Framsóknarflokkur boðar til funda vegna kosninga

Haust­fundur mið­stjórnar Fram­sóknar verður í byrjun sept­em­ber. Eygló Harð­ar­dóttir hefur ekki ákveðið hvort hún myndi fara gegn Sigmundi.

Eygló Harðardóttir, ritari Framsóknarflokksins, hefur ekki viljað tjá sig við Kjarnann eftir að hún sagðist hafa verið í „slagsmálum“ við Bjarna Benediktsson um fjárveitingar til velferðarmála.
Eygló Harð­ar­dóttir, rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ekki viljað tjá sig við Kjarnann eftir að hún sagð­ist hafa verið í „slags­málum“ við Bjarna Bene­dikts­son um fjár­veit­ingar til vel­ferð­ar­mála. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lands­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur ákveðið að haust­fundur mið­stjórnar flokks­ins verði hald­inn í byrjun sept­em­ber. Á þeim fundi verður svo ákveðið hvort boðað verði til flokks­þings, þar sem ný for­ysta verður valin. Eygló Harð­ar­dóttir, rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins, til­kynnti þetta á Facebook síðu sinni í gær eftir að lands­stjórn kom saman og fund­aði um málið. Hún sagði svo við RÚV í morgun að hún hefði ekki ákveðið hvort hún myndi bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð Gunn­laus­syni for­manni.

Fund­ar­boð verður sent á mið­stjórn­ar­menn á næstu dögum en einnig hefur verið boðað til auka­kjör­dæm­is­þinga í norð­austur-, norð­vestur-, og suð­ur­kjör­dæmi þann 20. ágúst og suð­vest­ur­kjör­dæmi 25. ágúst. Þar verða aðferðir við val á listum ákveðnar. Reykja­vík­ur­kjör­dæmin tvö halda tvö­falt kjör­dæm­is­þing þann 27. ágúst til að velja fimm efstu sætin.

Flestir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa und­ir­strikað að ekki verði gengið til kosn­inga fyrr en „stór mál“ eru kláruð á þing­inu og engin dag­setn­ing verði ákveðin fyrir kosn­ingar fyrr en þing verður komið saman á ný. Silja Dögg Gunn­ars­dóttir þing­maður hefur sagt að hún telji það hafa verið fljót­færni hjá ráða­mönnum að lofa kosn­ingum í haust. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ekki úti­lokað að hann ætli sér aftur í rík­is­stjórn fyrir kosn­ingar, en hann ætlar að gefa kost á sér áfram fyrir norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þó eru skiptar skoð­anir innan flokks­ins hvort Sig­mundur eigi áfram erindi þangað sem for­maður og þá líka sem oddi­viti norð­aust­ur­kjör­dæmis. Hann segir út í hött að ákveða kjör­dag strax.

Eygló hefur ekki viljað tjá sig við Kjarnann eftir að hún sagði í við­tali við RÚV að hún hafði staðið í slags­málum við Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra um fjár­veit­ingar til vel­ferð­ar­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár