Héraðssaksóknari fellir niður fleiri mál gegn grunuðum skattsvikurum

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur nú fellt niður alls 66 mál gegn grun­uðum skattsvik­urum. Skatt­stofn­inn í skattsvika­málum sem eru til með­ferðar hjá emb­ætt­inu hleypur á millj­örðum. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur kært nið­ur­fell­ingu sex mála.

Embætti hér­að­sak­sókn­ara hefur fellt niður fjögur mál til við­bótar vegna þess að máls­með­ferð þeirra hjá ann­ars vegar skatt­yf­ir­völdum og hins vegar hér­aðs­sak­sókn­ara var ekki nægi­lega sam­tvinnuð í efni og tíma, aðal­lega vegna þess að þeim var slegið á frest vegna þess að beðið var nið­ur­stöðu máls sem var til með­ferðar hjá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evr­ópu. Alls hefur emb­ættið fellt niður 66 mál vegna þessa.

[links]Það rof sem varð vegna þess að málin voru sett á bið varð á end­anum til þess að þau voru látin niður falla.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur kært ákvarð­anir hér­aðs­sak­sókn­ara í sex þess­ara mála til rík­is­sak­sókn­ara og von­ast til þess að hann end­ur­skoði ákvörðun um nið­ur­fell­ingu mál­anna.

Einstaklingar úr Panamaskjölunum sleppa

Kjarninn greindi frá því um miðjan nóv­em­ber að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefði fellt niður 62 mál þar sem grunur var um að ein­stak­lingar hefðu framið skatt­svik. Fyrstu málin voru felld niður tæpum mán­uði áður.

Á meðal þeirra mála sem felld voru niður eru mál ein­stak­linga sem komu fyrir í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Og stór hluti mál­anna snýst um ein­stak­linga sem geymdu fjár­muni utan Íslands til að kom­ast hjá skatt­greiðslum. Búist er við því að enn fleiri mál tengd ætl­uðum skattsvikum verði felld niður á næst­unni, en alls voru 152 mál til með­ferðar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Alls er skatt­stofn­inn í öllum þeim málum yfir 30 millj­arðar króna.

Nú hafa fjögur mál til við­bótar verið nið­ur­felld.

Beðið eftir niðurstöðu í máli Baugsmanna

Þegar er búið að end­ur­á­kvarða skatt­greiðslur á flesta þeirra sem undir eru í þeim rann­sóknum. En í þeim málum sem felld hafa verið niður mun ekki verða hægt að leggja sektir á þá sem þau snú­ast um. Sekt fyrir skatt­svik getur verið frá því að vera tvö­föld sú skatt­fjár­hæð sem skotið var undan og upp að tífaldri þeirra fjár­hæð. Því er ljóst að íslenska ríkið verður af miklum fjár­hæðum vegna þessa og þeir sem sviku stór­fellt undan skatti munu enn fremur ekki þurfa að sæta refs­ingu fyrir að hafa framið hegn­ing­ar­laga­brot.

[adspot]Ástæðan fyrir þess­ari stöðu er rof í máls­með­ferð sem varð vegna þess að ákæru­valdið og íslenskir dóm­stólar voru að bíða eftir nið­ur­stöðu í máli Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Tryggva Jóns­sonar fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, og síðan bið eftir því hvernig Hæsti­réttur túlk­aði þá nið­ur­stöðu.

Sá dómur féll í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Hæsti­réttur var fjöl­skip­aður í mál­inu, sem sner­ist um stór­fellt skatta­laga­brot manns sem hafði ekki talið fram fjár­magnstekjur á árunum 2008 og 2009 upp á sam­tals 87 millj­ónir króna á skatt­fram­tali sínu. Um var að ræða tekjur af sölu hluta­bréfa og upp­gjör á tugum fram­virkra samn­inga.

Rofið eyðilagði málin

Nið­ur­staða dóm­stóls­ins var að sak­fella mann­inn fyrir brotið og leggja á hann 14 millj­óna króna sekt­ar­greiðslu þrátt fyrir að skatt­yf­ir­völd hefðu þegar gert honum að greiða álag á vantalda skatta.

Í dómi Hæsta­réttar var því ekki tekið fyrir tvö­falda refs­ingu. Þar var hins vegar, með vísun í dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í norsku máli sem féll fyrir um ári síðan og í mál Jóns Ásgeirs og Tryggva, sagt að sýna þyrfti fram á að sak­ar­efni sem sé til með­ferðar hjá bæði skatt­yf­ir­völdum og í saka­mála­rann­sókn séu þannig tengd að þau myndi eina sam­þætta heild að efni til. „Þetta feli ekki ein­göngu í sér að mark­miðin sem að er stefnt og aðferð­irnar til að ná þeim séu til fyll­ingar heldur jafn­framt að afleið­ingar þess lög­bundna fyr­ir­komu­lags feli það í sér að rekstur tveggja mála sé fyr­ir­sjá­an­legur og að gætt sé með­al­hófs,“ segir í dómi Hæsta­réttar.

Á meðan að beðið var nið­ur­stöður Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í máli Jóns Ásgeirs og Tryggva, og á meðan að beðið var eftir því að sjá hver áhrif þeirrar nið­ur­stöðu yrði á íslenska dóma­fram­kvæmd, þá voru áður­nefnd 152 mál sem voru til með­ferðar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem fer með rann­sóknar- og ákæru­vald í málum sem þessum, sett á bið. Um var að ræða mál sem eru í rann­sókn, sem voru að bíða eftir að kom­ast í rann­sókn og mál sem búið var að rann­saka, og jafn­vel ákæra í.

Eftir að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara mát­aði þau mál sem það var með til með­ferðar við leið­bein­ingar Hæsta­réttar varð nið­ur­staðan sú að máls­með­ferð að minnsta kosti 66 þeirra hjá ann­ars vegar skatt­yf­ir­völdum og hins vegar hér­aðs­sak­sókn­ara hafi ekki verið nægi­lega sam­tvinnuð í efni og tíma, aðal­lega vegna þess að þeim var slegið á frest vegna máls Jóns Ásgeirs og Tryggva sem var fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum.

Það rof sem varð vegna þess að málin voru sett á bið varð á end­anum til þess að þau voru látin niður falla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár