Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB verður lögð fram

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Evr­ópu­sam­bandið verður lögð fram á þessu kjör­tíma­bili. „Þetta er orðað þannig í stjórn­ar­sátt­mál­anum að „komi fram“. Það er eins og þarna sé ein­hver mistería um hvort ein­hverjum detti það í hug. Ég get þá bara upp­lýst það hér og nú að hún mun koma fram,“ segir Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar.

Þetta sagði Jón Steindór í þætt­inum á Sprengisandi í morgun. Hann sagð­ist jafn­framt leggja þann skiln­ing í orða­lagið undir lok kjör­tíma­bils­ins, eins og það er orðað í stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, að það þýði síð­asta ár kjör­tíma­bils­ins.

Jón Steindór seg­ist ekki reikna með að styðja þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem yrði lögð fram fyrr, því hann líti svo á að hann hafi skuld­bundið sig til að styðja rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og þá mála­miðlun sem náð var.

„Ég er þátt­tak­andi núna í rík­is­stjórn sem að hefur gert þetta sam­komu­lag og ég virði það sam­komu­lag, en ég ætl­ast að sama skapi til þess af rík­is­stjórn­inni og öllum þing­mönnum, líka sjálf­stæð­is­þing­mönn­unum, að þeir muni greiða götu þess að slíkt mál fái fram­gang á síð­asta ári kjör­tíma­bils­ins og muni ekki leggja stein í götu þess.“

Jón Steindór sagði einnig í þætt­inum að orða­lagið um Evr­ópu­mál í stjórn­ar­sátt­mál­anum hafi ekki verið óska­nið­ur­staða Við­reisnar. Flokk­ur­inn hafi hins vegar metið það þannig að ekki yrði lengra kom­ist og að þetta væri nið­ur­staða sem hægt væri að lifa með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár