Mynd: Copyright: <a href='https://www.123rf.com/profile_lightwise'>lightwise / 123RF Stock Photo</a>

Tugir grunaðra skattsvikara sleppa við refsingu og sektir

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fellt niður um 60 mál gegn grun­uðum skattsvik­urum. Skatt­stofn­inn í skattsvika­málum sem eru til með­ferðar hjá emb­ætt­inu hleypur á millj­örðum. Ástæðan er rof í máls­með­ferð á meðan að beðið var nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fellt niður um 60 mál þar sem grunur var um að ein­stak­lingar hefðu framið skatt­svik. Fyrstu málin voru felld niður fyrir tæpum mán­uði síðan. Á meðal þeirra mála sem felld voru niður eru mál ein­stak­linga sem komu fyrir í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Og stór hluti mál­anna snýst um ein­stak­linga sem geymdu fjár­muni utan Íslands til að kom­ast hjá skatt­greiðslum. Búist er við því að enn fleiri mál tengd ætl­uðum skattsvikum verði felld niður á næst­unni, en alls eru rúm­lega 150 mál til með­ferðar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Alls er skatt­stofn­inn í öllum þeim málum yfir 30 millj­arðar króna.

Þegar er búið að end­ur­á­kvarða skatt­greiðslur á flesta þeirra sem undir eru í þeim rann­sóknum. En í þeim málum sem felld hafa verið niður mun ekki verða hægt að leggja sektir á þá sem þau snú­ast um. Sekt fyrir skatt­svik getur verið frá því að vera tvö­föld sú skatt­fjár­hæð sem skotið var undan og upp að tífaldri þeirra fjár­hæð. Því er ljóst að íslenska ríkið verður af miklum fjár­hæðum vegna þessa og þeir sem sviku stór­fellt undan skatti munu enn fremur ekki þurfa að sæta refs­ingu fyrir að hafa framið hegn­ing­ar­laga­brot.

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir að emb­ætti hennar muni óska eftir því að rík­is­sak­sókn­ari end­ur­skoði ákvörðun hér­aðs­sak­sókn­ara um nið­ur­fell­ingu í að minnsta kosti hluta mál­anna.

Sleppa vegna máls Jóns Ásgeirs

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu er rof í máls­með­ferð sem varð vegna þess að ákæru­valdið og íslenskir dóm­stólar voru að bíða eftir nið­ur­stöðu í máli Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Tryggva Jóns­sonar fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, og síðan bið eftir því hvernig Hæsti­réttur túlk­aði þá nið­ur­stöðu.

Þann 18. maí síð­ast­lið­inn komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu að þeirra nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jóns­syni þegar þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Krist­ínu Jóhann­es­dótt­ur.

Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins á þeim for­­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til að greiða álag ofan á end­ur­á­kvörðun skatta af yfir­­skatta­­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu verið byggð á sama grunn­i. Og því væri verið að refsa þeim tví­vegis fyrir sama brot­ið.

Fram að þeim tíma hafði það tíðkast hér­lendis að þeir sem sviku stór­fellt undan skatti skyldu greiða hátt álag ofan á þá van­goldnu skatta sem þeir skyldu end­ur­greiða. Ef um meiri­háttar brot var að ræða þá var við­kom­andi einnig ákærður fyrir meiri háttar skatta­laga­brot, en við slíkum brotum liggur allt að sex ára fang­elsi auk þess sem við­kom­andi þarf að að greiða sekt.

Þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hafði kom­ist að nið­ur­stöðu þá þurfti að falla dómur í Hæsta­rétti um sam­bæri­legt efni til að fram komi hver áhrif nið­ur­stöð­unnar verði á íslenska dóma­fram­kvæmd.

Sá dómur féll í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Þurftu að mynda eina samþætta heild

Hæsti­réttur var fjöl­skip­aður í mál­inu, sem sner­ist um stór­fellt skatta­laga­brot manns sem hafði ekki talið fram fjár­magnstekjur á árunum 2008 og 2009 upp á sam­tals 87 millj­ónir króna á skatt­fram­tali sínu. Um var að ræða tekjur af sölu hluta­bréfa og upp­gjör á tugum fram­virkra samn­inga.

Nið­ur­staða dóm­stóls­ins var að sak­fella mann­inn fyrir brotið og leggja á hann 14 millj­óna króna sekt­ar­greiðslu þrátt fyrir að skatt­yf­ir­völd hefðu þegar gert honum að greiða álag á vantalda skatta.

Í dómi Hæsta­réttar var því ekki tekið fyrir tvö­falda refs­ingu. Þar var hins vegar, með vísun í dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í norsku máli sem féll fyrir um ári síðan og í mál Jóns Ásgeirs og Tryggva, sagt að sýna þyrfti fram á að sak­ar­efni sem sé til með­ferðar hjá bæði skatt­yf­ir­völdum og í saka­mála­rann­sókn séu þannig tengd að þau myndi eina sam­þætta heild að efni til. „Þetta feli ekki ein­göngu í sér að mark­miðin sem að er stefnt og aðferð­irnar til að ná þeim séu til fyll­ingar heldur jafn­framt að afleið­ingar þess lög­bundna fyr­ir­komu­lags feli það í sér að rekstur tveggja mála sé fyr­ir­sjá­an­legur og að gætt sé með­al­hófs,“ segir í dómi Hæsta­réttar.

Um 150 mál með skattstofn upp á 30 milljarða

Á meðan að beðið var nið­ur­stöður Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í máli Jóns Ásgeirs og Tryggva, og á meðan að beðið var eftir því að sjá hver áhrif þeirrar nið­ur­stöðu yrði á íslenska dóma­fram­kvæmd, þá voru rúm­lega 150 mál sem voru til með­ferðar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem fer með rann­sóknar- og ákæru­vald í málum sem þessum, sett á bið. Um var að ræða mál sem eru í rann­sókn, sem voru að bíða eftir að kom­ast í rann­sókn og mál sem búið var að rann­saka, og jafn­vel ákæra í.

Eftir að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara mát­aði þau mál sem það var með til með­ferðar við leið­bein­ingar Hæsta­réttar varð nið­ur­staðan sú að máls­með­ferð um 60 þeirra hjá ann­ars vegar skatt­yf­ir­völdum og hins vegar hér­aðs­sak­sókn­ara hafi ekki verið nægi­lega sam­tvinnuð í efni og tíma, aðal­lega vegna þess að þeim var slegið á frest vegna máls Jóns Ásgeirs og Tryggva sem var fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum.

Það rof sem varð vegna þess að málin voru sett á bið varð á end­anum til þess að þau voru látin niður falla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið undanfarið ár