Ráðamenn ráða því hvort þeir séu innherjar eða ekki

Stjórn­völd bera sjálf ábyrgð á því að meta hvort eðli og umfang starf­semi þeirra gefi til­efni til þess að reglur um inn­herj­a­upp­lýs­ingar gildi um hana. Settar voru sér­stakar inn­herja­reglur af fjár­mála­ráð­herra. Þær náðu ekki yfir for­sæt­is­ráð­herra.

Ekki er til­greint nákvæm­lega í lögum og reglum hvernig inn­herja­reglur eigi við um stjórn­völd. Samkvæmt ákvæði laga um verð­bréfa­við­skipti ber stjórn­völdum sem fá reglu­lega inn­herj­a­upp­lýs­ingar í starf­semi sinni þó að fylgja reglum um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­ingar eftir því sem við á. Stjórn­völd bera hins vegar sjálf ábyrgð á því að meta hvort eðli og umfang starf­semi þeirra gefi til­efni til þess að reglum um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipti skuli fylgt. Þetta kemur fram í svari Fjár­mála­eft­ir­lits­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hæfi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra til að koma að ákvörð­unum sem tengj­ast slitum föllnu bank­anna í ljósi þess að eig­in­kona hans er kröfu­hafi í bú þeirra.

Samkvæmt svar­inu ráða ráða­menn því sjálfir hvort til­efni sé til þess að láta reglur um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­ingar og við­skipti inn­herja gilda um þá.

Stjórnvöld bera sjálf ábyrgð á því að setja reglur

Fjár­mála­eft­ir­litið hélt fræðslu­fund í apríl 2013 fyrir stjórn­völd. Þar voru reglur eft­ir­lits­ins um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipta inn­herja til umfjöll­unar ásamt leið­bein­andi til­mælum um fram­kvæmd regln­anna. Í kjöl­farið, nánar til­tekið 20. júní 2013, sendi eft­ir­litið dreifi­bréf til stjórn­valda þar sem tekið var á helstu atriðum við­víkj­andi stjórn­völd og regl­urnar. Bréfið var því sent eftir að sitj­andi rík­is­stjórn tók við völdum.

Í bréf­inu segir meðal ann­ars að „stjórn­völd beri ábyrgð á því að meta hvort eðli og umfang starf­semi þeirra gefi til­efni til þess að reglum um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipti inn­herja skuli fylgt. Ef stjórn­vald fær afhentar eða með­höndlar inn­herj­a­upp­lýs­ingar reglu­lega í starf­semi sinni ber því að til­efna reglu­vörð sem hefur umsjón með að fyrr­greindum reglum sé fram­fylgt.”

Í til­vikum þar sem inn­herj­a­upp­lýs­ingar verða reglu­lega til í starf­semi stjórn­valda hefur reglu­vörður mik­il­vægu hlut­verki að gegna. Hann þarf þá, að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, fyrst og fremst að hafa yfir­sýn yfir var­færna með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga þegar þær eru til staðar. „Fjár­mála­eft­ir­litið gerir ekki kröfu um að stjórn­völd haldi lista yfir inn­herja í slíkum til­vikum, en bent er á að slíkt verk­lag stuðlar að góðri yfir­sýn yfir með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga.”

Bjarni setti innherjareglur

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, taldi greini­lega að til­efni væri til þess setja sér­stakar inn­herja­reglur vegna aðgerða sem stjórn­völd réð­ust í vegna slita búa föllnu bank­anna og losun hafta. Hann stað­festi sér­stakar inn­herja­reglur fyrir marga þá sem að vinn­unni komu 7. októ­ber 2014 og þær tóku gildi 1. nóv­em­ber 2014. Bjarni sjálfur, aðstoð­ar­menn hans, ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, skrif­stofu­stjórar þess og aðrir starfs­menn sem komu að vinn­unni um losun hafta féllu undir regl­urnar.

[adspot]

Þær náðu einnig til allra þeirra sér­fræð­inga sem unnu að áætlun um losun hafta, meðal ann­ars í fram­kvæmda­hópi stjórn­valda, sem und­ir­rit­uðu trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu vegna starfa sinna. Brot gegn við­kom­andi reglum gat þýtt að sá sem framdi það brot ætti yfir höfði sér fang­els­is­vist.

Þeir þing­menn sem sátu í sam­ráðs­nefnd þing­flokka um afnám fjár­magns­hafta und­ir­rit­uðu einnig allir þagn­ar­heit sem í fólst að þeir gættu „þag­mælsku um atriði sem ég kann að fá vit­neskju um í starfi mínu fyrir hóp­inn sem leynt skulu fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls. Þagn­ar­skyldan skal hald­ast þótt störfum hóps­ins sé lokið“. Þegar þing­menn­irnir skrif­uðu undir þagn­ar­heitið var þeim einnig gert ljóst að þeir kunni, í tengslum við störf hóps­ins, að fá vit­neskju um inn­herj­a­upp­lýs­ingar og telj­ist þar með inn­herjar sam­kvæmt lögum um verð­bréfa­við­skipti.

Samkvæmt trún­að­ar­yf­ir­lýs­ing­unni mátt eng­inn þeirra sem undir hana skrif­uðu nota upp­lýs­ing­arnar sem þeir fengu á annan hátt en til að leysa það verk­efni sem fyrir þeim lág. Þar segir einnig að ráð­gjaf­arnir sem skrif­uðu undir megi deila upp­lýs­ing­unum með öðrum sem til­heyrðu hafta­hópnum og öðrum ein­stak­lingum sem til­nefndir höfðu verið af ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og und­ir­nefndum hennar. Í þeirri ráð­herra­nefnd sitja tveir ráð­herrar: Sig­mundur Davíð og Bjarni.

Þær inn­herj­a­upp­lýs­ingar sem um var að ræða, og bannað var að miðla til ann­arra eða hag­nýta sér, eru til dæmis efni fyr­ir­hug­aðra laga­frum­varpa og vit­neskja um aðgerðir stjórn­valda í efna­hags­málum.

Sigmundur Davíð ekki bundinn af innherjareglum

Kjarninn greindi frá því 23. mars að Sig­mundur Davíð var hefði ekki bund­inn af þessum reglum. Það stað­festi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Ekki hafa feng­ist skýr­ingar á því af hverju for­sæt­is­ráð­herra var ekki bund­inn af regl­unum.

Því verður ekki til skoð­unar hvort ákvörðun for­sæt­is­ráð­herra um að leyna því að eig­in­kona hans ætti aflandseign­ar­halds­fé­lags skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og að það félag væri kröfu­hafi í slitabú föllnu bank­anna sé í and­stöðu við regl­urnar, en regl­urnar meina meðal inn­herjum að eiga gjald­eyr­is­við­skipti nema með leyfi reglu­varðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár