Fyrrverandi ráðherrar: Jón Baldvin með „samsæriskenningar og reiði“

Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og seðla­banka­stjóri, segir Jón Baldvin Hanni­bals­son hafa skaðað stöðu sína með við­tali í Silfrinu. Svavar Gestsson, fyrr­ver­andi ráð­herra, segir Jón Baldvin draga upp óraun­hæfa mynd af femín­isma sem póli­tísku vanda­máli.

21 á Hringbraut
21 á Hring­braut Ráð­herr­arnir fyrr­ver­andi sögðu Jón Baldvin hafa verið reiðan í við­tali í Silfrinu.

Jón Baldvin Hanni­bals­son er „í nauð­vörn“ vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni, að mati Svavars Gests­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­manns Alþýðu­banda­lags­ins. Segir hann mál Jóns Baldvins líta „hroða­lega“ út.

Svavar og Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og seðla­banka­stjóri, voru í við­tali hjá Sigmundi Erni Rún­ars­syni í þætt­inum 21 á Hring­braut á þriðju­dag. Ræddu þeir við­tal við Jón Baldvin í Silfrinu á RÚV síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

„Þetta mál Jóns Baldvins er alveg hroða­legt eins og það lítur út,“ sagði Svavar. „Maður finnur til með þessu fólki eins og henni Aldísi [dóttur Jóns Baldvins]. Það er alveg nístandi að hugsa um hana. Það getur eng­inn nema reiður maður sett hlut­ina upp eins og hann gerði, að fólk hafi verið að opna þessa hluti bara af því að það vildi ekki að ein­hver bók kæmi út. Hvurs lags voða­legir hlutir eru þá í þess­ari bók?“

Sagði Svavar að málið væri greini­lega hvergi nærri búið þar sem Jón Baldvin ætl­aði að skrifa bók um það. „Þegar leið­togi jafn­að­ar­manna, eins og hann hefur titlað sig sjálfur oftar en allir aðrir, finnst mér, þegar hann fer að tala um femín­isma, reyndar öfga­femín­isma, sem sér­stakt póli­tískt vanda­mál, það er ansi mikið sagt. Hann er í nauð­vörn,“ bætti hann við.

Jón Sig­urðs­son sagð­ist eiga erfitt með að tala um málið sem gam­all vinur og vel­unn­ari Jóns Baldvins. „Í við­tal­inu þá skað­aði hann frekar sjálfan sig með því að gleyma sér og koma með sam­sær­is­kenn­ingar og reiði,“ sagði Jón. „Ég held að hann sé laskaðri eftir sjón­varps­við­talið en fyrir það, vegna þess að hann er sjálfur að taka upp ýmis einka­mál inn á opin­beran vett­vang þar sem þau eiga eig­in­lega ekki heima. Hann er kannski að ein­hverju leyti að ögra þessum konum til þess að segja meira en þær ella hefðu sagt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár