Borgun uppfyllir ekki kröfur laga um aðgerðir gegn peningaþvætti

FME skoð­aði 16 erlenda við­skipta­menn Borgunar í athugun sem stóð í um níu mán­uði. Í til­viki 13 af 16 við­skipta­manna var ekki fram­kvæmd könnun á áreið­an­leika upp­lýs­inga um við­skipta­menn­ina. Borgun hefur tvo mán­uði til að ljúka úrbótum.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, eftir athugun sem stóð í um níu mán­uði, að fram­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borgunar í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlendis upp­fylli ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lögum. Borgun hefur tvo mán­uði til að ljúka úrbótum vegna athuga­semda eft­ir­lits­ins.

Fjár­mála­eft­ir­litið tók úrtak 16 við­skipta­manna á alþjóða­sviði Borgunar þegar það fram­kvæmdi athugun á eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka hjá fyr­ir­tæk­inu. Í til­viki 13 af 16 við­skipta­manna var ekki fram­kvæmd könnun á áreið­an­leika upp­lýs­inga um við­skipta­menn­ina sam­kvæmt lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Á meðan að á athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins stóð, en hún hófst 27. maí 2016 og lauk í febr­úar 2017, sleit Borgun við­skipta­sam­bandi við þrjá þess­ara við­skipta­manna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nið­ur­stöðu athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þar segir einnig að eft­ir­litið hafi gert athuga­semd við að í til­viki fimm af 16 við­skipta­vina Borgunar sem voru kann­aðir hafi Borgun ekki greitt fyrstu greiðslu á grund­velli samn­ings um færslu­hirð­ingu inn á reikn­ing við­skipta­maanns­ins, eins og lög segja til um. „Í öllum til­vikum var um að ræða við­skipta­menn sem eru ein­göngu í starf­semi erlendis og voru ekki á staðnum til að sanna deili á sér við upp­haf við­skipta. Þá voru ekki fyr­ir­liggj­andi samn­ingar um að Borgun hf. hefði útvi­stað fram­kvæmd áreið­an­leikakann­anna til þriðja aðila sem staddur væri á sama stað og við­skipta­mað­ur­inn og þannig tryggt að við­skipta­mað­ur­inn teld­ist vera á staðnum til að sanna á sér deili við fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­unar.“

Til við­bótar gerði Fjár­mála­eft­ir­litið fjórar aðrar athuga­semdir við fram­fylgni Borgunar við lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þær eru:

  • að Borgun hf. sinni almennt ekki með full­nægj­andi hætti reglu­bundnu eft­ir­liti með samn­ings­sam­bandi við við­skipta­menn vegna færslu­hirð­ingar félags­ins fyrir þá erlendis.
  • að Borgun hf. hafi ekki gripið til ráð­staf­ana til að sinna með full­nægj­andi hætti rann­sókn­ar­skyldu sinni og mögu­legri til­kynn­ing­ar­skyldu vegna við­skipta sem grunur leikur á að rekja megi til pen­inga­þvættis og fjár­mögn­unar hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlendis.
  • að Borgun hf. hafi ekki séð til þess að starfs­menn hafi fengið full­nægj­andi þjálfun í aðgerðum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlendis.
  • að Borgun hf. búi ekki yfir kerfi sem gerir félag­inu kleift að bregð­ast skjótt við fyr­ir­spurnum frá lög­reglu og öðru lög­bærum yfir­völdum, þ.m.t. Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þá gerði Fjár­mála­eft­ir­litið athuga­semdir við að innri reglur Borgunar væri ekki að fullu í sam­ræmi við lög.

Uppfylla ekki kröfur laga

Sam­an­dregið þá er það nið­ur­staða Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að fram­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borgunar hf. í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlendis upp­fyllti ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lögum. Auk úrbóta­kröfu gerði eft­ir­litið kröfu um að Borgun fari yfir fram­kvæmd áreið­an­leikakann­anna vegna ann­arra við­skipta­manna á alþjóða­sviði, en þeirra sem voru í úrtak­inu, og gæti Borgun hf. ekki full­nægt skil­yrðum laga skyldi félagið án tafar binda enda á við­skipta­sam­band við þá við­skipta­menn. „Varðandi aðrar athuga­semdir Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um fram­fylgni Borgunar hf. við lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka krafð­ist Fjár­mála­eft­ir­litið við­eig­andi úrbóta og að félagið skil­aði aðgerð­ar­á­ætlun til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins þar sem sýnt væri hvernig það hygð­ist bregð­ast við athuga­semdum og úrbóta­kröfum og hvernig tryggt yrði að aðgerðir fyr­ir­tæk­is­ins gegn pen­inga­þvætti sam­ræmd­ust lögum nr. 64/2006, leið­bein­andi til­mælum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins nr. 5/2014 og innri reglum félags­ins. Fjár­mála­eft­ir­litið veitti Borgun hf. tvo mán­uði, frá dag­setn­ingu loka­skýrslu, til að ljúka fram­an­greindum úrbótum,“ segir í nið­ur­stöðu eft­ir­lits­ins.

Gríðarlegur hagnaður á síðustu árum

Borgun sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í morgun, áður en að nið­ur­staða Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var birt, þar sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Haukur Oddsson, seg­ist taka athuga­semdum þess alvar­lega og að það muni „tryggja í sam­starfi við FME að starf­semin full­nægi betur en nú er ítr­ustu skil­yrðum laga m.t.t. könn­unar á áreið­an­leika við­skipta­manna og skyldum þátt­um, en lítið hefur reynt á túlkun þess­ara reglna, sem eru um ýmis­legt mats­kennd­ar, í íslenskri stjórn­sýslu- og rétt­ar­fram­kvæmd. Borgun hefur þess í stað reitt sig á regl­ur, túlkun og úttektir korta­fé­lag­anna Visa og MasterCard sem byggja á sömu evr­ópu­lögum og hér um ræð­ir. Það er brýnt að taka fram að hvorki er um að ræða grun um pen­inga­þvætti né fjár­mögnun hryðju­verka. Borgun hefur þegar haf­ist handa við að upp­fylla fyr­ir­mæli FME, meðal ann­ars með því að segja upp við­skipta­sam­bandi við nokkra aðila.“

Rekstur Borg­unar hefur gengið vel á und­an­förnum árum. Hagn­aður árs­ins af reglu­legri starf­semi var undir einum millj­arði króna árið 2013.

Í fyrra var hann rúm­lega 1,6 millj­arðar króna. Í til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið sendi frá sér fyrir viku sagði: „Meiri­hluti þjón­ustu­tekna Borgunar hf. kemur frá Alþjóða­sviði þar sem vöxtur félags­ins hefur verið mestur. Mikil aukn­ing varð á árinu í færslu­hirð­ingu erlendis, svo sem í Bret­landi, Ung­verja­landi og Tékk­landi og eru erlendir við­skipta­vinir Borgunar hf. í þessum löndum nú þegar orðnir fleiri en íslenskir við­skipta­vinir“.

En hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins í söl­unni á Visa Europe skiptir mestu máli þegar virð­is­aukn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er met­in. Sú sala skil­aði Borgun 6,2 millj­örðum króna. Sam­tals verða greiddir 7,7 millj­­arðar króna í arð­greiðslur til eig­enda Borg­unar vegna síð­ustu þriggja ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár