SALEK-viðræðurnar strönduðu vegna lífeyrismála

Ástæða þess að það slitn­aði upp úr við­ræðum helstu við­semj­enda á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði í síð­ustu viku, hinum svoköll­uðu SALEK-við­ræðum, var sú að aðilar náðu ekki saman um líf­eyr­is­mál. Full­trúar opin­beru félag­anna gátu ekki fall­ist á að taka kostnað vegna líf­eyr­is­rétt­inda inn í við­ræður um launa­samn­inga. Frá þessu greinir Morg­un­blaðið í dag. Upp úr slitn­aði við­ræð­unum í síð­ustu viku.

SALEK stendur fyrir sam­starfs­nefnd um launa­upp­lýs­ingar og efna­hags­for­sendur kjara­samn­inga. Að nefnd­inni standa fern heild­ar­sam­tök launa­fólks, Alþýðu­sam­band Íslands, Bandalag háskóla­manna, Bandalag starfs­manna ríkis og bæja og Kenn­ara­sam­bandið, og fyrir hönd vinnu­veit­enda Samtök atvinnu­lífs­ins, Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Sér­fræð­ingar þess­ara félaga og sam­taka hafa und­an­farin þrú ár unnið að því að inn­leiða bætt vinnu­brögð við gerð kjara­samn­inga á Íslandi, að nor­rænni fyr­ir­mynd.

Hugmyndir um „launaskriðstryggingu“


Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins í dag segir að vonir standi til að við­ræður hefj­ist á nýjan leik fyrr en síðar. Áður en upp úr slitn­aði hafði hóp­ur­inn meðal ann­ars útfært hug­myndir þess efnis að öllum hópum á vinnu­mark­aði yrðu tryggð sam­bæri­leg launa­þróun, með þeim hætti að allir við­semj­endur séu skuld­bundnir til þess að launa­kostn­að­ar­hækk­anir, að líf­eyr­is­fram­lögum metöldum, yrðu sam­bæri­legar hjá öllum hópum. Lagt var til að þessu yrði náð með svo­kall­aðri „launa­skriðs­trygg­ingu“. Launa­þróun á almennum vinnu­mark­aði umfram opin­bera launa­mark­aða­inn yrði þá bætt þeim opin­beru starfs­mönnum sem ekki nutu launa­hækk­ana upp í lok árs með greiðslu launa­skriðs­trygg­ingar.

Sú sviðs­mynd sem dregin var upp af hag­fræð­ingum þeirra sam­taka sem eiga aðild að við­ræð­unum, og við­semj­endur voru sam­mála um, sýndi að launa­þróun hjá hinu opin­bera hefur þró­ast langt umfram launa­hækk­anir á almenna mark­að­inum. Þær hækk­anir sem BHM fékk með gerð­ar­dómi átti að nota sem við­mið í mögu­legu sam­komu­lagi og stefnt að því að launa­hækk­anir yrðu sam­bæri­legar milli laun­þega­hreyf­ing­anna fjög­urra árið 2018 og að sú hækkun nemi 32 pró­sentum frá nóv­em­ber 2013 til nóv­em­ber 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár