Íslendingar telja sig upplifa afleiðingar loftslagsbreytinga

Meira en sex­tíu pró­sent lands­manna telja að íslenskir stjórn­mála­menn geri of lítið til að tak­marka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri umhverfiskönnun Gallup.

Meira en fjórð­ungur lands­manna telur sig hafa séð eða upp­lifað afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga í sínu sveit­ar­fé­lagi eða 44 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri umhverfiskönnun Gallup.

Á aust­ur­landi eru þeir flestir sem telja sig hafa séð eða upp­lifað breyt­ingar eða 60 pró­sent, fæstir á Vest­fjörðum eða 39 pró­sent.

Meira en 60 pró­sent lands­manna hafa upp­lifað hærra hita­stig sem þeir telja vera afleið­ing lofts­lags­breyt­inga, 59 pró­sent upp­lifa að snjór sé minni í sínu sveit­ar­fé­lagi og 58 pró­sent sjá breyt­ingar á upp­hafi og lengd árs­tíða.

Þá hefur helm­ingur upp­lifað breyt­ingar á dýra- og/eða plöntu­lífi og 41 pró­sent upp­lifa fleiri storma eða ofsa­veður.

Gallup spurði hvaða aðgerðir fólki fynd­ist hið opin­bera ætti að styðja sér­stak­lega við þegar komi að lofts­lags­málum. 48 pró­sent styðja aðgerðir sem stuðla að því að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hjá fyr­ir­tækjum og bæta orku­nýt­ingu þeirra en 37 pró­sent vill láta þróa umhverf­is­væna orku­gjafa. Rúmur þriðj­ungur vill efla almenn­ings­sam­göngur eða 36 pró­sent og 32 pró­sent vill auka enn frekar á skattaí­viln­anir af kaupum og notkun á raf­magns­bílum.

Alls eru 66 pró­sent lands­manna mjög eða frekar sam­mála því að íslenskir stjórn­mála­menn geri of lítið til að tak­marka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi og 60 pró­sent þeirra eru mjög eða frekar sam­mála því að hafa áhyggjur af þeim afleið­ingum sem lofts­lags­breyt­ingar geta haft á þá og fjöl­skyldu þeirra.

Töluverð áhersla er lögð á umhverfis- og lofts­lags­mál í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar. Þar er sagt að leið­ar­ljós lofts­lags­stefnu Íslands er stefnumið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins og vill hún gera betur en þar er gert ráð fyrir og stefna að kolefn­is­hlut­lausu Íslandi í síð­asta lagi árið 2040. Því mark­miði skal náð með var­an­legum sam­drætti í losun gróð­ur­húsa en einnig með breyttri land­notkun í sam­ræmi við alþjóð­lega við­ur­kennda staðla og með hlið­sjón af vist­kerf­isnálgun og skipu­lags­sjón­ar­miðum.

Styðja á við atvinnu­greinar, fyr­ir­tæki, stofn­anir og sveit­ar­fé­lög í þeirri við­leitni að setja sér lofts­lags­mark­mið. Stefnt er að því að allar stærri áætl­anir rík­is­ins verði metnar út frá lofts­lags­mark­miðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár