Bretar loka á komur fólks frá Danmörku vegna kórónuveirusmita á minkabúum

Nýjar sótt­varna­ráð­staf­anir meina öllum nema breskum rík­is­borg­urum að koma til Bret­lands frá Danmörku. Ástæðan er útbreiðsla kór­ónu­veirunnar á dönskum minka­búum.

Frá því í sumar hafa rúmlega 200 manns á Jótlandi hafa greinst með kórónuveiruna sem rakin er til minka.
Frá því í sumar hafa rúm­lega 200 manns á Jótlandi hafa greinst með kór­ónu­veiruna sem rakin er til minka. Mynd: EPA

Algjört bann hefur verið sett á komur ferða­manna frá Danmörku til Bret­lands með þeirri und­an­tekn­ingu að breskum rík­is­borg­urum verður leyft að koma til lands­ins en þurfa þá að sæta tveggja vikna sótt­kví ásamt öllum á sama heim­ili. Í gær voru settar reglur sem skyld­uðu alla sem komu til Bret­lands frá Danmörku að sæta tveggja vikna sótt­kví. Nú, sól­ar­hring síðar, hafa regl­urnar verið þrengdar með þeim hætti að eng­inn má koma frá Danmörku nema Bretar. Þetta gildir bæði um fólk sem dvalið hefur í land­inu og um fólk sem milli­lent hefur í Danmörku.

[links]

Ástæðan fyrir þessum hörðu sótt­varna­að­gerðum eru hin marg­um­töl­uðu smit sem greinst hafa á dönskum minka­búum nýverið. Frá því í sumar hafa rúm­lega 200 manns á Jótlandi greinst með kór­ónu­veiru sem rakin er til minkanna. Af þeim sökum hafa dönsk yfir­völd hert aðgerðir í norð­ur­hluta lands­ins. Þannig hafa íbúar sjö sveit­ar­fé­laga á Norður-Jótlandi verið beðnir um að halda sig innan sinna sveit­ar­fé­laga og sömu­leiðis hafa aðrir verið beðnir að ferð­ast ekki til þess­ara sveit­ar­fé­laga. Í kjöl­far útbreiðsl­unnar á búunum hafa Danir ákveðið að aflífa alla minnka á búum í land­inu, um 15 til 17 millj­ónir. Danir eru stærstu fram­leið­endur minka­skinna í heimunum og á dönskum búum eiga um 40 pró­sent heims­fram­leiðsl­unnar upp­runa sinn.

Í frétt BBC segir að yfir­völd í Bret­landi muni hafa sam­band við hvern þann sem heim­sótt hefur Danmörku á und­an­förnum tveimur vikum. Þá er þar haft eftir breskum emb­ætt­is­mönnum að þetta sé gert með það í huga að vernda lýð­heilsu Breta, enda sé það for­gangs­mál þar­lendra yfir­valda, og að ákvörð­unin verði end­ur­skoðuð eftir viku.

Í umfjöllun BBC kemur fram að Jeppe Kofod, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, hafi sagt aðgerð­irnar vera „heldur rót­tækar“ og að hann hafi átt í sam­tali við utan­rík­is­ráð­herra Breta, Dominic Raab, í dag. Jeppe sagði enn fremur að dönsk heil­brigð­is­yf­ir­völd ynnu náið með alþjóð­legum heil­brigð­is­yf­ir­völdum við að dreifa upp­lýs­ingum og að passað væri upp á að „við­eig­andi upp­lýs­ingar“ kæmust til breskra emb­ætt­is­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár