Íslendingur hefur ekki rétt til að gleymast hjá Google

Google ber ekki að fjar­lægja leit­ar­nið­ur­stöður um íslenskan ein­stak­ling, sem hlaut skil­orðs­bund­inn dóm fyrir fjár­muna­brot í starfi sínu, þrátt fyrir að við­kom­andi hafi óskað eftir því. Þetta er úrskurður Per­sónu­verndar, en mann­eskjan kvart­aði þangað yfir því að Google neit­aði að fjar­lægja nið­ur­stöður um hana í leit­ar­vél sinni, en nið­ur­stöð­urnar vísa á fréttir um dóm í mál­inu.

Frétt birt­ist um við­kom­andi í fjöl­miðli eftir að dómur féll. Í úrskurði Per­sónu­verndar kemur fram að „þá umfjöllun upp­lifi kvart­andi sem meið­andi“ og umfjöll­unin beri með sér að henni sé ætlað að rýra trú­verð­ug­leika kvart­anda í núver­andi starfi. Með vísan til nið­ur­stöðu Evr­ópu­dóm­stóls­ins, sem yfir­leitt er talað um sem rétt­inn til að gleym­ast (the right to be for­gotten), hafi því verið óskað eftir því við Google að nið­ur­stöður leit­ar­innar yrðu afmáðar.

Google hafn­aði beiðn­inni á þeirri for­sendu að þarna væri um almanna­hags­muni að ræða. Lögmætir hags­munir væru af því að fólk hefði aðgengi að þessum upp­lýs­ingum.

Per­sónu­vernd kemst að þeirri nið­ur­stöðu að fréttaum­fjöllun megi vera aðgengi­leg í nið­ur­stöðu leitar á vef­leit­ar­vél. Það verði að vega og meta rétt­inn til tján­ing­ar­frelsis and­spænis rétt­inum til frið­helgi einka­lífs, og per­sónu­vernd­ar­laga. Per­sónu­vernd telji ekki að óheim­ilt sé sam­kvæmt per­sónu­vernd­ar­lögum að gera þessa nið­ur­stöðu aðgengi­lega á net­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár