Hakkarar lýsa yfir stríði gegn Íslamska ríkinu vegna árásanna í París

Anonymous-sam­tökin eru að und­ir­búa hrinu netárása á Íslamska ríkið í kjöl­far hryðju­verk­anna í París á föstu­dag­inn sem urðu 129 manns að bana. Frá þessu greindi maður með Guy Fawkes-grímu í mynd­bandi sem hlaðið var á vef­inn í gær. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Reuters.

Maðurinn með grímuna segir skæru­liða Íslamska rík­is­ins sem frömdu voða­verkin í París vera „mein­dýr“ og að Anonymous-sam­tökin myndu elta þá og finna. „Fyrir þessar árásir verður að hefna,“ segir hann á frönsku.

[adspot]

„Við erum að hefja okkar stærstu aðgerðir allra tíma gegn ykkur. Þið getið búist við mörgum vef­á­rásum. Við lýsum yfir stríði. Und­ir­búið ykkur undir það.“ Maðurinn með grímuna lýsir því ekki nánar hvað árás­irnar munu hafa í för með sér eða hvaða vefi sam­tökin hyggj­ast ráðst á. „Við gleymum ekki og við fyr­ir­gefum ekki.“

Kjarninn greindi frá því í dag að Anonymous-sam­tökin hefðu ráð­ist á þekktar íslenskar vef­síður vegna hval­veiða Íslend­inga og lýst yfir ábyrð á því á Twitter. Árás­irnar ollu miklum trufl­unum á net­þjón­ustu stjórn­ar­ráðs­ins, Símans og Mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár