Skrifaði bréf og vildi hærri laun - Sagði starfið erfitt og íþyngjandi

Kristín Völ­und­ar­dóttir, for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar, fær 29 pró­sent launa­hækkun í kjöl­far nýlegs úrskurðar kjara­ráðs og verður með 1.340 þús­und krónur á mán­uði eftir að hana. Mesta launa­hækkun allra í kjöl­far úrskurð­ar­ins fær Hjörtur Bragi Sverr­is­son, for­maður kæru­nefndar útlend­inga­mála. Laun hans hækka um 48 pró­sent. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu.

Þar segir að Kristín hafi sent bréf til kjara­ráðs og að vitnað sé í bréf hennar í úrskurði ráðs­ins. Í bréf­inu segir Kristín að álag á Útlend­inga­stofnun hafi vaxið gíf­ur­lega sam­hliða fjölgun hæl­is­leit­enda og nýjum verk­efnum. Áreiti fjöl­miðla sé mikið og að það falli til bæði um helgar og á kvöldin. Því sé starf for­stjóra erfitt og mjög íþyngj­andi. Þess vegna vildi hún fá hærri laun.

Með hærri laun en ráðherrar

Laun for­stöðu­manna nokk­urra rík­is­stofn­ana hækk­uðu gíf­ur­lega mikið eftir að nýr úrskurður kjara­ráðs um kjör þeirra lá fyrir. Hækk­an­irnar eru aft­ur­virkar til allt að 1. des­em­ber 2014 og bæt­ast ofan á 7,15 pró­sent hækkun sem tók gildi um síð­ustu mán­að­ar­mót. Í Frétta­blað­inu kemur fram að hækk­an­irnar komi til eftir að for­stöðu­menn­irnir sjálfir eða ráðu­neyti þeirra ósk­uðu eftir því að launin yrðu hækkuð.

Samkvæmt ákvörðun kjara­ráðs í nóv­em­ber í fyrra hækk­uðu laun alþing­is­manna og ráð­herra. Eftir þá hækkun, og við­bót­ar­hækkun sem tók gildi í sumar, er þing­fara­kaup 763 þús­und krónur á mán­uði og laun ráð­herra ann­ara en for­sæt­is­ráð­herra 1.347 þús­und krónur á mán­uði. Margir for­stöðu­menn rík­is­stofn­anna eru nú með umtals­vert hærri laun en allir ráð­herrar lands­ins. Þannig er Birgir Jak­obs­son land­læknir með 1,6 millj­ónir króna á mán­uði eftir að kjara­ráð úrskurð­aði um hækkun launa hans og Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri er einnig með þá upp­hæð. Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, hækka um 35 pró­sent í 1.340 þús­und á mán­uði og Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, verður með sömu tölu.

Vilja breyta kjörum sveitastjórarmanna

Í Morg­un­blað­inu er síðan greint frá því að stjórn Sambands íslenskra sveita­fé­laga hafi sent öllum sveita­stjórnum í land­inu „leið­bein­andi við­mið“ um að kjör sveita­stjórn­ar­manna verði þannig að þeir fái 78 pró­sent þing­fara­kaups, 595 þús­und krónur, á mán­uði fyrir störf sín sé miðað við að þeir séu í fullu starfi sem sveit­ar­stjórn­ar­menn. Í dag eru ein­ungis 15 sveit­ar­stjórn­ar­menn í fullu starfi, en það eru borg­ar­full­trúar Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár