Flestir framboðslistar verða tilbúnir eftir næstu helgi

Nokkrir flokkar eru búnir að raða niður á lista hjá sér fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ingar og enn sem komið er eru konur í minni­hluta.

Fram­boðs­listar tín­ast nú inn hjá flokk­unum og eins og staðan er núna eru konur í odd­vita­sætum í minni­hluta. Tíu konur leiða lista af þrjá­tíu í kom­andi þing­kosn­ingum þann 28. októ­ber næst­kom­andi. Á næstu dögum mun koma í ljós hvernig list­arnir í öllum flokkum muni líta út.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Björt fram­tíð og Píratar eru allir búnir að kynna sína fram­boðs­lista fyrir öll kjör­dæmin. Vinstri græn hafa til­kynnt um lista í tveimur kjör­dæmum af fjórum. Viðreisn mun kynna sína lista um næstu helgi og fram­boðs­listar Fram­sókn­ar­flokks­ins verða kynntir á næstu dögum. Flokkur fólks­ins er búinn að til­kynna odd­vita fram­boðs­lista sinna. Mið­flokk­ur­inn hefur ekki gefið út hvenær hann ætli að kynna sitt fólk.

[adspot]

Sjálfstæðisflokkurinn

Ljóst er hvernig fram­boðs­listar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í öllum kjör­dæm­unum líta út. Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi leiðir Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra. Bryndís Har­alds­dóttir alþing­is­maður skipar annað sæti, Jón Gunn­ars­son ráð­herra það þriðja, Óli Björn Kárason alþing­is­maður það fjórða og Vil­hjálmur Bjarna­son alþing­is­maður það fimmta.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra skipar odd­vita­sætið í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir alþing­is­maður annað sæti, Birgir Ármanns­son alþing­is­maður það þriðja, Albert Guð­munds­son laga­nemi fjórða og Herdís Anna Þor­valds­dóttir vara­borg­ar­full­trúi það fimmta.

Einungis í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður leiðir kona lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins og er það Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Brynjar Níelsson alþing­is­maður er í öðru sæti, Hildur Sverr­is­dóttir alþing­is­maður í því þriðja, Bessí Jóhanns­dóttir fram­halds­skóla­kenn­ari fjórða og Jóhannes Stef­áns­son lög­fræð­ingur í því fimmta.

Í Suð­ur­kjör­dæmi er Páll Magn­ús­son alþing­is­maður
 odd­viti flokks­ins, Ásmundur Frið­riks­son alþing­is­maður
 í öðru sæti, Vil­hjálmur Árnason alþing­is­maður
 í því þriðja, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir alþing­is­maður í því fjórða og 
Kristín Trausta­dóttir end­ur­skoð­andi skipar fimmta sætið.

Í Norð­vest­ur­kjör­dæmi leiðir Haraldur Bene­dikts­son, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er í öðru sæti og Teitur Björn Ein­ars­son í því þriðja. Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi er Kristján Þór Júl­í­us­son mennta­mála­ráð­herra í odd­vita­sæti, 
Njáll Trausti Frið­berts­son alþing­is­maður skipar annað sætið og Val­gerður Gunn­ars­dóttir alþing­is­maður það þriðja.

Vinstri hreyfingin - grænt framboð

Enn á eftir að koma í ljós hverjir muni verða odd­vitar í fjórum kjör­dæmum en í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum mun fram­boðs­listi vera kynntur mið­viku­dag­inn 4. októ­ber. Í Norð­vest­ur­kjör­dæmi verður list­inn kynntur í kvöld 3. októ­ber og í Norð­aust­ur­kjör­dæmi mánu­dag­inn 9. októ­ber. Eins og staðan er núna leiðir ein kona og einn karl listana í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og Suð­ur­kjör­dæmi.

Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi er Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir alþing­is­maður odd­viti, Ólafur Þór Gunn­ars­son læknir í öðru sæti, Una Hild­ar­dóttir í því þriðja, Fjölnir Sæmunds­son í fjórða og Ester Bíbí Ásgeirs­dóttir í því fimmta. Ari Trausti Guð­munds­son leiðir list­ann í Suð­ur­kjör­dæmi, Heiða Guðný Ásgeirs­dóttir skipar annað sætið, Daníel E. Arnarson þriðja, Dagný Alda Leifs­dóttir það fjórða og Helga Tryggva­dóttir það fimmta.

Þótt listar flokks­ins í Reykja­vík og í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hafi enn ekki verið kynntir þá má sterk­lega búast við því að þeir verði allir leiddir af konum. Katrín Jak­obs­dóttir, Svandís Svav­ars­dóttir og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir leiddu þá lista í síð­ustu kosn­ingum og munu að öllum lík­indum gera það aftur.

Píratar

Úrslit voru ljós í öllum próf­kjörum Pírata þann 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Konur leiða í tveimur kjör­dæmum, öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu og Norð­vest­ur­kjör­dæmi, þær Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Eva Pandora Bald­urs­dóttir. Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi leiðir Jón Þór Ólafsson lista Pírata. Í öðru sæti er Oktavía Hrund Jóns­dóttir, í því þriðja Dóra Björt Guð­jóns­dóttir og Andri Þór Sturlu­son í því fjórða.

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum var sam­eig­in­legt próf­kjör. Helgi Hrafn Gunn­ars­son og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir munu leiða kjör­dæmin en þeir sem völd­ust á list­ann velja sér annað hvort suður- eða norð­ur­kjör­dæmi. Þau eru í þess­ari röð: Björn Leví Gunn­ars­son, Halldóra Mogensen, Gunnar Hrafn Jónsson, Olga Margrét Cilia, Snæbjörn Brynjars­son, Sara Oskars­son, Einar Stein­gríms­son og Katla Hólm Vilberg- Þór­hild­ar­dóttir.

Smári McCarthy er odd­viti í Suð­ur­kjör­dæmi, Álf­heiður Eymars­dóttir í öðru sæti, Fanný Þórs­dóttir í því þriðja, Albert Svan í fjórða og Kristinn Ágúst Eggers­son í því fimmta. Eva Pandora Bald­urs­dóttir leiðir list­ann í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, Gunnar Ingiberg Guð­munds­son er í öðru sæti og Rannveig Ernu­dóttir í því þriðja. Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi er Einar Brynj­ólfs­son odd­vit­inn, Guðrún Ágústa Þór­dís­ar­dóttir skipar annað sæti og Urður Snædal það þriðja.

Samfylkingin

Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og Suð­ur­kjör­dæmi mun Sam­fylk­ingin leggja fram fram­boðs­lista til sam­þykkis í kvöld 3. októ­ber. Ein kona er í odd­vita­sæti hjá flokknum eins og komið er.

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður mun Helga Vala Helga­dóttir lög­maður og leik­kona skipa fyrsta sætið, Páll Valur Björns­son grunn­skóla­kenn­ari annað sætið, Eva Bald­urs­dóttir lög­fræð­ingur það þriðja, Þórarinn Snorri Sig­ur­geirs­son sagn­fræð­ingur og for­maður Ungra jafn­að­ar­manna fjórða og Nikólína Hildur Sveins­dóttir mann­fræði­nemi það fimmta.

Ágúst Ólafur Ágústs­son háskóla­kenn­ari er odd­viti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Jóhanna Vigdís Guð­munds­dóttir fram­kvæmda­stjóri er í öðru sæti, Einar Kárason rit­höf­undur í þriðja, Ellert B. Schram for­maður Félags eldri borg­ara í Reykja­vík og fyrrv. alþing­is­maður fjórða og Vilborg Odds­dóttir félags­ráð­gjafi hjá Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar í því fimmta.

Í Norð­vest­ur­kjör­dæmi skipar Guðjón S. Brjáns­son, alþing­is­maður fyrsta sætið, Arna Lára Jóns­dóttir verk­efna­stjóri Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar annað sæti og Jónína Björg Magn­ús­dóttir fisk­verka­kona það þriðja. Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi er Logi Már Ein­ars­son odd­viti, Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir í öðru sæti og María Hjálm­ars­dóttir í því þriðja.

Björt framtíð

Björt fram­tíð kynnti fram­boðs­lista í gær, 2. októ­ber. Fleiri konur en karlar leiða listana hjá flokknum en fjórar konur leiða í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Suð­ur­kjör­dæmi og Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Norður leiðir for­mað­ur­inn Óttarr Proppé list­ann. Í öðru sæti er Auður Kolbrá Birg­is­dóttir lög­maður, í því þriðja er Sunna Jóhanns­dóttir við­skipta­fræð­ingur, í fjórða Ágúst Már Garð­ars­son kokkur og Sigrún Gunn­ars­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur og dós­ent í þjón­andi for­ystu í því fimmta.

Nichole Leigh Mosty þing­maður leiðir list­ann í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Suður. Hörður Ágústs­son eig­andi Macland skipar annað sætið, Starri Reyn­is­son stjórn­mála­fræði­nemi þriðja, Þórunn Pét­urs­dóttir land­græðslu­vist­fræð­ingur fjórða og Diljá Ámunda­dóttir KaosPilot og MBA það fimmta.

Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi er Björt Ólafs­dóttir odd­vit­inn, Karólína Helga Sím­on­ar­dóttir mann­fræð­ingur í öðru sæti, Halldór Jörg­ens­son, fram­kvæmda­stjóri í þriðja sæti, G. Valdimar Valde­mars­son fram­kvæmda­stjóri í fjórða og Ragn­hildur Reyn­is­dóttir mark­aðs­stjóri í því fimmta.

Jasmina Crnac stjórn­mála­fræði­nemi leiðir í Suð­ur­kjör­dæmi. Arnbjörn Ólafsson mark­aðs­stjóri Keilis skipar annað sætið, Val­gerður Björk Páls­dóttir fram­kvæmda­stjóri þriðja sætið og Drífa Krist­jáns­dóttir bóndi það fjórða. Guðfinna Gunn­ars­dóttir fram­halds­skóla­kenn­ari er í fimmta sæti.

Í Norð­vest­ur­kjör­dæmi er Guðlaug Krist­jáns­dóttir sjúkra­þjálf­ari og stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar odd­viti, Kristín Sig­ur­geirs­dóttir skóla­rit­ari í tón­list­ar­skóla í öðru sæti og Elín Matt­hildur Krist­ins­dóttir meist­ara­nemi í því þriðja. Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi leiðir Arn­grímur Viðar Ásgeirs­son hót­el­stjóri og íþrótta­kenn­ari list­ann, Halla Björk Reyn­is­dóttir flug­um­ferða­stjóri skipar annað sæti og Hörður Finn­boga­son ferða­mála­fræð­ingur það þriðja.

Flokkur fólksins

Ein kona mun leiða lista Flokks fólks­ins en það er odd­viti Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suð­urs, Inga Sæland. Dr. Ólafur Ísleifs­son mun leiða í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Karl Gauti Hjalta­son Suð­ur­kjör­dæmi, Magnús Þór Haf­steins­son Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Sr. Halldór Gunn­ars­son í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár