Fleiri Íslendingar fluttu burt af landinu í fyrra en til þess

Á síð­ustu tveimur árum hafa 14.470 fleiri erlendir rík­is­borg­arar flutt til Íslands en frá land­inu. Í fyrra fluttu 75 færri Íslend­ingar til lands­ins en frá því. Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað um 112 pró­sent á sjö árum.

Fleiri Íslendingar flytja nú frá landinu en til þess þrátt fyrir mikla efnahagslega uppsveiflu síðastliðin ár.
Fleiri Íslend­ingar flytja nú frá land­inu en til þess þrátt fyrir mikla efna­hags­lega upp­sveiflu síð­ast­liðin ár. Mynd: Bára Huld Beck

Fleiri Íslend­ingar fluttu frá Íslandi á síð­asta ári en komu aftur heim. Brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­arar voru 75 fleiri en þeir sem fluttu til lands­ins, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Það gerð­ist þrátt fyrir gott árferði, nær ekk­ert atvinnu­leysi, stór­auk­inn kaup­mátt og for­dæma­lausa efna­hags­lega stöðu þjóð­ar­bús­ins.

[links]Á sama tíma og íslenskum rík­is­borg­urum fækk­aði fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem hingað flytja áfram mikið. Alls fjölg­aði þeim um 6.560 á árinu 2018 sem er næst mesta fjölgun þeirra á einu ári sem nokkru sinni hefur átt sér stað. Metárið er enn 2017, þegar 7.910 fleiri erlendir rík­is­borg­arar fluttu til Íslands en frá land­inu.

Sjaldgæft að Íslendingar flýji góðæri

Í byrjun jan­úar 2016 birti Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) grein­ingu á brott- og aðflutn­ingi til Íslands síð­ustu 50 árin. Þar kom fram að þrátt fyrir bætt efna­hags­leg skil­yrði hefur brott­flutn­ingu ­ís­lenskra rík­is­borg­ara frá Íslandi auk­ist á árunum 2014 og 2015.

Fleiri Íslend­ing­ar fluttu frá land­inu en til þess. Frá árinu 1961 hafa verið átta tíma­bil þar sem brott­flutn­ingur á hverju ári hefur verið yfir með­al­tali áranna 1961 til­ 2015. Sjö þeirra tíma­bila hafa verið í tengslum við öfgar í efna­hags­líf­i ­þjóð­ar­innar á borð við brott­hvarf síld­ar­inn­ar, mikla verð­bólgu eða hátt atvinnu­leysi.

[adspot]Eina tíma­bilið af þessum átta sem sker sig úr er 2014 til 2015 þar sem eng­ar hefð­bundnar efna­hags­legar for­sendur eru fyrir auknum brott­flutn­ingi. Fólk flutti frá Íslandi þrátt fyrir efna­hags­legan upp­gang.

Þessi þróun hélt áfram á árinu 2016 þegar brott­fluttir Íslend­ingar voru 190 fleiri en aðfluttir.

Olli ráðamönnum hugarangri

Þessi staða olli þáver­andi ráða­mönnum tölu­verðu hug­ar­angri. Þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og aðstoð­ar­menn hans héldu því fram í opin­berri umræðu að það væri rangt að fjöldi brott­fluttra væri óeðli­lega mik­ill.

For­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi gerði málið m.a. að umtals­efni í ára­móta­grein sinni í Morg­un­blað­inu og sagði hlut­fall brott­fluttra undir 40 ára á árinu 2015 lágt í sam­an­burði við liðin ár og ára­tugi. Það væri afmark­aður en hávær hópur fólks, sem ætti erfitt að sætta sig við góðar fréttir, sem héldi hinu gagn­stæða fram. Jákvæð þróun veki hjá hópnum gremju, hún sé litin horn­auga og tor­tryggð á allan mögu­legan hátt. Þetta sé sá hópur fólks sem getur ekki sætt sig við að jákvæðir hlutir ger­ist ef þeir ger­ast ekki í krafti hinnar einu „réttu“ hug­mynda­fræði.

Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Lét til að mynda tví­vegis hafa eftir haustið 2016 að í fyrsta skipti í mörg ár væri útlit fyrir að á árinu 2016 myndu fleiri Íslend­ingar flytj­ast til lands­ins en frá land­in­u. Það varð þó ekki raunin.

Erlendum fjölgað um 112 prósent

Árið 2017 varð loks við­snún­ingur. Íslend­ingum fjölg­aði um 360 á einu mesta góð­ær­is­ári í manna minnum en erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði á sama tíma um 7.910. Íslenskir aðfluttir rík­is­borg­arar voru því ábyrgir fyrir 4,4 pró­sent þeirrar aukn­ingar sem varð vegna aðfluttra ein­stak­linga á því ári.

Í fyrra sner­ist sú þróun aftur við og brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­arar voru 75 fleiri en aðfluttir, á sama tíma og erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 6.560 umfram þá sem fóru. Alls er fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem búa á Íslandi nú 44.310. Hann var 20.930 í lok árs 2011 og því erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 112 pró­sent á sjö árum. Á sama tíma hefur íslenskum rík­is­borg­urum fjölgað um 4,7 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár