Björt framtíð fer ekki fram í Reykjavík

Línur eru teknar að skýr­ast þegar kemur að fram­boðs­málum Bjartrar fram­tíðar.

Björt fram­tíð mun ekki bjóða fram lista í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Þetta stað­festir Björt Ólafs­dóttir, for­maður flokks­ins, í sam­tali við Frétta­blaðið í dag.

Eins og greint hefur verið frá hafa þreif­ingar verið milli Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar um sam­starf í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, bæði í borg­inni og í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Nú liggur fyrir að ekki verður af slíku sam­starfi í Reykja­vík og Björt fram­tíð mun heldur ekki bjóða fram sér í borg­inni.

Flokk­ur­inn þurrk­að­ist næstum alveg af hinu póli­tíska sviði í Alþing­is­kosn­ing­unum í fyrra, en hann fékk þá 1,2 pró­sent fylgi.

Kjörnir full­trúar flokks­ins í Reykja­vík ætla ekki að gefa kost á sér aftur en Björt fram­tíð á tvo borg­ar­full­trúa, þau Sigurð Björn Blöndal og Elsu Hrafn­hildi Yeoman og hafa þau starfað með meiri­hlut­anum í Reykja­vík á því kjör­tíma­bili sem er að ljúka. „Þetta var samt hvorki auð­veld né létt­væg ákvörðun, enda erum við ofboðs­lega stolt af þeim áþreif­an­legu breyt­ingum sem hafa orðið á póli­tík­inni í Reykja­vík­ur­borg. Besti flokk­ur­inn kom og breytti þar algjör­lega um kúrs og bauð ekki bara upp á mann­lega póli­tík heldur líka stöð­ug­leika í stjórnun borg­ar­innar í stað þess róts sem fyrr var við tíð borg­ar­stjóra­skipti hjá Sjálf­stæð­is­flokknum,“ segir Björt í við­tali við Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár