Dómsmálaráðherra tók nær ekkert tillit til athugasemda Rauða krossins

Dóms­mála­ráðu­neytið sendi út sér­staka frétta­til­kynn­ingu um að tekið hefði verið til­lit til athuga­semd­anna. Aðeins ein smá­vægi­leg orða­lags­breyt­ing var gerð.

Dóms­mála­ráð­herra gerði eina smá­vægi­lega orða­lags­breyt­ingu á reglu­gerð um útlend­inga vegna athuga­semda Rauða kross­ins, en sendi út sér­staka til­kynn­ingu um að ráðu­neytið hefði tekið til­lit til gagn­rýni sam­tak­anna.

Stundin greindi nýlega frá því að Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra hefði sett reglu­gerð sem þrengir að rétt­indum hæl­is­leit­enda þann 6. mars síð­ast­lið­inn, sama dag og umræða og atkvæða­greiðsla um van­traust á hana fór fram. Reglu­gerðin felur í sér að skil­yrði fyrir því að stjórn­völd geti tekið umsóknir hæl­is­leit­enda til efn­is­með­ferðar vegna heilsu­fars­á­stæðna eru þrengd veru­lega.

Eftir að Rauði kross­inn gagn­rýndi reglu­gerð­ina og Stundin fjall­aði um málið sendi ráðu­neytið frá sér til­kynn­ingu um að brugð­ist hefði verið við gagn­rýni Rauða kross­ins. „Tekið var til­lit til athuga­semda Rauða kross­ins þannig að mat stjórn­valda var rýmkað hvað varðar það að heil­brigð­is­þjón­usta teld­ist ekki óað­gengi­leg þrátt fyrir að greiða þyrfti fyrir hana.“

Rauði kross­inn hafði í umsögn gagn­rýnt sér­stak­lega þá máls­grein sem snýr að getu hæl­is­leit­enda til að borga fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu. „Mögu­leikar þeirra til að afla sér tekna eru veru­lega skertir og ekki hægt að gera þá kröfu að þeir greiði fyrir nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu,“ sagði í umsögn Rauða kross­ins.

Þegar borin eru saman drög að reglu­gerð­inni frá 11. des­em­ber 2017 og end­an­leg útgáfa hennar frá 6. mars er ekki að sjá að tekið hafi verið til­lit til athuga­semda Rauða kross­ins nema að mjög litlu leyti.

Drögin voru birt opin­ber­lega í tvær vikur og bár­ust umsagnir frá Rauða kross­inum og fleiri aðilum. Þá var full­trúum Rauða kross­ins boðið til fundar vegna máls­ins. Textinn í drög­unum og end­an­legri reglu­gerð er hins vegar sam­hljóða, fyrir utan orðin „að öllu jöfnu“.

Breyting ráðu­neyt­is­insEkki var tekið til­lit til athuga­semda Rauða kross­ins, en orð­unum „að öllu jöfnu“ var bætt við reglu­gerð­ina.

Máls­greinin snýr að því hvort með­ferð vegna alvar­legra veik­inda hæl­is­leit­anda telj­ist óað­gengi­leg ef greiða þurfi fyrir hana. „Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óað­gengi­leg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau til­vik þar sem með­ferð er til í við­töku­rík­inu en við­kom­andi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækj­anda, vegna þung­unar, stendur ekki til boða full­nægj­andi fæð­ing­ar­að­stoð í við­töku­ríki,“ segir í reglu­gerð­inni.

Í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar segir að með orð­unum „að öllu jöfnu“ hafi verið tekið til­lit til athuga­semda Rauða kross­ins. „Með þess­ari við­bót var matið rýmkað frá því sem áður var þannig að gert er ráð fyrir til­vikum þar sem með­ferð geti verið óað­gengi­leg ef greiða þurfi fyrir hana,“ segir í svar­inu. „Árétta má að í reglu­gerð­inni er að finna almenn við­mið sem líta ber til við með­ferð mála og því ekki tæm­andi talin þau til­vik sem stjórn­völdum ber eða er heim­ilt að líta til við afgreiðslu umsókna um alþjóð­lega vernd í þeim til­vikum er Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin á við.“

Veik börn verði send úr landi

Rauði kross­inn gagn­rýndi reglu­gerð­ina harð­lega þegar hún var stað­fest, en í henni kemur meðal ann­ars fram að heilsu­far hæl­is­leit­enda skuli hafa „tak­markað vægi“ nema ákveðin skil­yrði séu upp­fyllt. Þau skil­yrði gætu verið að hæl­is­leit­endur glími við „mikil og alvar­leg veik­indi, svo sem skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm og með­ferð við honum [sé] aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki“.

Í umsögn frá Rauða kross­inum er bent á að þessi hertu skil­yrði nái bæði til full­orð­inna og barna. „Þannig virð­ist vera gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúk­dómi sem ekki nær þeim alvar­leika­þrös­k­uldi að telj­ast skyndi­legur og lífs­hættu­legur skuli end­ur­send til við­töku­ríkis, jafn­vel þó að for­eldrar barns­ins muni þurfa að greiða fyrir með­ferð við sjúk­dómnum í við­töku­ríki, án þess að frekara mat fari fram á ein­stak­lings­bundnum aðstæðum barns­ins.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að sér hafi ekki verið kunn­ugt um efn­is­inni­hald reglu­gerð­ar­innar fyrr en eftir að hún var sett.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár