Bjarni Ben: Heilbrigðiskerfið tekið í gíslingu í kjaradeilum

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að breyt­ing hafi orðið á beit­ingu verk­falls­réttar, og nú fari til­tölu­lega fámennir hópar í verk­fall þar sem mest er fundið fyrir því, en ekki þannig að verk­fallið bitni „jafnt á báðum aðilum eins og hefur verið fram til þessa.“

Þetta sagði Bjarni í svari við fyr­ir­spurn Katrínar Júl­í­us­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á Alþingi í dag. „Það er mikið umhugs­un­ar­efni hvernig við höfum lent í því ítrekað á und­an­förnum mán­uðum að grund­vall­ar­stoðir í okkar heil­brigð­is­kerfi eru teknar nán­ast í gísl­ingu til þess að ná fram kröfum í kjara­við­ræðum,“ sagði Bjarni einnig. Það væri svo spurn­ing um hvað væri í raun og veru deilt í kjara­við­ræðum. „Er kjarni deil­unnar sá að það skorti á að gera betur við þá sem eru lægst­laun­aðir, eða er það til vitnis um ein­hver önnur sjón­ar­mið þegar stór félög á borð við BHM vilja meina að menntun sé ekki metin nægi­lega til launa og ganga nán­ast svo langt að segja að jöfn­uður hafi auk­ist um of, svo mjög að það borgi sig ekki lengur, það skili sér ekki í launa­umslagið, að sækja góða menntun t.d. með háskóla­göngu?“

Katrín spurði Bjarna um aðkomu stjórn­valda að kjara­deilum og sagði að hún og Sam­fylk­ingin hefðu miklar áhyggjur af ástand­inu á vinnu­mark­aði. Hún sagði rík­is­stjórn­ina hins vegar skila „full­komn­lega auðu“ í mál­inu, það væri stað­fest með „vanga­veltum“ fjár­mála­ráð­herra. „Eftir hverju er ríkið að bíða? Hér eru heil­brigð­is­stéttir í verk­falli í á þriðju viku og það eina sem heyr­ist frá rík­is­stjórn­inni er að for­sæt­is­ráð­herra segir að aðilar þurfi að koma sér saman áður en ríkið komi að málum. Hvað er verið að segja, ríkið sjálft er við­semj­andi í þess­ari deilu? Menn eru að vísa frá sér ábyrgð. Menn koma sér undan því að svara fyrir þessa stöðu.“

Bjarni sagði hins vegar unnið „eftir þeirri hug­mynda­fræði að það sé ein­hvers virði að við­halda stöð­ug­leik­anum sem náðst hefur, að það skipti heim­ilin og atvinnu­lífið máli að halda lágri verð­bólgu í land­inu, það skipti bara veru­lega miklu máli. Og við þurfum að halda þannig líka á spil­unum í þess­ari kjara­deilu að menn geri ekki eitt­hvað á einu sviði sem valdi röskun á öðru, að menn velti bara ósætt­inu á undan sér.“

Ástandið jafnvel verra en í læknaverkfallinu


Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, spurði Bjarna líka um stöðu kjara­mála. „Ekki er aðeins starf­semi spít­al­anna meira og minna lömuð og ástandið jafn­vel verra en í lækna­verk­fall­inu heldur bæt­ast nú við dýra­læknar og fleiri hópar sem lama mat­væla­fram­leiðslu og jafn­vel útflutn­ing, og starfs­menn fjár­sýsl­unnar eru komnir í verk­fall. Fjár­mála­ráð­herra hlýtur nú að taka eftir því.“ Stein­grímur spurði hvernig Bjarni sæi kjara­málin, því rík­is­stjórnin bæri almenna ábyrgð í þeim auk þess að vera við­semj­andi.

„Við fylgj­umst vel með því hvernig við­ræðu­lot­unni vindur fram og gerum okkur grein fyrir því að það getur skipt máli hvað ríkið hefur fram að færa,“ sagði Bjarni. Hann sagði ekki verið að bíða eftir neinu frá rík­inu, mest væri verið að ræða málin á vett­vangi rík­is­sátta­semj­ara. Hann sagði ýmis­legt koma til greina sem inn­legg af hálfu stjórn­valda en það væri ekki hægt að gera neitt með launa­kröfur upp á 50 til 100 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár