Mynd: Helga Helgadóttir

Hamingjan á Hólmavík

Það er einhver dulúð sem fylgir Stranda­mönnum. Heiða Helga­dóttir ljós­myndari upplifði Hamingju­dagana á Hólmavík frá sjónar­horni aðkomu­mannsins.

Jón Loftsson er 88 ára Hólm­víkingur sem er afskaplega ánægður með Hamingju­daga, sem haldnir eru á Hólmavík á hverju ári. Brott­flutt börn hans og barnabörn koma árvisst á Hamingju­daga. Hann hafði nýlega lokið við að slá blettinn heima hjá sér þegar við hittum hann.
Jón og kona hans Stefanía hafa verið saman í 63 ár og eiga nú 25 afkomendur, börn, barnabörn og barna­barnabörn.

Hamingjusamasta kakan
Hamingju­samasta kakan Verðlaun veitt fyrir hamingju­sömustu kökuna. Ragnar Torfason heldur á kökunni, Kristín Sigurrós Einars­dóttir kynnir og Ingibjörg Benedikts­dóttir verkefnis­stjóri hátíðarinnar stendur hjá.

Bragginn gerður tilbúinn
Bragginn gerður tilbúinn Kristján Jóhannsson gerir „Braggann“ tilbúinn fyrir tónleika kvöldsins. Gunnar Þórðarsón stillir hljóð­færin í bakgrunni.

Garðpartý
Garðpartý Garðpartý á Hamingju­dögum.

Fjöl­breytt dagskrá var í gangi alla helgina. Sem dæmi má nefna kassabílarallý, trommu­námskeið, hoppukastala og tónleika. Leik­hópurinn Lotta sýndi stórkostlegt barna­leikrit, Litlu gulu hænuna, og svo var haldið hamingju­hlaup þar sem þátt­takendur hlupu 35 kílómetra, en það var ekki keppni og komu því allir saman í mark. Að loknu hamingju­hlaupi buðu 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár