Clarkson, Hammond og May gera bílaþætti hjá Amazon

Fyrr­ver­andi þátta­stjórn­endur bresku bíla­þátt­anna Top Gear hafa skrifað undir samn­ing við vefrisan Amazon og munu sjá um bíla­þætti á sér­stakri vefrás fyr­ir­tæk­is­ins. Eftir að BBC sleit samn­ingi sínum við einn hefur teymið fengið að velja úr til­boðum ann­ara sjón­varp­stöðva.

Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May sáu um Top Gear-þætt­ina á BBC í 12 ár þangað til í mars í ár, þegar Clarkson var sagt upp vegna ítrek­aðra brota í starfi. Hann hafði þá verið ávíttur nokkrum sinnum fyrir fúk­yrði í þátt­unum og kyn­þátt­a­níð, en eftir að hann kýldi einn fram­leið­enda þátt­anna var hann lát­inn fara.

May og Hammond sögðu starfi sínu lausu í kjöl­farið og hafa síðan, ásamt Clarkson, verið að und­ir­búa end­ur­komu í sjón­varp ann­ar­staðar en á BBC. Þre­menn­ing­arnir höfðu verið orð­aðir við ITV og Netflix auk fleiri sjón­varp­stöðva.

„Mér líður eins og ég hafi klifið úr tví­þekju og yfir í geim­skip,“ sagði Clarkson um nýja vinnu­stað­inn. May þykir formið einnig nýstár­legt: „Við erum orðnir hluti af nýrri öld snjall­sjón­varpa. Kald­hæðið, ekki satt?“

Þætt­irnir munu ekki heita Top Gear enda er það heiti í eigu BBC og var raunar til löngu áður en þeir Clarkson og Hammond tóku við stjórn þátt­ar­ins árið 2002. Ekki hefur verið ákveðið hvað þætt­irnir á Amazon munu heita.

Þætt­irnir á vefnum verða aðeins aðgengi­legir áskrif­endum að Amazon Prime, þjón­ustu sem er ekki ólík Netflix og geymir stórt safn kvik­mynda og sjón­varps­þátta. Amazon fram­leiðir einnig fleiri þætti, sem hafa meira að segja hlotið Golden Globe-verð­laun.


Top Gear heldur áfram

Síðan þrí­eykið tók við stjórn Top Gear hafa þætt­irnir verið ein helsta sölu­vara BBC til ann­ara sjón­varp­stöðva víðs­vegar um heim­inn og skilað gríð­ar­legum tekjum. Aðrar sjó­varp­stöðvar, til dæmis í Banda­ríkj­unum og Ástralíu, hafa einnig fram­leitt Top Gear-þætti til hliðar við upp­runa­legu bresku þætt­ina.

Ákvarð­anir stjórnar BBC í máli Top Gear og Jeremy Clarkson hafa alltaf verið umdeildar, enda kosta þætt­irnir mikið auk þess sem vin­sældir þátt­ana eru bein­tengdar per­són­unum sem kynna þá.

Clarkson hafði þess vegna ítrekað kom­ist upp með kyn­þátt­a­níð og fúk­yrði gagn­vart konum og stjórn­mála­mönnum í þátt­unum þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing um að honum verði sagt upp. Lík­ams­árás á starfs­mann BBC gerði hins vegar úts­lagið.

Clarkson hefur beðist vel­virð­ingar á flestu því sem hann hefur gert af sér í sjón­varpi. Hann útskýrir lík­ams­árás­ina sem afleið­ingu álags vegna vinnu og að hann hafði nýlega verið greindur með krabba­mein, sem hann vissi ekki hvort væri góð­kynja eða ill­kynja.

Þegar hefur nýr aðal­kynnir þátt­anna á BBC verið kynntur. Það er fjöl­miðla­mað­ur­inn Chris Evans sem und­an­farið hefur starfað sem útvarps­maður. Enn er leitað að tveimur þátta­stjórn­endum til við­bótar. Nýverið var Formúlu 1-öku­þór­inn Jenson Button orð­aður við þætt­ina, en hann er samn­ings­bund­inn McLaren-lið­inu í Formúlu 1 út árið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár