt þrengra en inn­lendir.

Hlutfall innflytjenda orðið svipað og í Noregi og Danmörku

[links]Inn­flytj­endum á Íslandi hefur farið fjölg­andi síð­ast­liðin tíu ár. Árið 2008 voru inn­flytj­endur á Íslandi 27.240 tals­ins, eða 8 pró­sent mann­fjöld­ans, en 10 árum seinna voru þeir orðnir 43.736, eða 12,6 pró­sent mann­fjöld­ans árið 2018. Hlutfall inn­flytj­enda á Íslandi er nú orðið áþekkt því sem þekk­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum en hlut­fall inn­flytj­enda í Noregi er 14,1 pró­sent og í Danmörku 10,2 pró­sent. Hlutfall inn­flytj­enda á Íslandi er hins vegar tölu­vert lægra en í Svíþjóð, þar sem 18,6 pró­sent íbúa voru fæddir erlendis í lok árs 2017.

Að því sögðu er hlut­fall ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­enda þó lægra hér á landi en á hinum Norð­ur­lönd­unum, sem er til marks um stutta sögu inn­flytj­enda hér á landi. Á Íslandi telj­ast 1,4 pró­sent þjóð­ar­innar til ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­enda í byrjun árs 2018 en fyrir 20 árum síðan til­heyrðu ein­ungis 0,1 pró­sent lands­manna annarri kyn­slóð inn­flytj­enda hér á landi. Annarri kyn­slóð inn­flytj­enda fer því fjölg­andi, þó hóp­ur­inn sé enn lít­ill hluti þjóð­ar­innar.

Flestir innflytjendur hafa dvalið á Íslandi í minna en fimm ár

Í umfjöllun Hag­stof­unnar segir að inn­flytj­endur séu fjöl­breyttur hópur sem kemur hingað til lands af ýmsum ástæð­um; til að mennta sig, vinna, vegna fjöl­skyldu­tengsla eða eru ein­stak­lingar á flótta. Samkvæmt Hag­stof­unni er meðal ann­ars það sem ein­kennir inn­flytj­endur á Íslandi er að flestir eru á vinnu­aldri, hafa dvalið hér í stuttan tíma, eru með lága fæð­ing­ar­tíðni og eru að meiri­hluta karl­menn.

Jafn­framt eiga flestir inn­flytj­endur hér á landi upp­runa sinn í löndum þar sem heilsa, menntun og efna­hags­á­stand er svipað og á Íslandi og telst með því besta sem þekk­ist á alþjóð­legan mæli­kvarða. Inn­flytj­endur á Íslandi eru flestir á aldr­inum 25 til 49 ára og algeng­ast er að inn­flytj­endur hafa dvalið á Íslandi í minna en fimm ár.Á síð­ustu tíu árum hefur þó fjölgað í hópnum sem hefur dvalið á Íslandi í meira en níu ár.[adspot]

Hlutfallslega fleiri innflytjendur starfandi

Hagstofa Íslands gerir engar beinar mæl­ingar á því hvaða ástæður liggja að bak þess að inn­flytj­endur flytja til lands­ins en slá má föstu að íslenskur vinnu­mark­aður sé einn þeirra þátta sem dregur fólk til lands­ins. Atvinnu­leysi á Íslandi er tölu­vert lægra en í hefð­bundnum sam­an­burð­ar­löndum, eða um 2,8 pró­sent árið 2017. Evr­ópskur sam­an­burður bendir jafn­framt til þess að laun á Íslandi séu almennt hærri en gengur og ger­ist í Evrópu.

Í umfjöllun Hag­stof­unnar segir að allt bendi til þess inn­flytj­endur hafi gott aðgengi að íslenskum vinnu­mark­aði. Á árunum 2016 og 2017 voru hlut­falls­lega fleiri inn­flytj­endur starf­andi hér á landi en inn­lendir. Áætlað er að á bil­inu 86 pró­sent til 91 pró­sent inn­flytj­enda hafi verið starf­andi hér á landi árð 2017 á miðað við 79 til 81 pró­sent inn­lendra.

Sam­bæri­legar nið­ur­stöður má finna í Ísrael, Ung­verja­landi og Lúx­em­borg þar sem hlut­fall starf­andi er að minnsta kosti 7 pró­sent hærra meðal inn­flytj­enda en inn­lendra. Nið­ur­stöð­urnar eru hins vegar ólíkar tölum frá Belgíu Frakk­landi, Danmörku, Hollandi og Svíþjóð, þar sem hlut­fall starf­andi er að minnsta kosti 10 pró­sent lægra meðal inn­flytj­enda en inn­lendra.

Færri innflytjendur eru með háar heildartekjur

Þó atvinnu­þátt­taka inn­flytj­enda sé mikil sýna nið­ur­stöð­urnar að þeir vinni síður störf sem hæfa þeirra menntun en inn­lendir. Ef mið­gildi heild­ar­tekna er borið saman milli inn­flytj­enda og inn­lendra sést að tekjur eru að jafn­aði lægri hjá inn­flytj­endum en þróun fylgist að yfir tíma­bilið. Árið 2017 var mið­gildi heild­ar­tekna inn­flytj­enda 4,9 millj­ónir ári hjá inn­flytj­endum en 5,2 millj­ónir á ári hjá inn­lendum. Því munar að jafn­aði um 300.000 krónum á árs­tekjum inn­flytj­enda og inn­lendra árið 2017. Það bendir til þess að hlut­falls­lega færri inn­flytj­endur séu með mjög háar heild­ar­tekjur en inn­lendir. Jafn­framt eru inn­flytj­endur að jafn­aði með lægri tekjur af félags­legum greiðslum en inn­lendir og skulda að jafn­aði minna.

Inn­flytj­endur eiga að jafn­aði minni eignir og í krónum talið er sá munur meiri en á heild­ar­tekjum eftir bak­grunni. Þessi munur á eigna­stöðu kemur ekki á óvart ef horft er til þess að stór hluti inn­flytj­enda hefur dvalið stuttan tíma á Íslandi. Ef mið­gildi eigna er brotið niður eftir lengd dvalar má sjá að þeir sem hafa búið hér í stuttan tíma eiga minnstar eignir, á meðan þeir sem hafa búið á Íslandi í meira en níu ár eru eigna­meiri. Engu að síður er mið­gildi eigna inn­flytj­enda sem hafa búið á Íslandi í meira en níu ár lægra en mið­gildi eigna inn­lendra almennt.

Innflytjendur eru líklegri til að vera ofmenntaðir fyrir störfin sem þeir gegna

Áætlað er að inn­flytj­endur séu í meira mæli ofmennt­aðir fyrir störfin sem þeir gegna en inn­lendir. Samkvæmt Hag­stof­unni er erfitt að leggja nákvæmt mat á hversu stórt hlut­fall inn­flytj­enda telj­ist ofmennt­aðir fyrir störfin sem þeir sinna, þá sýna nið­ur­stöð­urnar Hag­stof­unnar skýrt að ofmenntun er algeng­ari meðal inn­flytj­enda en inn­lendra á hverju ári frá 2009 til 2017. Ofmenntun er skil­greind sem hlut­fall háskóla­mennt­aðra ein­stak­linga af öllum starf­andi, sem vinna við störf sem krefj­ast lágrar eða meðal mik­illar færni.

Sníði sér stakk eftir vexti

Algeng­ara er að inn­flytj­endur séu á leigu­mark­aði en inn­lendir. Hag­stofan segir að erfitt sé að leggja nákvæmt mat á hversu stórt hlut­fall inn­flytj­enda er á leigu­mark­aði en áætlað er að á bil­inu 34 til 53 pró­sent inn­flytj­enda hafi verið á leigu­mark­aði á árunum 2008 til 2016. Á sama tíma er áætlað að 13 til 21 pró­sent inn­lendra hafi verið á leigu­mark­aði. Ef horft er á tölur árs­ins 2016, þá er áætlað að á bil­inu 40 til 54 pró­sent inn­flytj­enda hafi verið á leigu­mark­aði.

Auk þess var hærra hlut­fall inn­flytj­enda sem bjó við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað en inn­lendir árið 2016. Hjá inn­flytj­endum var með­al­byrði hús­næð­is­kostn­aðar á bil­inu 21 til 27 pró­sent hjá inn­flytj­endum en 19,5 pró­sent til 21 pró­sent fyrir inn­lenda. Þegar hús­næð­is­kostn­að­ur­inn nemur 40 pró­sent eða meira af heild­ar­tekjum heim­il­is­ins telst hann veru­lega íþyngj­andi.

Á árunum 2008 til 2016 eru fleiri inn­flytj­endur sem búa þröngt en inn­lendir. Á þessum árum er áætlað að á bil­inu 15 til 33 pró­sent inn­flytj­enda hafi búið þröngt, á meðan 5,9 til 7,6 pró­sent inn­lendra eru taldir hafa búið við sömu aðstæður á sama tíma­bili. Ef töl­urnar fyrir inn­flytj­endur eru settar í sam­hengi við lægri heild­ar­tekjur þeirra og meira þröng­býli meðal þessa hóps , þá er hægt að draga þá ályktun að áþekk byrði hús­næð­is­kostn­aðar inn­flytj­enda og inn­lendra sé til marks um að fólk í mörgum til­vikum sníði sér stakk eftir vexti.

Skólasókn innflytjenda að jafnaði lægri

Í nið­ur­stöðum Hag­stof­unnar kemur fram að skóla­sókn inn­flytj­enda í leik­skóla, fram­halds­skóla og háskóla er að jafn­aði lægri en skóla­sókn inn­lendra. Mestur er mun­ur­inn í fram­halds­skóla en hlut­falls­lega færri inn­flytj­endur en inn­lendir byrja í fram­halds­skóla við 16 ára aldur og skóla­sókn þeirra lækkar meira fyrir hvert ald­ursár.

Ef horft er til 2017 má sjá að nærri allir inn­lendir á 16. ald­ursári sækja fram­halds­skóla, en átta af hverjum 10 inn­flytj­endum. Á 19. ald­ursári sóttu um sjö af hverjum 10 inn­lendum íbúum fram­halds­skóla, en aðeins um tveir af hverjum 10 inn­flytj­endum. End­ur­tekn­ing þessa mynsturs á árunum 2008 til 2017 gefur vís­bend­ingu um að brott­hvarf úr fram­halds­skóla sé algeng­ara meðal inn­flytj­enda en inn­lendra. Jafn­framt hafa flestir þeirra inn­flytj­endur sem sækja fram­halds­skóla hér landi dvalist á Íslandi í meira en níu ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár