IKEA endurgreiddi Vinnumálastofnun 65 milljónir vegna hlutabótaleiðarinnar

Þrátt fyrir tekju­fall þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var sem verstur varð um 500 millj­óna króna hagn­aður af rekstri IKEA í fyrra. Fram­kvæmda­stjóri segir ákvörðun hafa verið tekna um að nýta ekki úrræði stjórn­valda vegna þess hve góður rekst­ur­inn var.

Verslun IKEA hefur verið í Kauptúni í Garðabæ frá árinu 2006.
Verslun IKEA hefur verið í Kauptúni í Garðabæ frá árinu 2006. Mynd: IKEA

Hluta­starfa­leiðin var nýtt fyrir 180 starfs­menn Mikla­torgs hf. í um fjórar vikur á síð­asta ári, við upp­haf kór­ónu­veiru­far­ald­urs, en félagið heldur utan um rekstur IKEA í Kauptúni. Á tíma­bil­inu voru 65 millj­ónir greiddar í hluta­bætur af Vinnu­mála­stofnun til starfs­manna félags­ins og var Mikla­torg meðal þeirra félaga sem hæstar greiðslur fengu í gegnum úrræðið í mars og apríl í fyrra, líkt og lesa má í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um hluta­starfa­leið­ina. Sú fjár­hæð var end­ur­greidd nokkrum vikum síðar að sögn Stefáns Rúnars Dags­sonar, fram­kvæmda­stjóra IKEA.

„Við fórum inn í þetta þar sem að stjórn­völd hvöttu okkur til þess, fyr­ir­tækin í land­inu, til þess að nýta þessa leið því það voru óvissu­tímar og annað. Við nýttum okkur þetta í örugg­lega fjórar vikur,“ segir Stefán í sam­tali við Kjarnann. Í kjöl­farið hafi skap­ast nei­kvæð umræða um fyr­ir­tæki sem nýttu sér úrræðið auk þess sem for­sendur breytt­ust. „Við sáum fram á það að við myndum geta kom­ist í gegnum þetta án hjálpar, þannig að við end­ur­greiddum strax.“

Starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins hafi á þessum fjórum vikum fengið greiðslur frá Vinnu­mála­stofnun en fyr­ir­tækið svo greitt stofn­un­inni til baka. „Við vorum ekk­ert að aug­lýsa það eða berja okkur á brjóst út af því að við vorum að gera það. Við ákváðum bara að þegja yfir því,“ segir Stefán um end­ur­greiðsl­una.

Úrræðið ekki ætlað stöndugum fyrirtækjum

[links]Hluta­starfa­leiðin var umfangs­mesta efna­hags­að­gerð rík­is­stjórn­ar­innar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Líkt og fram kemur í frétt RÚV um úrræðið þá nýttu yfir 36.500 launa­menn sér bóta­leið­ina og rúm­lega 6.700 atvinnu­rek­endur. 28 millj­arðar króna voru greiddir í formi hluta­bóta frá mars 2020 þar til úrræðið rann sitt skeið á enda í lok maí á þessu ári.

Samkvæmt skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nýt­ingu efna­hagsúr­ræða voru flestir á hluta­starfa­leið í mars og apríl í fyrra. Verulega fækk­aði í hópi þeirra sem fengu greiddar hluta­bætur þegar fyr­ir­tækjum voru settar þrengri skorður fyrir nýt­ingu úrræð­is­ins í fyrra­vor. Þá var gerð rík­ari krafa um tekju­skerð­ingu auk þess sem girt var fyrir það að atvinnu­rek­endur gætu greitt sér arð, lækkað hlutafé, greitt óum­samda kaupauka eða keypt eigin bréf fyrr en í fyrsta lagi í júlí 2023.

Rík­is­end­ur­skoðun fjall­aði ítar­lega um hluta­starfa­leið­ina í skýrslu sinni sem kom út í maí í fyrra og áður hefur verið minnst á hér að ofan. Í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar er sagt að af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum hafi mátt ráða að úrræðið hefði ekki verið ætlað stönd­ugum fyr­ir­tækjum.

Í skýrsl­unni segir einnig að nokkuð frjáls­ræði hafi verið á túlkun lag­anna. „Í hópi þeirra aðila sem hafa nýtt sér hluta­starfa­leið­ina eru fyr­ir­tæki og fyr­ir­tækja­sam­stæður sem búa að öfl­ugum rekstri og traustum efna­hag en ekki verður séð af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum að slíkt hafi verið ætl­unin,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni. Þar kom einnig fram að sum fyr­ir­tæki hefðu boðað end­ur­greiðslu á hluta­bótum. Að minnsta kosti 88 fyr­ir­tæki hafa end­ur­greitt hluta­bætur.

Hafa endurgreitt opinberan stuðning

Rekstur IKEA var með fín­asta móti í fyrra en félagið Mikla­torg hagn­að­ist um rétt tæpar 500 millj­ónir króna. 99,9 pró­sent af hlutafé Mikla­torgs er í eigu eign­ar­halds­fé­lags­ins Hofs sem er í eigu bræðr­anna Jóns og Sigurðar Gísla Pálma­sonar. Samkvæmt skýrslu stjórnar í árs­reikn­ingi Mikla­torgs er lagt til að 500 millj­ónir króna verði greiddar í arð til eig­enda vegna síð­asta rekstr­ar­árs.

Þrátt fyrir hund­ruð millj­óna hagnað á árinu varð félagið engu að síður fyrir tekju­tapi þegar far­ald­ur­inn var sem verstur, salan féll um 15 pró­sent frá mars til júlí í fyrra, sam­kvæmt árs­reikn­ingi.

„Við urðum fyrir alveg gíf­ur­legu tekju­falli þessar sex vikur sem við lok­uðum og þessa mán­uði þegar COVID var sem verst, bæði í mars og apríl og síðan aftur í nóv­em­ber, des­em­ber. En við sáum fram á það að við gætum staðið þetta af okkur og við gerðum það. Síðan komu bara mjög góðir tímar þar sem fólk var ekki að ferð­ast og var bara að laga til og breyta heim­ilum sínum og eyddi pen­ingum inn­an­lands og við fengum hluta af því,“ segir Stefán.

Spurður að því hvort fyr­ir­tækið hafi nýtt sér önnur úrræði stjórn­valda, líkt og ráðn­ing­ar­styrki sem í boði eru í tengslum við átakið Allir vinna, segir Stefán svo ekki vera. „En við höfum verið að ráða mikið af fólki og við réðum mikið af fólki bara í gegnum COVID til þess að ná að anna öllum þessum net­pönt­unum og öðru.“

Að sögn Stefáns hafi eitt annað úrræði verið nýtt, frestun á opin­berum gjöldum. „Ég held að við höfum mátt fresta því til árs­ins 2022 en við erum líka búin að greiða það til baka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár