Fundi frestað á Alþingi vegna lélegrar mætingar

Fresta þurfti þremur atkvæða­greiðslum sem voru á dag­skrá Alþingis í dag vegna lélegrar mæt­ingar þing­manna. Því var þing­fundur aðeins rúmur hálf­tími að lengd, og eini dag­skrár­lið­ur­inn voru störf þings­ins.

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar, Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar, vöktu athygli á þessu undir liðnum störf þings­ins og Óttarr Proppé og Róbert Marshall, þing­menn Bjartrar fram­tíðar gerðu það einnig.

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, sagði þetta vera af eðli­legum ástæðum. Fjar­vistir þing­manna væru meðal ann­ars vegna skuld­bind­inga erlendis og í kjör­dæmum, sem væru mik­il­vægir þættir í starfi þing­manna. „Alþingi hefur starfað mjög vel frá því að það kom saman til nefnd­ar­funda og svo þing­funda núna í ágúst­mán­uði.“

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kom einnig upp í ræðu­stól og sagð­ist ætla að bera í bætifláka fyrir meiri­hlut­ann, til að allrar sann­girni væri gætt þá væru mörg stór og mik­il­væg mál inni í þing­nefndum. Hún tók undir það að það væri sér­kenni­leg staða að eina málið á dag­skrá væru störf þings­ins, en þing­menn vissu það að mörg mál væru í vinnslu í nefndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár