Forsetinn segir þingið þurfa að ræða hvort betra væri að kjósa að vori næst

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands sagð­ist í ræðu sinni við þing­setn­ingu von­ast til að þingið gæti rætt stjórn­ar­skrár­breyt­ingar í vetur, nokkuð sem ekki náð­ist að taka efn­is­lega umræðu um á síð­asta þingi.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands
Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands ávarp­aði Alþingi við þing­setn­ingu sem fram fór í dag og velti því meðal ann­ars upp við þing­menn hvort mögu­lega væri gáfu­legra að kjósa að vori næst þegar kosið yrði til Alþingis.

„Þrjú skipti í röð höfum við gengið til þing­kosn­inga að hausti. Það kjör­tíma­bil, sem nú er hafið, getur staðið til seinni hluta sept­em­ber að fjórum árum liðnum. Ræða þarf kosti þess og galla að hafa kjör­dag að hausti en ekki að vori eins og venja hefur verið, ekki síst hvaða áhrif það hefur á störf Alþingis, þunga­miðju hins póli­tíska valds,“ sagði Guðni í ræðu sinni, en Alþingi hefur ekki komið saman síðan 6. júlí.

Vonast eftir umræðu í þinginu um stjórnarskrármál

„Margt brennur meira á íslenskri þjóð en end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar,“ sagði for­set­inn í ræðu sinni, en hann ákvað þó að leyfa sér að nefna að við þing­setn­ingu fyrir tæpu ári hefði hann lýst þeirri von að „unnt yrði að taka hóf­samar til­lögur að breyt­ingum á stjórn­ar­skrá til efn­is­legrar afgreiðslu og leiða umræður til lykta í þessum sal.“

„Svo fór ekki,“ bætti hann við, og sagði að þess í stað hefðu örlög stjórn­ar­skrár­frum­varps ráð­ist í nefnd­ar­her­bergi handan Aust­ur­vallar.

„Vonandi gengur betur á þessu kjör­tíma­bili að ræða og ráð­ast í skyn­sam­legar umbætur á stjórn­ar­skrá Íslands, rétt eins og henni hefur áður verið breytt í tím­ans straumi. Má þá sem fyrr horfa til ákvæða um umhverfi, auð­lindir og íslenska tungu, auk breyt­inga á þjóð­höfð­ingjakafla stjórn­ar­skrár­innar. Verkefni hér næstu daga benda líka til þess að í fleira megi rýna í þessum efnum,“ sagði for­set­inn og vís­aði þarna í síð­ustu mál­grein til þess að þings­ins bíður að skera úr um hvort kjör­bréf skuli talin lög­leg eður ei.

„Eftirmál urðu í einu kjör­dæmi og sam­kvæmt stjórn­ar­skrá okkar er það í höndum Alþingis að skera úr um hvort þing­menn þess séu lög­lega kosnir. Mikil er því ábyrgð alþing­is­manna, nú sem endranær,“ sagði for­set­inn um það mál í ræðu sinni.

Kjör­bréfa­nefnd var kjörin á þessum fyrsta þing­fundi vetr­arsins. Hún er skipuð sömu þing­mönnum og hafa setið í und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréfa und­an­farnar vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár